Öldrun - 01.03.2002, Blaðsíða 22
22 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002
meðferðar eða endurhæfingar, en einnig er talsvert um
að sjúklingar komi í hvíldarinnlagnir og biðpláss.
Deildirnar eru alveg eins upp byggðar og veita sömu
þjónustu. Átján rúm eru á hvorri deild og þar af eru tvö
hvíldarrúm á hvorri um sig, eitt fyrir karla og eitt fyrir
konur. Á hverju ári koma um 65 manns í hvíldarinn-
lagnir, en þær eru til þriggja vikna í senn.
Flestir sem leggjast inn hafa einhvern tíma komið
á minnismóttöku þ.a. talsvert hefur þá verið unnið í
málunum áður. Aðrir sem leggjast inn eru erfiðir sjúk-
lingar af öðrum deildum spítalanna eða þeir sem eru
orðnir mjög erfiðir heima. Á vikulegum innlagnar-
fundum er farið yfir þá sjúklinga sem bíða heima eftir
því að leggjast inn á deildirnar og forgangsraðað eftir
þeim upplýsingum sem fyrir liggja.
Á báðum deildum eru einnig vikulegir teymisfundir
og alltaf eru haldnir fjölskyldufundir fyrir hvern sjúk-
ling, hvort sem séð er fram á útskrift eða ekki. Á fund-
unum er ákveðið í samráði við fjölskyldu hvort útskrift
sé ráðleg og þá hvaða þjónustu sé þörf heima. Ef sjúk-
lingur kemst ekki heim er hann kominn í svo kallað
biðpláss og bíður eftir framtíðarvistun á hjúkrunar-
heimili.
Deildarstjóri á L-1 er Gerður Sæmundsdóttir og
læknir er Jón Snædal. Á deild L-4 er Ída Atladóttir
deildarstjóri og læknir Björn Einarsson. Jón og Björn
eru jafnframt þeir læknar sem hafa mesta viðveru á
minnismóttöku.
Dagvistir
Samningar um læknisþjónustu eru við þrjár dag-
vistir, sérstaklega ætlaðar fyrir sjúklinga með heila-
bilun. Þær eru eftirfarandi:
Hlíðabær sem stofnaður var af S.Í.B.S., Reykjavík-
urdeild R.K.Í. og Samtökum aldraðra árið 1986. Hlíða-
bær er staðsettur að Flókagötu 53 og þar er forstöðu-
maður Sigrún K. Óskarsdóttir.
Vitatorg var stofnað af Reykjavíkurborg árið 1996.
Það er að Lindargötu 59 og þar er forstöðumaður
Marta Pálsdóttir.
Fríðuhús er nýjasta dagvistin og var stofnuð af
félagi aðstandenda Alzheimers sjúklinga (F.A.A.S.) í
byrjun árs 2001. Fríðuhús stendur við Austurbrún 31
og þar er forstöðumaður Hildur Reynisdóttir.
Dagvistirnar hafa það að markmiði að þjálfa þá lík-
amlegu og andlegu færni sem enn er til staðar hjá
hverjum einstaklingi. Læknarnir Jón Snædal og Björn
Einarsson mæta þangað vikulega, fylgjast með sjúk-
lingum og hafa gjarnan fundi með fjölskyldum.
Algengt er að aðstandendur þeirra sem eru í dagvistun
nýti sér hvíldarinnlagnir á Landakoti fyrir viðkomandi
sjúkling. Læknarnir eða forstöðumenn dagvistanna
hafa þá samband við félagsráðgjafa heilabilunareining-
arinnar sem heldur utan um hvíldarinnlagnirnar og
hann raðar sjúklingum fram í tímann í samráði við
aðstandendur.
Stuðningshópar
Stuðningshópar fyrir aðstandendur sjúklinga með
heilabilun hafa verið starfræktir við heilabilunarein-
ingu frá árinu 1997. Alls hafa um 140 manns komið í
slíka hópa, en hóparnir eru orðnir 20 að tölu. Þeir eru
lokaðir og ekki stærri en sjö manna. Ýmist er boðið
upp á makahópa eða barnahópa. Hóparnir hittast í sex
skipti í eina og hálfa klukkustund í senn, vikulega.
Venjan hefur verið sú að bjóða upp á blöndu af fræðslu
og stuðningi, þ.a. félagsráðgjafi, læknir og sálfræð-
ingur hafa verið með sitt innleggið hver en þess á milli
eru umræður. Einnig hefur talsvert verið notast við
myndbönd og fagbókasafn í öldrunarfræðum sem
staðsett er á Landakoti. Sálfræðingur og félagsráðgjafi
hafa stýrt þessum hópum frá upphafi. Umsóknir um
þátttöku í stuðningshópum koma í gegnum minnis-
móttöku, dagvistirnar þrjár og legudeildirnar.
Heilabilunareining
Dagvistir/sambýli:
Hlíðabær, Vitatorg
Fríðuhús
Foldabær (sambýli)
Minnismóttaka
Greining, læknisskoðun
félagsráðgjafi fær sögu
aðstandenda
Deild L-1
Greining, meðferð
Hvíldarinnlagnir
Biðpláss
Deild L-4
Greining, meðferð
Hvíldarinnlagnir
Biðpláss
Landakot Stuðningshópar
fyrir
aðstandendur
Mynd 1: Heilabilunarein-
ingin