Glóðafeykir - 01.09.1976, Page 60
60
GLOÐAFEYKIR
framgöngu, fríðleiksmaður og að öllu vel á sig kominn. Hann var
greindur maður, víðlesinn, prúður í háttum, viðkvæmur í lund,
dulur að eðlisfari og heldur fálátur við fyrstu sýn. Hann var traustur
maður, duglegur og vandvirkur, gerði nteiri kröfur til sjálfs sín en
annarra, svo sem háttur er mætra manna. Hann naut virðingar og
vináttu allra, þeirra er honum kynntust, enda drengur góður og
grandvar í hvívetna. Var að honum mikill mannskaði, svo ungum
manni og efnilegum. (Heimildarm. sr. Þ. Steph. o. fl.).
Friðrik Júliusson, afgreiðslum. á Sauðárkr., varð bráðkvaddur þ.
31. okt. 1970.
Hann var fæddur að Barði á Akureyri 10. júlí 1895, sonur Krist-
jáns Júlíusar ökumanns Kristjánssonar frá
Hranastöðum í Eyjafirði og konu hans
Maríu Flóventsdóttur frá Syðri-Skál í
Kaldakinn.
Friðrik óx upp í foreldrahúsum og átti
þar heimili til fullorðinsára .Systkinin voru
mörg og heimilið fátækt, en dugnaði for-
eldranna og hagsýni við brugðið, og allt
komst vel af. Að loknu barnaskólanámi
gekk Friðrik í kvöldskóla, sem Arthur Gook
hélt á þeim árum, varð vel að sér í tungu-
málumog einkurn í ensku við ágæta hand-
leiðslu Gooks. Eftir það var Friðrik ýrnist
við verzlunarstörf eða stundaði daglaunavinnu, vann og oft á Siglu-
firði á sumrum.
Arið 1921 kvæntist Friðrik Fjólu Jónsdóttur frá Brattavöllum á
Árskógsströnd. Voru þau ýmist á Akureyri eða Siglufirði unz þau
fluttu til Sauðárkróks 1925 og bjuggu þar æ síðan. Var Friðrik fyrst
við verzlunarstörf hjá Haraldi kaupmanni bróður sínum og síðar
hjá Kristjáni Gíslasyni kaupmanni; stundaði þess á milli daglauna-
vinnu og síldarvinnu á Siglufirði. Hernámsárin öll var hann túlk-
ur hjá Bretum fyrst og síðan Bandaríkjamönnum. Er Olíuverzlun
íslands reisti birgðastöð á Sauðárkróki 1946, gerðist hann þegar
fastur starfsmaður hennar og vann þar óslitið til efsta dags.
Friðrik Júlíusson var áhugamaður um margvísleg félagsmálastörf
og lagði sig þar allan fram. En það var honum ekki nóg. Hann hafði
einstakt lag á að glæða áhuga annarra, fá þá til þátttöku og athafna.
Hann var einn af stofnfélögum karlakórsins Vísis á Siglufirði, er