Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Page 30
30 FÖSTUDAGUR 18. APRfL 2008 Helgarblað PV STJÓR AN DSTAÐAN HAFÐIBETU R Spennan í hámarki Keppendur i spurningakeppninni hlusta meö andakt á spurningalestur Lýös Árnasonar. STÍíFMMÓl m VW W'étl: Allt ætlaði vitlaust að verða þegar Rúnar Júlíusson steig óvænt á svið með Bjartmari Guðlaugssyni á stefnu móti DV við íbúa á Suðurnesjum á föstudag. Atli Gíslason og Grétar IVIar Jónsson unnu spurningakeppni. Verð- laununum var ánafnað til Erlings Jónssonar sem heldur úti forvarna- og meðferðarstarfi í Reykjanesbæ. Þétt setið Fjöldi fólks var saman kominn á Ránni í Keflavík á stefnumóti DV við Suðurnesjamenn. Lykilatriðið er að vera ekki að beina grun að þröngum hópi fólks, eins og hefð er fyrir á sumum fjölmiðlum. Með því að nafngreina eru öll tví- mæli tekin af." Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri DV.is, mætti því næst og kynnti vefiít- gáfu DV fyrir hópnum. „jafnvel þótt dagblöð eigi framtíð fyrir sér, eins og staðan er í dag, er skylda okkar við lesendur sú að birta nýjustu fféttir á vefnum, sem verður sífellt mMvægari dreifingarleið," sagði Þórarinn. Bjartmar og Rúnar á sviðinu f lok kvöldsins tók svo Bjartmar Guðlaugsson lagið fyrir gesti, sem fögnuðu ákaft. Öllum að óvörum steig svo Rúnar Júlíusson á svið og tók lagið „Ég er ekki alki" með Bjartmari. Fagnaðarlátum ædaði varla að linna og gestir hrúguðust á dansgólfið. Rúnar var heiðurs- dómari í spurningakeppninni, sem leidd var af Lýði Árnasyni, lækni frá Flateyri. Bjartmar Guðlaugsson hef- ur verið þátttakandi í stefnumót- um DV við fólk um land allt í vet- ur. Stefnumótin eru hluti af aukinni þjónustu við lesendur blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins. Leiðangur- inn hófst með sérblaði um Vestfirði í haust og fjölmennu stefnumóti í Edinborgarhúsi á ísafirði. Nær jól- um lá svo leiðin á Austfirðina. Nú eftir áramótin hafa svo komið út sérblöð um Norðurland og Suð- urland. Stefnumótahrinunni lýk- ur svo með spurningakeppni milli tveggja stigahæstu liðanna. Þá verður ein milljón króna í pottin- um, sem einnig mun renna til góð- gerðarmála. sigtryggur@dv.is Lið stjórnarandstöðunnar, skip- að þeim Grétari Mar Jónssyni og Atla Gíslayni, rétt marði stjórnar- lið þeirra Guðnýjar Hrundar Karls- dóttur og Bjarlár Guðjónsdóttur í spurningakeppni á stefnumóti DV við Suðurnesjamenn síðastliðinn föstudag. Jafnt var á með liðunum í gegnum keppnina, þrátt fyrir, eða kannski vegna öflugrar aðstoðar frá fjölmennum áhorfendaskaranum.’ Verðlaununum, eitt hundrað þúsund krónum, ber sigurliðinu að ánafna til góðgerðarmála á svæð- inu. AUi og Grétar tóku strax þá ákvörðun, í nafni góðrar samvinnu, að Guðný Hrund og Björk skyldu fá að velja verkefni til að styrkja. „Við höfðum ákveðið að hann Erling- ur Jónsson, sem barist hefur öml- lega fyrir meðferðarstarfi hérna í bænum, skyldi njóta góðs af," sagði Björk. „Við höfðum einmitt ákveðið það sama," bætti þá Grétar Mar við. Forvarnastarf á Reykjanesi Erlingur Jónsson, sem fær verð- launaféð að styrk, hefur upp á eig- in spýtur unnið að forvarnarmálum á Suðurnesjum. í september í fyrra hleypti hann af stokkunum göngu- deildinni Lundi í samstarfi við SÁÁ. í Lund geta þeir sem glíma við áfeng- is- og vímuefnavanda komið og sótt sér ráðgjöf og aðstoð. Þangað geta einnig óvirkir neytendur sem og að- standendur leitað. Styrkurinn kemur sér að líkind- um vel því Erling dreymir um að geta aukið umfang starfseminnar. „Við erum núna með einn dag í viku, en það er bara ekki nóg. Ég vil vera með fjölskyldunámskeið, foreldra- námskeið, batanámskeið, og fleira en það er einfaldlega ekki hægt í þessu húsnæði sem við erum í núna. Við erum að vinna í að fá ann- að húsnæði sem gæfi okkur meiri möguleika og ég vonast til að hægt verði að ganga frá þeim málum næsta haust. Kostnaðurinn mun þá aukast með meiri þjónustu en við lítum meðal annars til rflasins með að koma til móts við okkur." Erlingur var valinn maður ársins 2007 af Vík- urfréttum. Stefna blaðsins Áður en spurningakeppnin hófst stiklaði Reynir Traustason, annar ristjóra DV, á stóru um ristjórnar- stefnu DV. Hann ræddi við gesti um hrakfarir blaðsins í upphafi ársins 2006, þegar lesendur beinlínis höfn- uðu blaðinu vegna framsemingar frétta. „Við munum halda áfram að vera ágengur fréttamiðill en bæði núna og framvegis munum við allt- af nálgast viðfangsefni okkar af virð- ingu," sagði Reynir. Hann var því næst spurður út í þá stefnu blaðsins að nafngreina þá sem birtast í frétt- um blaðsins. „Það er stefna okkar að nafngreina alla eftir fremsta megni. Ég er viss um að ég veit það „Hvað átti Morgunblaðið upphaflega að heita," spurði Lýður. Svarið barst úr salnum,„Dagblaðið". Ekkert gefið eftir Bjartmar Guðlaugsson tók nokkur lög að venju. Rúnar Júlíusson lagði honum lið við frábærar undirtektir. Dómsvaldið Rúnar JúKusson heiðursdómari og Elín Ragnarsdóttirfara yfir stigin. Góður sprettur Atli Gíslason, þingmaður vinstri-grænna, spratt úr sæti sínu og lét klingja í glasinu í bjölluspurningunum. DV-myndir Sigtryggur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.