Öldrun - 01.03.2002, Page 32
33ÖLDRUN – 20. ÁRG. 1. TBL. 2002
Næsta námstefna Öldrunarfræðafélags Íslands
í samvinnu við Endurmenntunarstofnun
Þann 7. mars næstkomandi stendur
Öldrunarfræðafélag Íslands fyrir námstefnu í
húsi Endurmenntunarstofnunar Háskóla
Íslands við Dunhaga í Reykjavík. Námstefnan
ber yfirskriftina: Staða aldraðra í samfélaginu
– Aldraðir á nýrri öld.
Námstefnan er öllum opin, einkum fag-
fólki á sviði öldrunar- og félagsþjónustu.
Fjallað verður um félagslega stöðu
aldraðra í nútímasamfélagi og leitað verður
svara við því hvernig áhrif aldraðra muni
verða á nýrri öld að teknu tilliti til
atvinnuþátttöku, stjórnmálaþátttöku,
fjölskyldulífs, aldursfordóma,
einstaklingsfrelsis, sjálfræðis og fleiri þátta.
•
Umsjón: Berglind Magnúsdóttir sálfræðingur og Ólafur Þór Gunnarsson öldrunarlæknir.
•
Fyrirlesarar: Fagfólk á sviði heilbrigðis- og félagsvísinda.
Munið
Árósa
í
maí!!!