Glóðafeykir - 01.11.1971, Síða 46
46
GLÓÐAFEYKIR
Arið 1910 gekk Friðbjörg að eiga Gunnlaug Guðmundsson á Ulfs-
stöðum, Jónssonar bónda á Fagranesi í Öxnadal, Arnfinnssonar, og
konu hans Lilju Sigurðardóttur, alsystur Sigurðar bónda á Skriðu-
landi í Kolbeinsdal, Gunnlaugssonar. Ári
fyrr (1909) höfðu þau farið að búa í Djúpa-
dal í Blönduhlíð, en fóru svo búferlum að
Ytri-Kotum í Norðurárdal 1910 og bjuggu
þar til 1924, þá 1 ár á Uppsölum, 1 ár í Sól-
heimagerði, þá á Grófargili 2 ár og á ípis-
hóli 5 ár. Fluttu búferlum að Bakka í
Hólmi 1933. Þar deyr Gunnlaugur 6. maí
1938, en Friðbjörg býr áfrarn á jörðinni til
1941; fer þá í húsmennsku að Syðra-Vall-
holti 1 ár, en 1942 flytst hún með Jóhanni
syni sínum að Víðimýri og fyrst í hús-
mennsku, en árið 1943 fær Jóhann jörðina
til ábúðar og er hún síðan bústýra hjá honum til æviloka.
Börn þeirra hjóna voru 5: Halldór, látinn, Lilja, bústýra í Ás-
hildarholti í Borgarsveit, Kristín, húsfr. í Geldingaholti, Jón, bílstj.
á Akranesi og Jóhann, bóndi á Víðimýri.
Friðbjörg Halldórsdóttir var í góðu meðallagi á vöxt, gervileg
kona, myndarleg og vel gefin. Hún var „hógvær en ákveðin í fram-
komu, stjórnsöm á heimili, hagvirk og að öllu vel verki farin.“ Ríkur
þáttur í fari hennar og beggja þeirra hjóna var greiðvikni og gest-
risni og mun margur hafa notið þess, sá er leið átti um Öxnadals-
heiði þau árin, er Jrau hjón bjuggu á Ytri-Kotum. Lítt voru þau hjón
efnum búin fyrstu búskaparárin, en fyrir frábæran dugnað og hag-
sýni voru þau orðin vel stæð við leiðarlok.
Stefán Stefdnsson, bóndi á Hofstöðum, lézt þ. 24. ágúst 1961.
Fæddur var hann á Svaðastöðum 18. des. 1885. Var faðir hans Stefán.
síðar bóndi á Þverá í Blönduhlíð, Sigurðsson, bónda í Gilhagaseli,
Sigurðssonar bónda á Mosfelli í Svínadal, Þorleifssonar; átti hann
Stefán áður en hann giftist. Móðir Stefáns (yngra) var Theodóra
Guðmundsdóttur, vinnum. á Felli í Sléttuhlíð, og kouu hans Mar-
grétar Magnúsdóttur, rnikil myndarkona sem og bæði þau foreldrar
hans.
Nokkurra vikna gamall fór Stefán í fóstur til hjónanna Sölva
Kristjánssonar og Sigurbjargar Guðmundsdóttur í Hornbrekku á
Höfðaströnd og dvaldist þar áratug, fór þá að Brimnesi í Viðvíkur-
Friðbjörg Halldórsdóttir