Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 16

Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 16
16 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002 Fyrirtækið og rekstur Heimili hafa ekki launadeild, tæknideild, tölvu- deild, bókhaldsdeild o.s.frv. Slíkar einingar verða þó nauðsynlegar þegar horft er á rekstur hjúkrunarheim- ila. Rekstur stærri heimila er með 1/2 til 1 milljarð í ársveltu og nokkur hundruð starfsmenn í vinnu. Brýnt er við hönnun að þessir þjónustuliðir verði ekki þeir sýnilegustu á heimilinu. Í seinni tíð hefur sá möguleiki opnast að úthýsa slíkum þáttum í rekstri og ef komið er á hagstæðum samningum við rekstraraðila er það mjög jákvætt gagnvart yfirbragði heimilisins. Þannig er hægt að úthýsa, eldun máltíða, þvottaþjónustu, bók- haldi og launavinnslu, og kaupa að ræstingu, garðyrkju og tölvu- og tækniþjónustu. Þessi atriði hafa þýðingu þegar litið er á heimiliskenndina, býr maður í fyrirtæki eða á heimili. Það sama má segja um ýmsa aðstöðu starfsmanna. Er vaktin, línið, skolið miðja deildar- innar/heimilisins? Á venjulegum heimilum þá er það eldhúsið og stofurnar. Þvottahúsið og geymslurnar eru einhvers staðar fjarri og blasa ekki við. Þörfin fyrir vaktíverustaðinn hverfur þegar boðin koma beint til þín hvar sem þú ert staddur í byggingunni. Áherslan þarf að vera á þá þjónustu sem ætluð er íbúanum beint á hjúkrunarheimilinu sjálfu. Allt annað getur verið fjarri með nútíma tækni. Með því að fækka fermetrum í byggingu undir fyrrnefnda stoðþjónustu, má fjölga þeim fermetrum sem íbúinn hefur til sinna afnota. Við það að bæta aðstöðu hans, batnar verulega aðstaða starfsmanna til að annast um viðkomandi og koma að viðeigandi hjálpartækjum hverju sinni. Áhersla á aðbúnað íbúans verður sýnilegri. Öryggið Hjúkrunarheimilið þarf að vera öruggt. Það á við um öll heimili. Sérstaða hjúkrunarheimila á Stór- Reykjavíkursvæðinu er stærð þeirra. Það þýðir að það er ekki yfirsýn um þá gesti sem koma í húsið. Með vax- andi notkun eiturlyfja hérlendis hafa hjúkrunarheimili orðið fyrir ágengni eiturlyfjaneytenda og útigangs- manna sem misnotað hafa heilsuleysi aldraðra íbúa til þess að stela og svíkja. Alvarlegast er þegar slíkir glæpamenn eru ættingjar íbúanna. Þarna skarast tvo sjónarmið, annars vegar það að heimilið sé opið gestum íbúanna eins og þeir kjósa og hins vegar að tryggja öryggi íbúanna og starfsmanna fyrir óviðkom- andi óþjóðalýð. Vegna aðstæðna er nauðsynlegt að hafa nýjustu tækni hvað varðar aðgangsstýringu, innbrota- kerfi, hússtjórnarkerfi og brunavarnakerfi til staðar í nútíma hjúkrunarheimili. Lokaorð Tæknin er óþrjótandi og getur verið mjög hjálpleg, það má hins vegar aldrei gleyma hinum mannlega þætti umönnunar. Umhyggjan, samveran og nándin skipta hér höfuðmáli ásamt því að tryggja að umönnun þeirra sem háðir eru öðrum sé ávallt byggð á þekk- ingu. Þörf fyrir hjúkrunarheimili fer vaxandi, líta þarf á íbúðir íbúa þeirra sem eigin heimili og þjónustuna sem heimaþjónustu. Ítarefni: Anna Birna Jensdóttir, Júliana Sigurveig Guðjónsdóttir, Hlíf Guð- mundsdóttir, Ingibjörg Hjaltadóttir.(1999-2000) Sjáanlegar vísbendingar um gæði öldrunarhjúkrunar. Grein í vinnslu. Rannsóknin var kynnt á WENR ráðstefnu, Reykjavík 2000 og 15 NKG ráðstefnu Reykjavík 2000. Auður Harðardóttir og Anna Birna Jensdóttir. Umönnun aldraðra. (1996) í bókinni ,,Árin eftir sextugt. Allt sem þú þarft að vita til að njóta efri áranna.” Ritstj. Hörður Þorgilsson og Jakob Smári. Útg. Forlagið. Bls. 424-435 Hjúkrunarvöktunarkerfið Vökull www.securitas.is

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.