Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 43
GLÓÐAFEYKIR
43
dal í sömu sveit og bjuggu þar til 1925, er þau brugðu búi og fóru
í húsmennsku að Flugumýri; til Sauðárkróks fluttust þau 1929 og
áttu þar heima æ síðan. Agnar lézt 2. des. 1947, 62 ára gamall.
Börn þeirra hjóna eru 4: Jón, forstöðum. Löggildingarstofunnar
í Reykjavík, Ingólfur, kaupm. á Sauðárkróki, Skarphéðinn, verkam.
og Guðbjörg, húsfr., bæði í Reykjavík.
Arný Jónsdóttir var í meðallagi á vöxt, mikil fríðleikskona. Alla
ævi lifði htm kyrrlátu lífi, helgaði krafta sína heimilinu, eiginmanni
sínum og börnum. Fátæk var hún jafnan, en lítil efni blessuðust svo
í höndum hennar, að ávallt var hún fremur veitandi en þiggjandi.
Hún var prýðilega greind, trúhneigð og alvörugefin, hógvær og
stillt, hlý í geði, aðgætin og orðvör, hallmælti engum manni, en
færði allt á betra veg. Hún var ein þeirra hógværu og hljóðlátu
mætiskvenna, sem til þess eru kjörnar að varpa mildu skini logn-
biarmans á brautir samferðamanna.
j
Ingibjörg Halldórsdóttir, fyrrum húsfreyja á Geirmundarstöðum
í Sæmundarhlíð, lézt þ. 4. maí 1961, níræð að aldri. Hún var fædd
að Miðhúsum í Alftaneshreppi á Mýrum 13. marz 1871 fsamkv.
kirkjubók; sjálf taldi hém fæðingardag sinn
13. maí, og svo gera afkomendur hennar).
Var faðir hennar Halldór smiður, síðast á
Geirmundarstöðum, Björnsson, bónda á
Hvalnesi á Skaga og Sævarlandi á Laxárdal,
Halldórssonar bónda á Sævarlandi, Björns-
sonar. Móðir hennar og kona Halldórs var
Margrét Sölvadóttir bónda á Steini á
Reykjaströnd, Ólafssonar, og konu hans
Maríu Jónsdóttur bónda á Breiðströndum
í Gönguskörðum, Jónssonar. Ólst Margrét
Sölvadóttir upp hjá séra Benedikt Björns-
syni á Fagranesi á Reykjaströnd og konu
hans Ingibjörgu Jónsdóttur, fluttist með þeim að Hvammi í Norður-
árdal syðra og mun hafa verið þar unz hún giftist Halldóri, en hann
hafði einnig horfið suður um heiðar, stundaði smíðar um Borgar-
fjörð og Mýrar og í Reykjavík einnig, fór síðar til Ameríku, en kona
hans varð eftir heima og lézt nokkru síðar.
Ingibjörg hvarf norður hingað eftir lát móður sinnar og fyrst að
Stóra-Vatnsskarði til Salbjargar móðursystur sinnar og Sigurðar
manns hennar, bónda þar. Arið 1892 gekk hún að eiga Sigurð, son
tngibjörg Halldórsdóttir