Glóðafeykir - 01.09.1976, Page 47

Glóðafeykir - 01.09.1976, Page 47
GLÓÐAFEYKIR 47 mann vildi láta Skeflunga greiða allan kostnaðinn, en hitt var þó samþykkt. Um þetta orti ritarí svonefndar Skorar-vísur: Allsherjarnefndin oní Skorur datt, ei hefur þetta sýslumanninn glatt. Yfir: Björgin, ís og hélu smurð. Undir: Kolblár sjór og heljarurð. Þarna háði ’ún hartnær viku stríð hungruð, skjóllaus, þjáð af kuldatíð. Hermann þóttist hitta færa leið, en hinir vildu ei fara þessa skeið. Seinast Maron sé í klettaþró, um sérhvern þeirra traustum böndum sló og dró þá alla upp á gróna jörð. Afrek það er frægt um Skagafjörð. Strendir sluppu, en Skeflungunum skall skaðvænt okurgjald við þetta fall. Líka hafa sumir sasr mér að sýslumanni blæddi í herkostnað. Þeir kvöddu glaðir geigvænt klettaból, sem gnapir hvassbrýnt nyrzt í Tindastól. Aldrei framar álpist þangað kind, sem útgjöld baki Steini í neinni mynd. Skýringar: Strendir: Reykstrendingar í Skarðshr. Skeflungar: Skefilsstaðahr.menn. Steinn: Steinn L. Sveinsson, hr.stj. á Hrauni í Skefilsst.hr., var þá oddviti, og neitaði í fyrstu að greiða kröfuna. Umræðufundir um ýmis héraðsmál o. fl. eru jafnan haldnir tvo síðustu daga Sæluvikunnar og svo var einnig að þessu sinni, vetur- inn 1952. I fundarlok þakkaði síra Helgi Konráðsson, prófastur á Sauðárkróki, ræðumönnum og sömuleiðis fundarmönnum fyrir komuna, en gat þess jafnframt, að á fundina nú hefði vantað einn ágætan fundarmann, sem jafnan hefði tekið mikinn þátt í umræð- unum og öllum til ánægju, er á hann hlýddu. Þessi maður væri Jón á Bakka, sem nú lægi á sjúkrahúsinu og hefði því hvorki getað mætt

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.