Glóðafeykir - 01.11.1971, Page 65

Glóðafeykir - 01.11.1971, Page 65
GLOÐAFEYKIR 65 hneigður, skýr í hugsun, glaðlyndur, gamansamur og kíminn í bezta !agi, fór þó dult með. Hann var geðfelldur maður í umgengni, óhlut- samur, unni öllum góðs og vildi engan mann særa; mun og enga hafa átt óvildarmenn, enda hvarvetna aufúsugestur. Barnslundina rarðveitti hann með sjálfum sér alla ævi, enda löðuðust börnin að honum, fögnuðu honum, hvar sem hann kom, og léku sér við hann sem jafningja. Það var gagnkvæmur leikur. Sigvaldi var lengstum ævinnar heilsuveill, einkum síðari árin, og þoldi illa áreynsluvinnu. Á Sauðárkróki hafði hann jafnan nokkurn búnað, átti kindur, heyjaði handa þeim á sumrin og hirti um vetur, en stundaði annars algenga vinnu; var talinn góður verkmaður og kom sér hvarvetna vel. Sveinn Sigurðsson, fyrrum bóndi í Bakkakoti í Vesturdal o. v., lézt hinn 25. okt. 1962. Hann var fæddnr á Hólum í Hjaltadal 4. maí 1872. Foreldrar: Sigurður, bóndi á Yztu-Grund í Blönduhlíð, Jóns- son, bónda á Steinhóli í Flókadal, jónsson ar, og kona hans Sigurlaug Sveinsdóttir, bónda á Minni-Ökrum í Blönduhlíð o. v., Guðmundssonar, og konu hans Margrétar Bjarnadóttur, húnvetnskrar ættar. Sveinn dvaldist í æsku með foreldrum sínum á Yztu-Grund svo og hjá þeim hjón- um Gísla hreppstjóra Þorlákssyni og Sigríði Magnúsdóttur á Hjaltastöðum og síðan á Frostastöðum. Vaxinn maður var hann í lausamennsku á ýmsum stöðum, m. a. á Flugumýri um hríð. Reisti bú á Holi í Tungusveit 1907 og bjó þar til 1909, þá á Giljum í Vesturdal til 1916, brá þá búi og var í húsmennsku á Gilj- um um skeið, bóndi í Sölvanesi 1922—1923, bjó aftur á Giljum 1924 — 1935, færði þá bri sitt að Þorljótsstöðum og bjó þar til 1938, á Gilj- um næstu 2 ár og enn á Þorljótsstöðum með litlum frávikum 1940— 1946, flutti þá búferlum að Bakkakoti og bjó þar til 1948, er hann brá búi. Var þar síðan heimilisfastur hjá syni sínum, en dvaldist nokkur síðustu árin að mestu á sjúkrahúsi og elliheimili. Sveinn var fjármálamaður og vel efnum búinn, umbrotamaður nokkur, hygginn í verzlun og viðskiptum, hafði á stundum stórt bú, stundum minna. Hann hafði ágætt vit á skepnum og manna lagn- astur að hafa af þeim góðar nytjar.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.