Öldrun - 01.03.2002, Side 20

Öldrun - 01.03.2002, Side 20
20 ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002 gleyma Talpóstinum, sem er sérhannað íslenskt póst- forrit, sem tengist talgervlinum og er sérlega einfaldur og þægilegur í notkun og hentar því vel öldruðum og þeim sem litla reynslu hafa af tölvunotkun. Á döfinni er nýr íslenskur talgervill sem byggir á upplesnum orðum í stað tölvumáls. Talgervillinn flettir þá upp hljóðskrám orða um leið og hann fer í gegnum ritaðan texta. Á þenn- an hátt verður upplesturinn með rödd lifandi manns, þótt lesturinn sé ekki eftir efninu, a.m.k. ekki svona fyrst um sinn. Eins og fram hefur komið í fréttum undanfarið er mikil vakning víða um heim í svo kallaðri tungutækni, en með henni er töluðu máli breytt í tölvutækt form. Þetta jafnast á við það að vera með ritarann í vasanum. Með tilkomu raddstýringar fer að styttast í því að lyklaborðið og skjárinn verði úrelt og munu víst fáir sjónskertra sakna þeirra. Með raddstýringu opnast líka endalausir möguleikar. Hægt verður til dæmis að láta tölvur framkvæma ýmis verk eins og opna dyr, hella upp á könnuna, kveikja á útvarpinu eða sækja upplýsingar á netið. Þá er ekki langt í að tölvur geti leiðbeint fólki ákveðnar leiðir utan dyra. Er hægt að hugsa sér nokkuð þægilegra fyrir sjónskerta? Kostnaður vegna tölvuhjálpartækja Tölvuhjálpartæki eru framleidd í litlum mæli og því tiltölulega dýr, til dæmis kostar einn blindraskjár á aðra milljón og forritin oftast á bilinu 80-150 þkr. stykkið. Meðalkostnaður Sjónstöðvar vegna tölvuhjálpartækja hefur verið um 250 þkr. á hvern notanda. Þar sem tölvuhjálpartækin koma ekki nema að litlu leyti í stað hefðbundinna hjálpartækja er verulegur kostnaðar- auki þeim samfara. Nú þegar er ljóst að möguleikar á tölvubúnaði fyrir sjónskerta eru meiri en þjóðfélagið er tilbúið að greiða fyrir og því verður ekki unnt að útvega öllum sjónskertum tölvutengd hjálpartæki að óbreyttu. Óskað hefur verið eftir auknu fé frá ráðuneyti en mjög óvíst að það fáist vegna sparnaðarmarkmiða ríkis- stjórnarinnar í heilbrigðismálum. Ég legg því til að Samtök aldraðra og Blindrafélagið leggist á eitt og beiti sér af alefli til lausnar á þessu mikla velferðarmáli. Lokaorð Það hefur löngum þótt vera aðall velferðarþjóðfé- lags að búa vel að þeim þegnum sínum sem minnst mega sín vegna aldurs eða fötlunar. Sjónstöðinni og Blindrafélaginu finnst nú lag að stíga stórt framfara- skref með tölvuvæðingu blindra og sjónskertra og þjálfun þeirra til sjálfbjargar í heimi sem hælir sér af að vera fjölmenningarlegur. Segja má að möguleikar sjónskertra og aldraðra til sjálfsbjargar séu nú meiri og betri en þeir hafa nokkru sinni áður verið. Vissulega er alltaf mikið áfall að missa að mestu lesgetuna en full- yrða má þó að sjóndaprir geti lifað sjálfum sér og öðr- um til ánægju og því er ekki ástæða til að örvænta þótt sjónin daprist með aldrinum. Skrifað í janúar 2002 fyrir tímaritið Öldrun Hælapúðinn frá MSS er hannaður til að hafa þrýstingsminnkandi áhrif á hæla. Þrátt fyrir lítið snertisvæði þá er þrýstingurinn á snertipunktinum hár, allt að 150 mm Hg. Gelpúðar tveir laga sig að hælunum og þrýstingurinn getur minnkað í 46 mm Hg að því tilskyldu að hælar haldi kyrru fyrir á gelpúðasvæði. Þegar hælapúði er notaður með Odstock Fleyg, getur þrýstingurinn minnkað í 24 mm Hg. Ábyrgð: 12 mánuðir Stærð: 62 cm x 48 cm x 3,5 cm Vörunúmer: HP100 12 mánuðir 86,5 cm x 57 cm x 11,5 cm OSW100 Ábyrgð: Stærð: Vörunúmer: Odstock Fleygurinn minnkar þrýsting undir hælum án þess að auka þrýsting á lærum og kálfum. Fleygurinn veitir stuðning undir lærum þegar sjúklingur er í hálf liggjandi stöðu. Fleygurinn kemur í veg fyrir að sjúklingar renni niður í rúmi sem þýðir minna álag á spjaldbein. Hentar einnig fyrir sjúklinga með bak vandamál. Hjúkrunar- og lækningarvörur Lynghálsi 13, 110 Reykjavík Sími: 540 8000 DVALARHEIMILIÐ – ÁS – HVERÐAGERÐI

x

Öldrun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.