Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 8

Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 8
8 GLÓÐAFEYKIR Lagfœring á hafnaraðstöðu 1976. að vekja og magna tortryggni og ríg og jafnvel hreina óvild milli þessara vinnustétta, sem eiga raunverulega svo margt sameiginlegt og eru báðar saman kjölfesta og grundvöllur íslenzks þjóðfélags“. „Kaupfélögin eru ein um það, að hafa áratugum saman haldið uppi hinni einu og sönnu byggðastefnu, sem til þessa hefur verið framkvæmd á landi hér, þegar undan er skilinn stuðningur vinstri stjórnarinnar við bæi og þorp til að komast yfir myndarlegan fiski- skipastól. „Byggðastefnu" hins opinbera hefur eigi enn orðið mikið vart í sveitum. Þær hafa ekki til þessa notið mikillar náðunar hjá svokölluðum Byggðasjóði, né heldur samvinnufélögin, og er þó eng- um betur trúandi til að hafa hönd í bagga með ráðstöfun opinbers fjár, þannig að almenningi megi verða til sem rnestra nytja, en ein- mitt þeim. . . . Ég efast um, að hér sé mikilla breytinga að vænta í bráð. Það er víst, að enn verða sveitir og sjávarþorp að treysta á eig- in samtakamátt í formi samvinnufélaga. En þá ber að hafa í huga að samvinnufélag, kaupfélag, getur eigi til lengdar orðið fjárhags-

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.