Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2008, Blaðsíða 32
10 FÖSTUDAGUR 18. APRlL 2008 Helgarblað DV Erlingur Jónsson fékk sigurverðlaunin í spurningakeppni DV í Reykjanesbæ sem fór fram um síðustu helgi undir yfirskriftinni Stefnumót DV Stjórnar- og stjórnarandstöðuþingmenn kepptu og ánöfnuðu Erlingi sigurverðlaunin. Það voru þau Atli Gíslason og Grétar Mar Jónsson, Guðný Hrund Karlsdóttir og Björk Guðjónsdóttir Þeir tveir fyrrnefndu báru sigur úr býtum en bæði liðin voru sammála um að Erlingur væri best að hundrað þúsund kallinum kominn. Erlingur hefur unnið ötult forvarnastarf á Suðurnesjum sem sífellt vindur upp á sig. Það voru mjög svo persónulegar ástæður fyrir því að Erlingur fann hjá sér þörf til starfsins. Hann er sjálfur óvirkur alkóhólisti ásamt því að sonur hans og dóttur hafa glímt við flknina. „Ég hef nú verið edrú í tvö og hálft ár. Sonur minn var í neyslu í tíu ár en hefur nú verið edrú í eitt ár. Dótt- ir mín leiddist inn á þessa braut líka en er nú edrú og hefur verið það í tvö ár." Erlingur segir forvarnastarfi hafa verið ábótavant í Reykjanesbæ. Alla eftirmeðferð hafa íbúar á svæð- inu þurft að sækja til Reykjavíkur. „Ég fann það á fólki að það latti það til þess að vinna áfram í sínum málum. Margir eru aukþess próflausir og eiga því ekki auðvelt með að skjótast til Reykjavíkur." Erlingur tók því ráðin í sínar hendur í góðu samstarfi við SÁA sem og bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ. Hann stofnaði forvarnaféíagið Lund 11. júní í fyrra. „Við byrjuðum 3. sept- ember með fyrstu tímana í ráðgjöf og í forvarnafræðslu. Þetta var alfarið að mínu frumkvæði." Fyrir framtakið var Erlingur kosinn maður ársins 2007 á Suðurnesjum. „Það hefur hjálpað mér mikið að kynna starfið og sýnir jafnframt hversu þörfin er mikil." Mikilvægt að viðurkenna vandann Sonur Erlings býr í Reykjavík í dag og vinnur í gistískýlingu á Þingholts- stræti. „Þar hlúir hann að rónum bæjarins." Það kann að skjóta skökku við að fýrrverandi fíkill vinni innan um virka fíkla en að sögn Erlings hef- ur það frekar styrkt hann heldur en hitt. Árangurinn af starfi Erlings er ótvíræður. Það hefur hann meðal annars fengið staðfest frá SÁA en þar hefur fólki frá Suðurnesjum fjölgað síðan Lundur var stofnaður. „Fíkn- inni fylgir ákveðin skömm og því er alltaf hvetjandi þegar einhver stígur fram og viðurkennir vandann." Verkefnið vindur upp á sig í byrjun júní flytur starfsemi Lund- ar í nýtt húsnæði. Erlingur fagnar því enda getur hann bætt þjónustuna umtalsvert. „Þetta er búið að vinda T> flldlll ... Erlingur og hópurinn Mikið af ungum krökkum leggurstarfi Erlings lið. Flestir þeirra hafa átt við vimuefna M vanda að stríða, þó ekki allir. svo mikið upp á sig. Þetta átti ekkert að verða svona stórt." Að sögn Erlings skiptir miklu máli í öllu forvarnastarfi að fólk greini frá sinni persónulegu reynslu. Það hef- ur mun meiri áhrif. „Ég er búinn að skrifa í Víkurfréttur í tæp tvö ár. Þar hef ég sagt sögu mína og barnanna minna. Börnin hafa líka komið með mér í skólana og sagt sögu sína. Fyrir utan okkur fjölskylduna er stór hóp- ur af krökkum sem fer í gagnfræði- skóla og segir sína sögu," segir Er- lingur. Hópurinn hefur þegar farið í alla skóla á Suðurlandi og líka eitt- hvað á höfuðborgarsvæðinu. „Það vilja alltaf fleiri og fleiri vera með. Við höfum líka farið í fýrirtæki. Alls stað- ar þar sem tíu til tuttugu manns eru erum við tílbúin að tala." Hugsjónamaður Erlingur er drifinn áfram af hug- sjóninni einni saman og enn sem BROT ÚR BLOGGFÆRSLU ERLINGS JÓNSSONAR. SKRIFUÐ ÞRIÐJUDAGINN 20. MARS 2007. Ég er til dæmis einn af þeim sem hafa gert sjálfa sig að fífli og asna í mörg ár og látið það viðgangast, þannig hef ég hjálpað syni mínum að sökkva dýpra og verða veikari og veikari og má bara þakka fyrir að hann skuli vera á lífi, ef hægt er að kalla það líf sem hann lifir. Af því að ég kunni ekki og gat ekki tekið rétt á þess- um málum. Svo meðvirkur og veikur var ég orðinn. Það er alveg ótrúlegt hvað maður getur verið blind- ur á sína nánustu. Aðrir sjá þetta og benda manni á þetta en samt vildi maður ekki trúa því að þetta væri svona slæmt og hugsaði að þetta færi allt að lagast. Þvílík heimska og afneitun. Það er sko ekkert grín að vera meðvirkur aðstandandi og vera jafnvel sjúkur líka. Maður verður eins og hann, fer að ljúga, afsaka, koma skilaboðum áleiðis fyrir hann, fara á bak við allt og alla og vera einfaldlega óheiðarlegur og ómerkileg- ur. f svona ástandi gleymast oft aðrir sem þarf að hlúa að og dragast jafnvel inn í þennan vítahring líka. Ef manni líður ekki illa út af svona löguðu veit ég ekki hverju manni á að líða illa yfir. Kveöja Erlingur Jónsson komið er vinnur hann aðra vinnu með starfinu. „Þetta er samt orðið ansi mikið þannig að það er spurn- ing hvað fer að gerast í þeim efnum." Að matí Erlings er mikilvægast í þessu öllu að halda umræðunni á loftí. Áður en hann fór af stað með verkefnið var farið í skóla einu sinni á ári og svo fjaraði umræðan út. „Það er mjög mikilvægt í þessu öllu saman að ná til foreldranna. Það eru í raun- inni aðstandendur sem hjálpa fólki að vera miklu lengur í neyslu. Þeir verða svo meðvirldr án þess að gera sér grein fyrir því Foreldrar hjálpa fíklum Sjálfur er Erlingur engin und- antekning hvað meðvirka aðstand- endur varðar. „Ég hjálpaði stráknum mínum að vera mörg ár ( neyslu. Ég var svo meðvirkur. Ég hjálpaði hon- um tíl dæmis að borga skuldir sínar, skudaði honum hingað og þangað og sótti um vinnu fyrir hann. í rauninni er þetta aðstoð við að hjálpa fíklum við að komast undan því sem þeir þurfa að gera." Erlingur lýsir því að á meðan virkur fíkill er á heimilinu er hætt við því að aðrir á heimilinu gleymist. Þetta er sérstaklega hættu- legt þegar yngri systkini eiga í hlut. „Það snýst allt um hinn veika. Hin- ir gleymast. Þegar svo yngri börnin komast á unglingsaldurinn og taka upp fyrsta glasið er hætt við því að þau dettí sjálf inn í þennan pakka. Þau eru búin byrgja svo mikið inni." Foreldrar verða að leita hjálpar Erlingur segir að fyrsta skref for- eldra fíkla sé að þeir leití sér sjálfir hjálpar og fái ráðgjöf um sjúkdóm- inn. Mikilvægasta reglan er að segja nei og standa við það. Sumir kjósa að loka alveg á börnin en það er þó oft- ast síðasta úrræðið. „Fólk tekur rangt á sjúkdómnum þar tíl það leitar sér hjálpar. Þetta er eins og í flugvél. Þar eiga foreldrar fyrst að setja súrefnis- grímuna á sjálfa sig og svo á börnin. Annars geta þeir ekki hjálpað barn- inu." Eftir að Erlingur kom sjálfur úr meðferð fann hann að viðhorf sitt tíl sonar hans hafði breyst. „Ég kall- aði hann í kjölfarið á minn fund og sagði honum hvað var að gerast hjá mér og hvernig mér liði með þetta allt saman. Ég sagði honum hreint
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.