Glóðafeykir - 01.11.1971, Blaðsíða 42
42
GLÓÐAFEYKIR
Tæpu ári síðar varð hann að leggjast á sjúkrahús, þrotinn að kröft-
um. Þar var hann viðurloða til hinztu stundar.
Tryggvi á Hofdölum, en svo var hann jafnan kallaður, var góður
meðalmaður á vöxt, vel limaður, eigi andlitsfríður, en bauð af sér
hinn bezta þokka og vandist hverjum manni vel. Enginn var hann
áhlaupamaður, en frábærlega drjúgvirkur og einstakur athyggju-
maður um allt, er að búi laut. Hann var greindur maður, hógvær
og prúður og hélt sér lítt fram, jafnlyndur, trygglundaðui og hjarta-
hiýr. Hann var fremur glaðlegur í viðmóti og gat stundum brugðið
fyrir sig kímni í orðum og tilsvörum. Góðviljaður var hann og greið-
vikinn, tók vel á móti gestum sínum og gleymdi þá ekki að velja
hestum þeirra beztu tugguna. Lýsir það manninum nokkuð. Hann
var trúaður maður, vandaður um alla hluti og mátti í engu vamm
sitt vita.
Árný Jónsclóttir, húsfreyja á Sauðárkróki, lézt 28. apríl 1961. Hún
var fædd að Illugastöðum á Laxárdal ytra 1. janúar 1887, dóttir fóns
hónda á Borgarlæk á Skaga, áður í Vaglagerði í Blönduhlíð, jóns-
sonar bónda í Vaglagerði, Sveinssonar, og
konu hans Maríu Sölvadóttur bcinda í
Hvammkoti á Skaga, Sölvasonar. Kona
Sölva í Hvammkoti og nróðir Maríu var
María Jónsdóttir bónda á Kleif á Skaga.
Arný fluttist ungbarn með foreldrum sín-
um að Borgarlæk, og þar lézt faðir hennar
3. apríl 1890, er hún var þriggja ára gömul.
Leystist þá heimilið upp, sem eigi var ótítt
á þeim árum, ef heimilisföðurins missti við.
Fór Árný þá til Helgu Sölvadóttur, móður-
systur sinnar, er síðar og lengst var á Upp-
sölum í Blönduhlíð. Með lienni var hún til
12 ára aldurs, er hún fór til annarrar frænku sinnar, Ingibjargar
Halldórsdóttur, húsfr. á Geirmundarstöðum í Sæmuudarhlíð (sjá
næsta þátt); var þá móðir hennar önduð fyrir 5 árum. Eftir ferm-
ingaraldur mun hún hafa verið í vist allt til fullorðinsára, bæði
frammi í sveit og einnig á Sauðárkróki.
Arið 1910, hinn 20. maí, gekk Árný að eiga Agnar búfræðing Bald-
vinsson Bárðdals kennara Baldvinssonar og konu hans Guðrúnar
Jónsdóttur frá Þórisstöðum á Svalbarðsströnd, ágætan mann. Reistu
þau þegar bú að Vöglum í Blönduhlíð, en fluttu eftir 2 ár að Litla-
Arný Jónsdóttir