Glóðafeykir - 01.09.1976, Blaðsíða 55

Glóðafeykir - 01.09.1976, Blaðsíða 55
GLÓÐAFEYKIR 55 ur, slíkt var honum hrein andstyggð. Hann var trygglyndur og vin- fastur, vann öll störf af fágætri trúmennsku og heillyndi og lét hag húsbænda sinna sitja i fyrirrúmi fyrir öllu öðru. Hann var sæmdur vinnuhjúaverðlaunum af Búnaðarfélagi íslands — og átti meir en skilið. Júlíus var gleðimaður að eðlisfari og hrókur alls fagnaðar í hópi góðra vina. Hann var greiðamaður og gjafmildur, alúðarvinur allra barna. Hann dó ókvæntur og barnlaus. Skafti Sigurfinsson, húsmaður á Innstalandi á Reykjaströnd, lézt með voveiflegum hætti 26. júlí 1970. Hann var fæddur 12. des. 1908 á Meyjarlandi á Reykjaströnd og \’ið þann bæ kenndur alla ævi .Foreldrar hans voru Sigurfinnur Bjarnason, bóndi á Meyjarlandi, og kona hans Jóhanna Sig- urðardóttir. Var Skafti albróðir Stefáns, sjá Glóðaf. 1974, 15. h. bls. 51, og Stefaníu, sjá þátt um hana í síðasta (16.) h. Glóðaf. Hann var yngstur af 6 börnum Jreirra Meyj- arlandshjóna, er upp komust. Eru Jjau nú öll látin og lagði Skafti síðastur upp í hina hinztu för. Skafti óx upp í foreldragarði og átti þar lengstum heima. Síðustu árin var hann þó til heimilis á næsta bæ, Innstalandi, þar sem Stefán bróðir hans bjó frá 1939 til dauðadags (1967), en átti frá haustnóttum 1969 athvarf á Veðramóti, hjá Guðmundi bónda þar Einarssyni og konu hans Jódísi Benediktsdóttur. Skafti mun aldrei hafa talizt búandi, hvorki á Meyjarlandi né á Innstalandi, en lengstum átti hann eigi að siður skepnur allmargar, fé og hross, og átti reiðhesta. Hann var dýravinur, nærgætinn við allar skepnur og lét sér annt um þær. ,,Þessi umhyggja hans fyrir dýrunum kom glögglega fram í því starfi, sent hann gegndi um mörg ár fyrir ýmis sveitarfélög hér í Skagafirði, en hann sá um hundahreinsun í mörg- um sveitum héraðsins. . . Hér var um mikið nauðsynjaverk að ræða, sem krefst nærgætni, kostgæfni og skyldurækni". (sr. G. G.). Skafti á Meyjarlandi var meðalmaður á vöxt og þó naumlega; fölleitur, fríður ásýndum, augnaráð og tillit nokkuð fjarrænt á stund- um, líkt og hann sæi eitthvað allt annað en það, sem öðrum bar fyrir augu. Hann var greindarmaður, íhugull og athugull og hugsaði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.