Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 4

Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 4
4 GLÓÐAFEYKIR veizlu. Er þessari ósk Magnúsar heitins hér með komið á framfæri, og vill safnsstjóm eindregið taka undir þessi tilmæli hans. — Vísur, sem berast, verða varðveittar undir nafni safnanda. Magnús hafði fengið nokkra vísuhelminga til að botna. Óvíst er þó, að þeir hafi allir komið til skila. Frestur til að skila botnum er til 31. des. 1976. Þátttakendur mega nota dulnefni, ef þeim svo sýnist, en rétt nafn og heimilisfang verður þá að fylgja með í lokuðu umslagi. Og hér eru fyrripartarnir: Úti finn ég ekkert skjól, inni glæður dvína. Þó sindri á lofti sólarglit er svali um fell og ögur. Um kvenréttindi stendur styrr, stefnumót hjá konum. Hvað mun þetta kvennaár konum íslands færa? Stakan lifir alltaf á íslendinga vörum. O Harpan mín er heldur stirð, hreyfi ég sjaldan bogann. Vetur sindrar fjöllum frá, fölna myndir hlíðar. Allt er blátt um land og lón, lifnar máttur þorsins. Aldrei drepur atómljóð alveg ferskeytluna. Botnið þið svo Skagfirðingar, og sendið árangurinn til Héraðs- skjalasafns Skagfirðinga, merkt: Vísnakeppni. K. B.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.