Glóðafeykir - 01.09.1976, Page 26
26
GLOÐAFEYKIR
Vísnaþáttur
Arnfriður Jónasdóttir, húsfr. á Þverá í Blönduhlíð, er fædd 12.
nóv. 1905, dóttir Jónasar skálds Jónassonar frá Hofdölum syðri og
konu hans Önnu Jónsdóttur. Er Arnfríður því systir Hólmfríðar
skáldkonu, er vísnaþátt á í 11. h. Glóða-
feykis 1970 svo og hið ágæta upphafskvæði
í síðasta hefti: Ég heilsa þér . . .
Arnfríður er gift Hannesi bónda Stefáns-
syni á Þverá.
Hér fara á eftir nokkrar stökur, er Arn-
fríður hefur varpað af munni fram við ýmis
tækifæri.
G. M.
Tvær vinkonur Arnfríðar, Halldóra
Magnúsdóttir og Guðný Árnadóttir, báðar
þingeyskar, voru um nætursakir á Þverá
sumarið 1971. Þeirn Arnfríði varð skraf-
drjúgt fram eftir nóttu og hugðust sofa út
að morgni. Þó fór svo, að þær Arnfríður og Halldóra vöknuðu eld-
snemma við hurðarskelli og hávaða og vissu eigi hverju sætti. Guð-
ný hafði þá vaknað á undan þeim og heyrt umgang í eldhúsi, talið
víst að húsfreyja væri að hella á könnuna, snarar sér fram heldur
léttklædd en verður hverft við í eldhúsdyrum er hún sér, að það er
bóndinn, sem er að hella á könnuna. „Það var hvellur á kerlu til
baka til að klæða sig. Sat hún svo við kaffidrykkju með bónda mín-
um, er við Halldóra komurn fram. . . En það bezta var, að er þær
voru farnar fann ég náttkjólinn Guðnýjar vöðlaðan saman inni á
snyrtingu. Ég skrifaði henni og lét þessar vísur fljóta með, en fékk
það borgað — með rentu, því að Guðný er hagmælt vel.“
Úr náttkjólnum klæddi sig konan í skyndi
og kom frarn í eldhúsið.
Húsbóndinn var þar að hita kaffi
að heldri manna sið.
Arnfriður Jónasdóttir