Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 13
13ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002
Greinin byggir á erindi sem höf-
undur flutti á námstefnu Öldrunar-
fræðafélags Íslands og Endurmennt-
unarstofnunar Háskóla Íslands um
búsetu aldraðra í nútíð og framtíð.
Inngangur
Ef við veltum fyrir okkur kröfunum til hjúkrunar-
heimila fyrir aldraða eins og þær birtast á Stór-Reykja-
víkursvæðinu þar sem mesta eftirspurnin er, þá er
krafan sú að fá pláss. Það er lítið rúm fyrir óskir, skort-
urinn er það mikil að verðandi íbúar hjúkrunarheimila
eru þakklátir fyrir hvað sem er svo þeir verði ekki
lengur byrði á öðrum eða fyrir í kerfinu liggjandi á
sjúkradeildum sem ekki er ætlað að hafa þá. Ættingjar,
oft yfirkomnir af áhyggjum og langvarandi þreytu
þiggja plássið óháð því hvort það sé í takt við óskir eða
ekki, eða hvort um sé að ræða herbergi til einkaafnota
eða í fjölbýli með öðrum. Umönnunaraðilar á sjúkra-
húsum og í heimaþjónustu útskrifa íbúann í næsta
úrræði sem fæst og snúa sér að eigin biðlistum.
Ef litið er á lögin um málefni aldraðra, sem enn eru
við lýði og umfram lög sem gilda almennt um borgar-
ana ( lög sem sérstaklega er ætlað að tryggja hag aldr-
aðra). Þar segir að hverjum einstaklingi skal gert kleift
að dvelja á eigin heimili eins lengi og kostur er. Krafan
þar er að fólk fái þjónustuna til sín. Verulega vantar á
að því sé mætt. Heimaþjónusta hérlendis er það fjár-
hagslega svelt að hún getur ekki mætt nema broti af
þjónustuþörfinni og þá þeim sem betri heilsuna hafa og
sterkasta stuðningskerfið. Það eru því fáir aldraðir
búandi á eigin heimili í dag, sem búa við sama heilsu-
far og þeir sem dvelja á sjúkrahúsum og hjúkrunar-
heimilum. Hugmyndafræðin í lögunum er og verður
,,utopia” þar til meira fé verður veitt til uppbyggingu
heimaþjónustunnar og hugmyndir manna um hvað sé
heimili þróist.
Sífellt eykst þörfin fyrir fleiri hjúkrunarheimili á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Þar kemur til að háöldr-
uðum fjölgar, fólksflutningar utan að landi aukast
einnig í þessum aldurshópi og unnið er að fækkun
fjölbýlisherbergja á eldri hjúkrunarheimilum. Áætlað
er að byggja þurfi 100 íbúa hjúkrunarheimili í þessum
Hjúkrunarheimili
framtíðarinnar
Ný hugmyndafræði
er samræmist kröfum nútímans
til hjúkrunarheimila
Anna Birna Jensdóttir
hjúkrunarforstjóri Sóltúni