Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 40

Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 40
40 GLÓÐAFEYKIR Góður heyfengur. „Það var skakkt af okkur að kyssa hann ekki fyrir samfylgdina," sagði Björg. „Þú hefðir þá orðið að annast þá þjónustu", svaraði Rakel, „þú ert ógift“. Segi eg þá sögu ekki lengri og verður hver að álykta fyrir sig um það, með hverjum hætti Bóasi voru greidd fylgdarlaunin. Riðum við svo út Galtarárdrög en þar liggur slæm kelda, alveg fram í á. Brugðum við á það ráð, að ríða út í ána og kornast þannig fyrir kelduna. Svo illa vildi til er við fórum út í ána, að Rakel rak annan fótinn í bakkann og meiddi sig dálítið. Samt stungu þær upp á því, að eg snéri nú við og mundu þær komast til byggða á eigin spýtur. Eg kvaðst nú ekki kunna við að skilja þær eftir fylgdarlausar uppi á heiðum og aðra þar að auki halta. Mundi eg ekki skiljast við þær fyrr en niðri á Fossum, eins og ákveðið var í upphafi, og náðum við þangað um nóttina. Ekki vildu þær að eg vekti upp, þær gætu legið í hlöðu til morguns. Eg sagðist aldrei koma í Fossa án þess að gera vart við mig og tafði eg þar um hríð. Guðmundur stakk upp á því að eg legði mig til morguns og færi svo í fyrramálið. „Eg er nú með hnakkana hinna“, svaraði eg. „Við skulum þá ekki tala meira um það“, sagði Guðmundur, með sinni venjulegu hægð.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.