Öldrun - 01.03.2002, Qupperneq 25
25ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002
Þann 26. október 2001 var form-
lega opnuð glæsileg líknardeild á
öldrunarsviði Landspítala Háskóla-
sjúkrahúss og með því rættist lang-
þráður draumur okkar sem starfa
að öldrunarmálum.
Áöldrunarsviði hefur verið sú stefnumótun að sér-hæfa allar einingar og er líknardeildin liður í því.
Öldrunarteymi eru starfrækt innan sviðsins og eru
þau staðett á Hringbraut og í Fossvogi. Ein bráðadeild
fyrir aldraða er staðsett í Fossvogi en önnur starfsemi
sviðsins er á Landakoti.
Þar eru tvær deildir fyrir heilabilaða, minnismót-
taka og almenn móttaka, dagspítali, tvær endurhæf-
ingadeildir og ein fimmdagadeild. Einnig er þar deild
ætluð lungnasjúkum og svo á fimmtu hæð hússins er
líknardeildin staðsett.
Á deildinni eru níu rúm og er eingöngu um einbýli
að ræða. Það eru svalir út af flestum herbergjum. Hús-
næðið er allt hið fallegasta og mikið útsýni er úr öllum
gluggum og má sjá meðal annars yfir vesturbæinn,
miðbæinn, höfnina, Esjuna og Faxaflóann. Og jafnvel
sést til Snæfellsjökuls frá eldhúsi og borðstofu.
Lögð var rík áhersla á heimilislegt umhverfi við
hönnun deildarinnar bæði hvað snertir húsnæði, hús-
gögn og annan húsbúnað.
Á deildinni starfa öldrunarlæknir og deildarlæknir.
Auk deildarstjóra eru 6,1 stöðugildi hjúkrunarfræð-
inga fyrir utan næturvaktir sem eru sameiginlegar á
tveimur deildum og 5,6 stöðugildi sjúkraliða ásamt rit-
ara í hálfu starfi, svo og sérhæfður starfsmaður deild-
arinnar sem annast eldhússtörf og afþreyingu fyrir
sjúklinga.
Forsaga
Á öldrunarsviði hefur verið unnið skv. leiðbein-
ingum um takmörkun meðferðar frá 1991. Eftir því
sem fram liðu stundir kom í ljós að legupláss vantaði
fyrir sjúklinga með langt genginn illkynja sjúkdóm á
lokastigi. Deild þar sem unnt væri að veita líknandi
meðferð á skipulagðan og sérhæfðan hátt samkvæmt
bestu þekkingu á hverjum tíma.
Samkvæmt stefnumótun öldrunarsviðs um sérhæf-
ingu hinna ýmsu eininga var ákveðið að deild K-1, sem
var tuttugu rúma öldrunarlækningadeild á Landakoti,
tæki að sér þetta hlutverk.
Í byrjun var ákveðið að vera með 2 – 4 pláss sam-
hliða annarri starfsemi og sjá hve þörfin væri. Starfs-
fólk deildarinnar myndi síðan smám saman byggja upp
reynslu og þekkingu.
Á síðustu árum hefur líknarmeðferð verið viður-
kennd sem sérgrein innan læknisfræðinnar og orðið til
þess, að víðsvegar í heiminum er þessi meðferð veitt á
skipulagðan og sérhæfðan hátt.
Um er að ræða sérhæfðar legudeildir, sérhæfða
þjónustu í heimahúsum og meðferð á almennum spít-
aladeildum með stuðningi og aðstoð líknarteyma.
Fyrst og fremst var horft til þeirra öldruðu einstak-
linga með illkynja sjúkdóm á lokastigi sem ekki geta
dvalist í heimahúsi og miðað var við að ævilíkur sjúk-
linga væru skemmri en 3-6 mánuðir.
Í nóvember 1998 kom inn fyrsti sjúkingurinn í líkn-
andi meðferð á K-1.
Líknardeildin
á Landakoti
Bryndís Gestsdóttir
deildarstjóri