Glóðafeykir - 01.09.1976, Síða 20

Glóðafeykir - 01.09.1976, Síða 20
20 GLÓÐAFEYRIR jafnari og meiri tekjur verkafólks á Sauðárkróki. Jafnframt bygg- ingu sláturhússins 1952, var byggð upp aðstaða til fiskvinnslu, mið- uð við útgerð félagsmanna kaupfélagsins, að vísu vel við vöxt til þeirra hluta. Hinsvegar kom í ljós, þegar möguleikar opnuðust til vinnslu togarafisks og Akureyrartogarar komu í viðskipti, að stækka þurfti vinnsluaðstöðu og fiskmóttöku. Það var gert næstu ár, ásamt byggingu fiskimjölsverksmiðju 1956 og í hana sett bræðslutæki 1957. Vegna breyttra viðhorfa hjá bæjarstjórn Sauðárkróks í sambandi við kaup á eignum Sigurðar Sigfússonar og félaga og reksturs Fiski- vers Sauðárkróks h.f., hætti Sauðárkróksbær samstarfinu um Fisk- iðju Sauðárkróks h.f., frá 15/5 1959 og Kaupfélag Skagfirðinga leysti til sín hlutabréf bæjarins. Eftir það hefur Fiskiðjan verið nánast eins og deild í kaupfélaginu, þó með þeirri sérstöðu að hlutafélagsform- inu var haldið. Rekstursaðstaða hefur smám saman verið bætt, tækjum breytt og vélar keyptar, en húsaskipun að mestu hin sama, þar til endurbygg- ing eða öllu heldur nýbygging sláturhússins var tekin í notkun, að betur var unnt að aðskilja vinnuplássið, sem var að nokkru sameigin- legt, einkum er varðaði snyrtingar og aðra aðstöðu fyrir starfsfólk. Sameiginlegur rekstur aflvélanna liélst þó áfram. Miklar og tíðar sveiflur hafa verið í sambandi við rekstur og af- komu á þessum tuttugu rekstursárum. Auk þeirra breytinga, sem orðið hafa yfir allt landið og tengjast stjórnarfari og markaðsað- stæðum, hafa verið miklar sveiflur í öflun hráefnis. Þegar Utgerðar- félag Akureyringa h.f. hóf rekstur hraðfrystihúss síns, hættu við- skipti við togara þeirra og varð stopult og lítið hráefni til vinnslu næstu árin. Útgerð togarans Norðlendings og togskipsins Skagfirð- ings bættu að vísu nokkuð úr um tíma, en bæði þau útgerðarfélög komust í þrot. Gerðir voru samningar við togskip um upplögn, og margt reynt til þess að fá fisk til vinnslu. Mesta lægð er í hráefnis- öflun árin 1966 og 1967, en þá byggðist vinnslan aðeins á heimabát- unum, sem fengið höfðu veiðileyfi með dragnót og árið 1967 var uppistaðan í ársvinnslunni vinnsla á skarkola frá dragnótabátunum í rúma 4 mánuði. Móttekinn fiskur þetta lélegasta ár var aðeins 489 tonn. Árið 1968 byrjaði Útgerðarfélag Skagfirðinga h.f. starfsemi sína, með rekstri 250 tonna togskips. Svo vel vildi til að afli glæddist fyrir Norðurlandi árin 1968 02: 1969 0? varð árið 1969 mesta framleiðslu- ár frystihússins og auk þess hafði fyrirtækið á leigu hraðfrystihúsið á Hofsósi og hélt þar uppi vinnslu mánuðina rnars til júlí, en eftir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.