Öldrun - 01.05.2008, Blaðsíða 21
21
ÖLDRUN – 27. árg. 1. tbl. 2008 www.oldrun.net
(tafla 3). Rúmur fjórðungur var með milda eða meðal skerð
ingu á vitrænni færni fyrir veikindi. Við bráðaveikindi varð
breyting á, þá greindust einhverjir þátttakendur í hverjum
flokki þó aðeins rúm 5% í efstu þremur flokkunum. Viku
eftir bráðaveikindi og innlögn á sjúkrahús hefur hlutfall
þeirra þátttakenda sem greindist með enga eða litla skerð
ingu á vitrænni færni lækkað um rúm 5% frá því sem var
fyrir veikindi. Fimm mánuðum eftir innlögn á sjúkrahús
hefur það hlutfall lækkað enn frekar og um fimmtungur
þátttakenda greinist í fjórum efstu flokkunum.
Sjálfsbjargargeta þátttakenda við athafnir daglegs lífs
(ADL) fyrir veikindi var nokkuð góð (tafla 4). Enginn þátt
takandi var þá mjög háður eða algjörlega háður aðstoð
við þessar athafnir og einungis rúm tíund þurfti meira
en eftirlit við þessar athafnir. Sjálfsbjargargeta við ADL
breyttist mikið við bráðaveikindin. Rúmur helmingur þátt
takenda hafði þá mikla þörf fyrir aðstoð við ADL, en viku
eftir innlögn á sjúkrahús hafði um fjórðungur þátttakenda
mikla þörf fyrir aðstoð. Fimm mánuðum eftir bráðaveik
indi og innlögn á sjúkrahús var um fjórðungur þátttak
enda ekki sjálfbjarga við ADL, um tíund hafði mikla þörf
fyrir aðstoð við ADL.
Sjálfsbjargargeta þátttakenda var minni við almennar
athafnir daglegs lífs (IADL) en við athafnir daglegs lífs
(tafla 5). Sá kvarði er ekki stigskiptur og sýnir hann ekki
með sama hætti afgerandi vaxandi þörf fyrir aðstoð við
þessar athafnir eins og ADL kvarðinn gerir. Um fjórð
ungur þátttakenda greindist með 02 stig á IADL kvarð
Tafla 3. Skerðing á vitrænni færni (CPS) þátttakenda fyrir veikindi (N=157), við bráðaveikindi og innlögn á sjúkrahús
(N=157), viku eftir innlögn á sjúkrahús (N=155) og fimm mánuðum eftir innlögn á sjúkrahús (N=143)
Engin
skerðing
Lítil
skerðing
Mild
skerðing
Meðal
skerðing
Meðal til
alvarleg
skerðing
Mikil
skerðing
Mjög
mikil
skerðing
% % % % % % %
Fyrir veikindi 47,8 24,8 14,6 12,7 0,0 0,0 0,0
Bráðafasi 43,3 24,2 15,3 11,5 2,5 1,9 1,3
Viku seinna 43,9 23,2 15,5 14,8 1,9 0,6 0,0
Fimm mánuðum
seinna 40,6 25,9 13,3 16,8 1,4 2,1 0,0
Tafla 4. Sjálfsbjargargeta þátttakenda við athafnir daglegs lífs (ADL) fyrir veikindi (N=157), við bráðaveikindi og innlögn
á sjúkrahús (N=157), viku eftir innlögn á sjúkrahús (N=155) og fimm mánuðum eftir innlögn á sjúkrahús (N=143)
Sjálfbjarga Eftirlit
Takmörkuð
þörf
Mikil þörf
1
Mikil þörf
2
Mjög
háður
aðstoð
Algjörlega
háður aðstoð
% % % % % % %
Fyrir veikindi 84,7 3,8 8,3 1,3 1,9 0,0 0,0
Bráðaveikindi 19,7 5,7 3,2 3,2 53,5 13,4 1,3
Viku seinna 52,9 10,3 9,7 5,8 19,4 1,3 0,6
Fimm mánuðum
seinna 75,5 3,5 9,1 4,9 6,3 0,7 0,0
Tafla 5. Stigun þátttakenda við almennar athafnir daglegs lífs (IADL) fyrir veikindi (N=157), við innlögn á sjúkrahús
(N=157), viku eftir innlögn á sjúkrahús (N=155) og fimm mánuðum eftir innlögn á sjúkrahús (N=143)
0-2 stig 3-5 stig 6-8 stig 9-11 stig 12-14 stig 15-17 stig 18-21 stig
% % % % % % %
Fyrir veikindi 24,8 16,6 20,4 14,6 15,9 4,5 3,2
Bráðafasi 5,7 3,8 7,0 10,2 24,2 37,6 11,5
Viku seinna 8,4 9,7 16,1 12,9 23,9 20,0 9,0
Fimm mánuðum
seinna 16,8 12,6 18,2 16,1 16,1 14,0 6,3