Öldrun - 01.11.2008, Blaðsíða 6

Öldrun - 01.11.2008, Blaðsíða 6
 www.oldrun.net ÖLDRUN – 27. árg. 2. tbl. 2008 Alþjóðlegar sjúkdómsskilgreiningar Beinþéttni er mæld með svokölluðum beinþéttnimælum, sem mæla hve mikið geislatap verður þegar þunnur röntgengeisli er sendur í gegnum líkamann. Geislatapið er síðan umreiknað yfir í fjölda gramma af steinefnum á ákveðna flatarmálseiningu beins (gr/cm2). Geislamagnið sem viðkomandi verður fyrir er mjög lítið og samsvarar háloftageislun sem flugfarþegar verða fyrir hálfa leiðina til Kaupmannahafnar. Það gildi sem fæst við þennan útreikn- ing er síðan borið saman við aldursmeðaltal einstaklinga af sama kyni og ættstofn og niðurstaðan síðan gefin upp annað hvort sem prósentuhlutfall (%) eða sem fjöldi stað- alfrávika (SD) frá meðaltalinu, og síðari talan nefnd Z-gildi. Hinsvegar hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin eða WHO skilgreint beinþynningu (sjá nánar hér að neðan) sem hlut- fall af hámarksbeinþéttni ungra kvenna og eru þau gildi einnig gefin upp sem prósentuhlutfall (%) og sem fjöldi staðalfrávika frá meðaltalinu og er sú tala nefnd T-gildi til aðgreiningar frá Z-gildinu (Landlæknisembættið, 2004). T-gildið, þ.e. frávikið frá meðaltalinu mælt með fjölda staðalfrávika frá hámarksbeinþéttni kvenna eða karla, er gott spágildi um beinþynningarbrot – sérstaklega með tilliti til samfallsbrota í hrygg og mjaðmabrota. Í raun er áreiðanleiki T-gildisins um beinbrotaáhættu sambæri- legur og blóðþrýstingur spáir fyrir um kransæðastíflu eða heilaáföll og telst því beinþéttnimæling gott tæki til að meta brotaáhættu. Almennt gildir um T-gildið, að fyrir hverja einingu eða hvert eitt staðalfrávik tvöfaldast nærri brotaáhættan (Mynd 1). Því er það samkvæmt alþjóð- legum skilgreiningum að einstaklingur er talinn hafa beinþynningu, þegar beinþéttnin hefur fallið um 2,5 staðal- frávik frá hámarksmeðaltalinu, þ.e T-gildið er -2,5 – þá er brotahættan orðin vel marktæk eða í raun tvisvar sinnum tvisvar, eða rúmlega fjórföld miðað við einstakling sem er með T-gildi ± 0,0 og því unnt að tala um sjúkdómsástand. Beinþéttnimælingar Fullkomnir beinþéttnimælar eða svokölluð DEXA-tæki eru staðsett við Landspítala háskólasjúkrahús í Fossvogi (LSH) og við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri (FSA) (Mynd 2) og nýlega var þriðji DEXA-mælirinn settur upp í Hjartavernd. Þá eru til einfaldir beinþéttnimælar, svokallaðir hælmælar hjá Lyfju og félagasamtökum, t.d Beinvernd. Þessir hælmælar styðjast við tækni sem bygg- ist á því að hljóðbylgja er send í gegnum hælbeinið og miðað við töf hljóðbylgjunnar í gegnum beinið má áætla beinþéttnina. Þetta eru góð tæki til vitundarvakningar og grófrar skimunar. Þeir sem koma vel út úr hælmælingu eru að öllum líkindum (meira en 90%) með góðan bein- styrk, en þeir sem eru með lág beinþéttnigildi við hælmæl- ingu ættu að fara í ítarlegri mælingu með DEXA-tæki, því einungis helmingur þeirra er í raun með beinþynn- ingu (Alfreð Harðarson, 2001). Einnig er unnt að mæla beinþéttni með tölvusneiðmyndatækni og þá er einnig notast við röntgengeisla, en mun meiri en þegar DEXA- tækni er notuð – auk þess sem tölvusneiðmyndatækni er mun dýrari tækjakostur en DEXA-tæki. Tölvusneið- myndatæknin er mjög áhugaverð, því hún mælir ekki beinþéttnina á flatarmálseiningu eins og DEXA-tæknin (sjá að framan), heldur mælir hún beinþéttnina í þrívídd eða á rúmmálseiningu (gr/cm3) og með nútímatækni má fá ítarlega myndir af uppbyggingu beinsins með tilliti til hlutfalls beinskeljar og frauðbeins og jafnvel innri gerð beinsins (Myndir 3). Beinþéttnimælingar með DEXA-tæki eru nákvæm og hraðvirk aðferð, en aðeins tekur um 15–20 mínútur að framkvæma fullkomna mælingu. Auk þess er nákvæmni DEXA-mælinga mikil þannig að unnt er að fylgja einstakl- ingum eftir m.t.t. beintaps og meðferðarárangurs. DEXA-mælingar er „gullaðferðin“ þegar talað er um beinþéttnimælingar og hér eftir í þessum pistli er átt við DEXA-mælingar þegar rætt er um beinþéttnimælingar. Hvernig er unnt að komast í beinþéttnimælingu? Til að tryggja góðan aðgang að beinþéttnimælingum, geta konur 45 ára og eldri og karlar 55 ára og eldri pantað beinþéttnimælingu á LSH og FSA án milligöngu heil- brigðisstarfsmanna. Niðurstöður rannsóknarinnar eru Ábyrgðarmaður: Elva Gísladóttir næringarfræðingur og verkefnisstjóri næringar hjá Lýðheilsustöð Útgefið: 7/5/08 Hægt er að skoða og panta meira fræðsluefni um næringu hjá: www.lydheilsustod.is - útgáfur Mikilvægi hollrar fæðu fyrir heilsuna Þegar aldurinn færist yfir geta matarvenjur og matarlyst breyst. Fæðið hefur mikil áhrif á heilsu og líðan og því er mikilvægt að það sé sem hollast og fjölbreyttast. Eldra fólki, sem er við góða heilsu og hreyfir sig daglega, hæfir yfirleitt almennt fæði þar sem tekið er mið af ráðleggingum Lýðheilsustöðvar-manneldisráðs. Hætta á næringarskorti eykst ef matarlyst minnkar, hvort heldur er vegna líkamlegra eða geðrænna sjúkdóma. Þá þarf að gera sérstakar og oft einstaklingsbundnar ráðstafanir. Orkuþörf minnkar með aldrinum, aðallega vegna vöðvarýrnunar og minni hreyfingar. Þörf fyrir vítamín, steinefni, prótein og trefjaefni minnkar hins vegar ekki að sama skapi. Því þurfa öll næringarefni að vera til staðar í minni fæðuskömmtum. Hér eru almennar ráðleggingar sem henta heilbrigðu eldra fólki. Aðrar ráðleggingar geta gilt fyrir þá sem þjást af ýmsum sjúkdómum (t.d. sykursýki tegund 1 eða 2, tyggingar- eða kyngingarvandamál, háþrýstingi, næringarskorti o.fl.). Best er þá að fá ráðleggingar um næringu á næstu heilsugæslustöð. Vökvi - Mikilvægt að drekka vel af vökva yfir daginn. Þorstatilfinning minnkar með aldrinum en þörfin fyrir vökva minnkar ekki að sama skapi. Því er mikilvægt að drekka vel af vökva yfir daginn samtals um tvo lítra á dag, t.d. 3-4 glös af vatni, 2 glös af fituminni mjólk, ef til vill 1 glas af hreinum ávaxtasafa og kaffi eða te. Meiri trefjar í fæðunni - Hreyfingarleysi ásamt skorti á trefjaefnum og vökva veldur því að margir aldraðir eiga við hægðatregðu að stríða. Ýmsir sjúkdómar og lyf auka enn frekar á þennan vanda. Hægt er að auka trefjaneyslu með því að: Borða meira af grænmeti og ávöxtum - Mikilvægt er að grænmeti eða ávextir séu hluti af hverri máltíð. Hægt er að velja þurrkaða ávexti sem hluta af magninu yfir daginn. Borða meira af grófum brauðum og öðrum trefjaríkum kornmat t.d. hýðishrísgrjón og heilhveitipasta, en minna af sætabrauði, kexi, kökum og sælgæti. Fituminni mjólkurvörur. Ráðlagt er að fá sér tvö glös/diska/dósa af fituminni mjólk eða fituminni sýrðum mjólkurvörum daglega til að uppfylla þörf fyrir kalk. Fituminni mjólkurvörur eru t.d. léttmjólk, fjörmjólk, undanrenna, létt AB-mjólk og sýrð léttmjólk. Ostur getur komið í stað mjólkur að hluta til. Þeir sem ekki drekka mjólk geta tekið kalktöflur. Þorskalýsi daglega - Ein barnaskeið (10 ml) veitir ráðlagðan dagsskammt af D-vítamíni. Fiskur - Æskilegt er að fiskur sé á borðum sem aðalréttur a.m.k. tvisvar sinnum í viku, helst oftar. Gott er að velja bæði feitan (t.d. lax, bleikju) og magran fisk (t.d. ýsu, þorsk). Ferskt kjöt – Veljið ferskt kjöt fram yfir unnar kjötvörur, farsvörur, saltkjöt og reykt kjöt (hakkað kjöt telst fersk vara sem og frosið kjöt). Matarolía – Notið frekar matarolíu við matseld í stað smjörs eða smjörlíkis til að minnka neyslu á mettaðri fitu. Salt – Borðið minna af tilbúnum söltuðum vörum svo sem pakkasúpum og sósum. Notið minna salt við matargerð og borðhald en notið þess í stað önnur krydd sem ekki innhalda salt.

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.