Glóðafeykir - 01.11.1971, Page 45
GLÓÐAFEYKIR
45
til Sauðárkróks. Þar stundaði Guðmundur daglaunavinnu allmcirg
ár. Aftur hófu þau hjón búskap í sveit og bjuggu að Stapa í Tungu-
sveit 1944—1947, en fluttu þá aftur til Sauðárkróks og áttu þar heima
upp þaðan. Höfðu búskap nokkurn þar á
Króknum fyrstu árin, en jafnframt stundaði
Guðmundur ýmsa vinnu, þá er til féllst.
Upp á síðkastið var hann heilsuveill og
þoldi ekki erfiðisvinnu. Nokkur síðustu ár-
in var hann bæjarpóstur.
Konu sína missti Guðmundur árið 1956.
Börn þeirra hjóna voru 7, þau er upp kom-
ust: Guðrún, síðar húsfr. í Litluhlíð í Vest-
urdal, látin, Jóhann, bóndi í Stapa, Anna
Sigurbjörg, húsfr. á Skagaströnd, Þorgerð-
ur, bús. á Skagaströnd, Jón, bóndi á Ós-
landi í Óslandshlíð, Oddrún, 'húsfr. í
Reykjavík og Sigurður, guðfræðinemi, (nú prestur á Reykhólum).
Guðmundur frá Stapa var einn af 9 börnum fátækra foreldra og
alinn upp við kröpp kjör. Fátækur var hann og sjálfur alla ævi, enda
á hrakhólum fram yfir miðjan aldur; komst þó sæmilega af. Og eigi
lét hann fátækt fyrir standa gestrisni og greiðasemi og einstakri
hjálpfýsi.
Guðmundur Jónsson var í hærra lagi, grannvaxinn, holdskarpur,
dökkur á yfirbragð en varð snemma hvítur á hár. Hann var greindur
vel og hagmæltur, þótt fáir vissu. Hann var skapríkur maður og ein-
lyndur nokkuð, stilltur vel og hægur í umgengni, hreinn og beinn
og bersögull á stundum, en fráhverfur öllum yfirdrepskap og hræsni,
trygglyndur og vinfastur, vildi að fullu launa og vel það hvern
greiða, sem honum var sjálfum gerr.
Friðbjörg Halldórsdóttir, húsfr. á Víðimýri, lézt þ. 18. ágúst 1961.
Hún var fædd að Stóra-Dunhaga í Hörgárdal 20. maí 1882. Voru for-
eldrar hennar Halldór bóndi í Stóra-Dunhaga Halldórsson, Stefáns-
sonar bónda í Hallfríðarstaðakoti, Jóhannessonar, og síðari konu
hans Lilja Daníelsdóttir bónda í Spónsgerði.
Tveggja ára fór Friðbjörg í fóstur til hálfsystur sinnar, Sæunnar
Jónsdóttur, og eiginmanns hennar Sigurðar Jónssonar, er þá bjuggu
á Sólborgarhóli í Kræklingahlíð. Með þeim hjónum mun hún svo
hafa flutzt hingað vestur að Sólheimum í Blönduhlíð 1898; fór alda-
mótaárið að Silfrastöðum og var þar 6 ár, þaðan aftur að Sólheimum.
Guðmundur Jónsson