Öldrun - 01.03.2002, Qupperneq 15
15ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002
þekkja vita að næturbleiur hafa þann eiginleika að ein-
stalingurinn upplifir sig þurran þó svo þvag sé komið í
bleiuna, en sá sem bleytir rúmið liggur í bleytu sem
getur haft verulegar afleiðingar fyrir hann. Eldri aðferð
væri sú að næturvaktarstarfsfólk væri sífellt að koma
inn til viðkomandi til að kanna hvort rúmið væri blautt.
Við það spillist næturró, sem getur haft afleiðingar á
líðan og atferli daginn eftir. Með notkun slíks hjúkrun-
arvöktunarkerfis er hægt að tryggja margvíslegt
öryggi og um leið einkalíf, en það er vandmeðfarið og
byggist alfarið á því að einstaklingsaðhæfa þjónustuna
þörfum viðkomandi.
Rými þarf að vera nægjanlegt til að sjúkrarúm er
styður við sjálfbjörg einstaklingsins komist vel fyrir, og
nægt rými sé fyrir einkahúsgögn íbúans. Íbúinn ætti að
geta tekið á móti gestum sínum og umönnunaraðilum
með góðu móti. Hátækni rúm með heimilislegu útliti
getur hjálpað sjálfbjörg einstaklings verulega, þannig
getur hann hækkað og lækkað höfðagafl, án þess að
síga neðar í rúmið. Látið rúmið setja sig upp í sitjandi
stöðu, snúið sér of látið rúmið lyfta sér í standandi
stöðu. Fjarstýringar geta stýrt að ljós kvikni eða
slökkni, sem og sjónvarp og útvarp. Hússtjórnarkerfi
getur tryggt læsingu á hurðum út í garð. Hægt sé að
svara í síma án þess að taka upp símtólið og þannig
mætti lengi telja.
Sameiginlegt rými
Aðstaða þarf að vera fyrir eldhús sem íbúi og
aðstandendur hans hefðu aðgang að. Þó svo séð sé
fyrir máltíðum, ætti sá valkostur að vera fyrir hendi að
íbúi og/eða aðstandendur geti eldað sína uppáhalds-
rétti og borið fram í eigin íbúð. Ennfremur þarf að vera
aðstoð fyrir að þvo einkafatnað, þó svo séð sé fyrir
þvotti ef þörf krefur.
Sameiginlegt rými eins og borðstofa og setustofa
þarf að vera þannig úr garði gerð að rýmið sé ekki fyrir
fleiri en 8-10 manns. Flestar fjölskyldur á Íslandi hafa
stofu fyrir 3-6 manns og þykir nóg. Það getur verið erf-
itt fyrir lasburða fólk að ná að sjá á sjónvarp í mjög
mannmargri stofu, eða hlusta á fréttir í útvarpi. Hér
skiptir miklu máli að setja vandað hljóðkerfi í rýmið til
að auðvelda hlustun og hljóðslaufur vegna þeirra sem
eru heyrnadaufir. Nýlegar rannsóknir hafa sýnt fram á
að það að hafa fiska í fiskabúri í borðstofum virkar
róandi á fólk með minnissjúkdóma og eykur matarlyst.
Ennfremur sýna rannsóknir að önnur gæludýr geta
haft mjög jákvæð áhrif á líðan fólks. Hérlendis er
bannað með lögum að hafa dýr á heilbrigðisstofnun, og
þar með er alls ekki litið á hjúkrunarheimilið sem
heimili einstaklingsins. Vonast er eftir breytingum á
þessum lögum á næstunni. Í Danmörku getur íbúi á
hjúkrunarheimili haft sitt gæludýr hjá sér svo fremi
sem það trufli ekki aðra og hann geti annast það eða
séð til þess að um það sé annast.
Öll húsgögn sem eru í sameiginlegu rými á hjúkr-
unarheimili fyrir aldraða ættu að vera miðuð við þeirra
þarfir. Þar skiptir mestu máli að gott sé að setjast og
standa upp úr sófum og húsgagnið sé sem heimilisleg-
ast og geti hæft venjulegu heimili eldri borgara. Það er
allt of algengt að boðin séu sérstök húsgögn fyrir öldr-
unarstofnanir sem eru með plastkenndu áklæði, sem
ekki nokkrum manni myndi detta í hug að bjóða til
sölu fyrir venjulegt heimili.
Yfirbragð og umgengni
Yfirbragð hjúkrunarheimilis getur verið mjög mis-
munandi, þannig getur heimilið verið mjög stofnana-
legt. Það sem ber fyrir augu eru língrindur, óhreinat-
ausgrindur, matarvagnar, ræstivagnar, hvítir einkenn-
isbúningar, pappírssmekkir, læknasloppar, stútkönnur,
plastdúkar. Í þessu öllu glymur, bjöllur hringja og járn-
rúm blasa við ef litið er inn á herbergi. Íbúar í jogging-
göllum, steyptir í sama farið.
Önnur sýn gæti verið setustofa búin fallegu sófa-
setti, borðstofa með taudúkum og tausérvettum,
hversdagsstellið á borðinu og sparistellið ásamt rauð-
vínsglösunum í glerskápnum. Starfsmaður í kvart-
buxum og polobol að slá inn upplýsingum á heimilis-
tölvuna í setustofunni. Íbúarnir að skoða fiskana í fisk-
abúrinu. Hjálpartækin geymd inn á baði, þegar ekki er
verið að nota þau og ræstivagninn einungis sýnilegur
meðan ræst er. Íbúi kallar eftir aðstoð úr íbúð sinni
með hljóðlausri tækni sem berst beint til umönnunar-
aðila hans. Þegar litið er til hans blasir við viðarklætt
rúm og húsgögnin sem hann flutti með sér, íbúðin ber
hans persónulega stíl. Karlmaðurinn er í jakkafötunum
með bindi og konan í kjólnum sínum og nælonsokka-
buxunum þar sem hún situr í hjólastólnum sínum.
Garðurinn
Mikilvægt er að skilja að þó fólk búi á hjúkrunar-
heimili, þá má það fara út. Dyrnar lokast ekki á eftir
því, maður fær að koma inn aftur. Aðgengi utan dyra
skiptir hins vegar miklu máli fyrir lasburða fólk og
minnisskerta. Það er hverjum manni mikilvægt að
finna andblæinn og upplifa veður. Garðurinn þarf því
að vera skjólgóður, hægt sé að fara eftir stígum stuttar
vegalengdir sem langar. Garðskáli er ákjósanlegur til
að dútla við lauka, fá sér kaffibolla og finna ilminn af
rósum. Matjurtagarður ætti að vera í slíkum garði, þar
skiptir engu máli hvort einhver íbúi geti sett niður
kartöflur eða tekið upp, nóg getur verið áhugavert að
fylgjast með vextinum yfir sumarið og bragða síðan á
nýju kartöflunum í ágúst. Heitur pottur og svæði fyrir
útihátíðir og sólböð er ákjósanlegt. Plöntur ætti að velja
þannig að eitthvað væri í blóma á hverjum tíma og tína
mætti ber að hausti til að búa til sultu. Huga þar að
öruggum afdrepum fyrir þá sem gætu farið villu vega
sinna og ekki ratað til baka.