Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 44

Glóðafeykir - 01.09.1976, Side 44
44 GLÓÐAFEYKIR „Það eru ekki nema tveir jábræður til í veröldinni, þekkir þú þá nokkuð, Jónatan?“ ,,Eg væri til með að vera annar ef Jóhann væri hinn,“ svaraði Jónatan. Fyrsti verkstjóri minn á Vellinum hét Ingvar Jóhannsson. Eg sendi honum þessa vísu á brúðkaupsdegi hans: Bjart er til sjávar og sveipar nú fjöll sólgeislahjúpurinn fagur, megi svo líða fram ævin þín öll, eins og þinn hamingjudagur. Seinna kom Ingvar eitt sinn til mín og sagði að nú væri vinur sinn einn að gifta sig og nú yrði eg að duga sér vel, því sig langaði til þess að senda honum vísu. En hún þurfi ekki að vera brúðkaups- ljóð því hann sé búinn að senda skeyti. Þessi vinur hans var svart- hærður en Ingvar bjarthærður og eigi það að koma fram í lok vís- unnar. Eg taldi nú ekki gott í efni því svart merki ljótleika en bjart fegurð, en segi samt: Dyggð undir dökkum hárum dró mig svo fast að þér. Þar, á umliðnum árum, unað best hef eg mér. Hér í landinu lengi, lifðu svo munahress, vafinn gæfunnar gengi, Glókollur biður þess. Stúlka, kölluð Ragna, vann þarna í skrifstofunni. Hún eignaðist tvö börn með ameríkana, fór með honum út en þar skildu þau og hún kom heim. Hún bað mig að yrkja þakkarávarp til mömmu sinnar fyrir það hvað hún hefði reynst börnunum vel: Börnin mín smáu, sem huggarðu hér, þeim hefurðu gefið svo margt það besta, sem áttu, því óska eg mér á ævinnar kvöldi þau hlynni að þér og geri það brosandi bjart.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.