Peningamál - 01.02.2014, Síða 16
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
4
•
1
16
2013 en gert var ráð fyrir í nóvemberspánni. Þá var spáð 1%
fjölgun heildarvinnustunda frá fyrra ári en í reynd fjölgaði þeim
um 4,3%. Eins og undangengna ársfjórðunga skýrist meiri fjölgun
en spáð var af fjölgun starfandi fólks (4,6%) en meðalvinnutími
styttist um 0,4%. Þótt fjölgun heildarvinnustunda á árinu öllu
skýrist nánast algerlega af fjölgun starfandi fólks (3,4%) jókst
meðalvinnutími um 0,3% milli ára en hann hafði dregist saman
um 0,6% á árinu 2012. Á árinu 2013 fjölgaði heildarvinnustund-
um því um 3,7% en það er sama fjölgun og var á árunum 2005
og 2007.
• Allir aðrir mælikvarðar á eftirspurn og framboð vinnuafls þróuðust
í sömu átt á síðasta ári. Hlutfall starfandi af heildarvinnuafli jókst
um 1,4 prósentur milli ára, atvinnuþátttaka jókst um 0,9 prósentur
og fólki utan vinnumarkaðar fækkaði um 3,3%.
• Á síðasta fjórðungi ársins 2013 fluttu fleiri til landsins en frá því,
fimmta fjórðunginn í röð. Í fyrsta skipti frá falli bankakerfisins
fluttu því fleiri til landsins en frá því á árinu í heild eða sem nemur
0,9% af vinnuaflinu. Nettófjölgunin stafar eingöngu af fjölgun
erlendra ríkis borgara, sem styður við aðrar vísbendingar um aukna
eftirspurn eftir vinnuafli.
• Niðurstöður könnunar Capacent Gallup, sem var framkvæmd í
nóvember og desember sl. meðal 400 stærstu fyrirtækja landsins,
benda til þess að vinnuaflseftirspurn gæti aukist hægar á fyrri
helmingi þessa árs en í fyrra. Samkvæmt könnuninni vildi svipaður
fjöldi fyrirtækja fækka starfsfólki og fjölga því í nóvember 2013 en
í tveimur könnunum sem framkvæmdar voru á fyrri hluta ársins
vildu um 10% fleiri fyrirtæki fjölga starfsfólki en fækka því.
• Í uppfærðri spá er gert ráð fyrir svipaðri fjölgun heildarvinnustunda
og í síðustu spá eða tæplega 1% fjölgun. Horfur fyrir næstu tvö ár
eru einnig svipaðar og í nóvember og er spáð um 1% fjölgun að
meðaltali á spátímanum.
• Atvinnuleysi samkvæmt skrá Vinnumálastofnunar (VMST) var
heldur minna en gert var ráð fyrir í síðustu spá Seðlabankans á
síð asta fjórðungi síðasta árs. Árstíðarleiðrétt atvinnuleysi var 4,1%
á fjórð ungnum samkvæmt VMST en 5,3% eins og það mælist í
Vinnumarkaðskönnun (VMK) Hagstofu Íslands.5 Á mælikvarða
VMST hafði atvinnuleysi minnkað um 1,1 prósentu frá sama tíma
árið áður en um 0,2 prósentur samkvæmt VMK. Eins og búast
mátti við var atvinnuleysi því einnig heldur meira á mælikvarða
VMK á síðsta ári (5,4%) en VMST (4,4%) þar sem tímabundið
ákvæði um lengingu bótaréttar úr þremur í fjögur ár var ekki
framlengt fyrir síðasta ár en VMK tekur einnig þá með sem hafa
misst bótarétt.
• Áfram má gera ráð fyrir að skráð atvinnuleysi mælist eitthvað
minna en samkvæmt tölum VMK á þessu ári. Spáð er að skráð
5. Samkvæmt skilgreiningu VMK eru þeir sem þegar hafa fengið vinnu en eru ekki byrjaðir
að vinna atvinnulausir. Atvinnuleysi samkvæmt VMK var 5% án þeirra sem höfðu þegar
fengið vinnu sem ekki var hafin.
1. Árstíðarleiðréttar tölur. 2. Fjöldi starfandi sem hlutfall af mannfjölda
15-64 ára. 3. Fjöldi atvinnulausra sem hlutfall af vinnuafli 15-64 ára
(alþjóðlega samræmdur mælikvarði OECD).
Heimildir: Hagstofa Íslands, OECD, Seðlabanki Íslands.
Mynd 28
Hlutfall starfandi og atvinnuleysi1
1. ársfj. 2007 - 3. ársfj. 2013
% af mannfjölda 15-64 ára
Ísland Bandaríkin Evrusvæðið
OECD-ríki
Hlutfall starfandi2 Atvinnuleysishlutfall3
% af mannafla
60
65
70
75
80
85
90
2
4
6
8
10
12
14
‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd 29
Fólksflutningar
Fjöldi (þús.)
Aðfluttir erlendir ríkisborgarar umfram brottflutta
Aðfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram brottflutta
Aðfluttir umfram brottflutta
‘90 ‘95 ‘00 ‘05 ‘10 2012 2013
-6
-4
-2
0
2
4
6
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd 27
Breytingar á atvinnu og vinnutíma
1. ársfj. 2004 - 4. ársfj. 2013
Breyting frá fyrra ári (%)
Fjöldi starfandi
Meðalvinnutími
Heildarvinnustundir
-15
-10
-5
0
5
10
‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04