Glóðafeykir - 01.09.1976, Blaðsíða 13
GLÓÐAFEYKIR
13
ingaiðgj. námu 7,9 millj. hækkun 4,3 millj., og raforkukaup 12,4
millj., hækkun 5,1 millj. kr. eða tæp 70%.
Skuldir viðskiptamanna í reikningum hafa hækkað verulega á ár-
inu, eða um 39,5 millj., og eru skuldir um áramót 199,6 millj. kr.
A sama tíma hafa innstæður í viðskiptareikningum hækkað um 46,6
millj., og voru um áramót 147,6 millj. kr. Þetta er annað árið í röð,
sem skuldir eru töluvert hærri en innstæður í viðskiptareikningum,
en hlutfallið er þó ekki óhagstæðara en var um næstu áramót á
undan.
Þessi skuldamál þarf að taka fastari tökum, ef ekki á illa að fara.
Á það ekki síður við um einstaklinginn sjálfan, sem kemst í umtals-
verðar skuldir, sem vandséð er hvernig eiga að greiðast, þrátt fyrir
mikla verðbólgu. Vaxtabyrðin verður líka verulega þung og illvíg,
þegar þannig er komið.
Um áramót voru í Innlánsdeild K. S. 155,3 millj. kr., og hafði
hækkað um 28,8 millj. eða 22,7%; var þar um verul. minni aukn-
ingu að ræða en árið á undan, en þá var hækkunin um 34,9%. . . .
I vetur var talið að væru á fóðrum 63.296 kindur, eða svipað og
veturinn áður. Nautgripir voru taldir vera 4.334 og hafði fækkað
um 300, en hross voru talin 6.769 og hafði fjölgað um 600.
Eins og að undanförnu var slátrað á vegum félagsins bæði á Sauð-
árkróki og í Haganesvík, á Sauðárkróki 63.065 kindum og í Haga-
nesvík 5.912 kindum, eða alls 68.977 fjár, og var það 5.848 kindum
fleira en haustið áður. Meðalfallþungi dilka, að frádreginni vatns-
rýmun, varð 14,819 kg., eða 431 gr. meiri en haustið áður. I Haga-
nesvík var meðalþunginn 15,450 kg. (hækkun 1,190 kg.), en á Sauð-
árkr. 14,742 (hækkun 0,342 kg.).
Kjötinnleggið var alls 1,061 tonn, og hafði aukizt um 122 tn. frá
haustinu á undan. Sláturfé fjölgaði um 9,3%, en kjötmagnið jókst
um 12,8%, og er þar breyting til batnaðar frá f. á.
Uppígreiðsluverð sauðfjárafurða 1975 nam alls 320,4 millj. kr. og
hafði hækkað frá haustinu á undan um 119,8 millj. eða um tæp
60%.
Lógað var 1.085 nautgr., nákvæmlega jafn mörgum og á árinu áð-
ur. Kjötinnleggið 100 tn., eða um 21 tn. minna en árið áður. Lóg-
að var 361 folöldum og hrossum, kjötþunginn 32,6 tn., svipað og
árið áður.
Á sl. ári var heildarinnlegg til Mjólkursamlags Skagf. um 8,9 millj.
kg. mjólkur og hafði minnkað um 366 þús. kg. eða 3,92%. Minnkun