Glóðafeykir - 01.09.1976, Síða 68

Glóðafeykir - 01.09.1976, Síða 68
68 GLOÐAFEYKIR Árið 1921 gekk Sigurlaug að eiga Jón frænda sinn Pálmason, bónda á Svaðastöðum, Símonarsonar, og konu hans Önnu Friðriks- dóttur bónda og alþingsm. í Málmey, Stefánssonar, en kona Friðriks og móðir Önnu var Hallfríður Björnsdóttir hreppstj. og dbrm. á Skálá í Sléttuhlíð. Voru ungu hjónin á Svaðastöðum um stund, en slitu samvistum eftir fárra ára sambúð. Hvarf Sigurlaug til Reykja- víkur og var þar um hríð. Árið 1925 giftist hún síðari manni sínum, Gunnlaugi kennara Björnssyni og konu hans hans Halldóru Magnús- dóttur, sjá þátt af Gunnlaugi í Glóðaf. 1971, 12. h. bls. 55. Árið 1928 fluttust þau hjónin norður hingað að Hólum í Hjaltadal, er Gunnlaugur gerðist kennari við bændaskólann. Næsta vor, 1929, fluttu þau að Brimnesi og höfðu þá keypt jörðina, reistu þar bú og bjuggu miklu myndarbúi meðan bæði lifðu, en Gunnlaugut lézt 14. marz 1962. Eftir það var Sigurlaug fyrir framan hjá syni þeirra hjóna unz kraftar þrutu, en síðustu tvö árin dvaldist hún á sjúkra- húsi. Dætur Sigurlaugar af fyrra hjónabandi eru tvær: Hulda, húsfr. á Marbæli í Óslandshlíð og Anna, húsfr. á Laufhóli hjá Brimnesi. Með seinni manni sínum eignaðist hún son, Björn, hreppsti. og bónda í Brimnesi. Sigurlaug í Brimnesi var í minna nreðallagi á vöxt, aðeins álút í herðum, björt á yfirbragð, ágætlega gefin og gerð, dugnaður og iðjusemi frábær. Hún var hreinskilin og hispurslaus í viðræðu, sjálfstæð í skoðunum, hafði mætur á fögxum skáldskap, bæði í bundnu máli og óbundnu, og dómbær í bezta lagi. Hún var mikil búsýslukona og galt búið þess í engu, þótt bóndinn væri að mestu að heiman vetur hvern. Var Sigurlaug að öllu hin merkasta kona. O O Stefán Jóhannesson, bifrst. og f. verkstj. á Sauðárkr. lézt þ. 12. marz 1971. Hann var fæddur að Hrauni á Skaga 5. ágúst 1892, sonur Jóhann- esar bónda í Neðranesi á Skaga Jóhannessonar, bónda að Björgum á Skagaströnd, Loftssonar, og konu hans Margrétar Stefánsdóttur, bónda á Syðra-Mallandi, Jónssonar bónda á Selá á Skaga, Sigurðs- sonar, og konu lrans Ragnhildar Stefánsdóttur. Stefán óx upp með foreldrum sínum í Neðranesi til 16 ára ald- urs, fór þá í vinnumennsku um þriggja ára skeið, en flutti til Sauð- árkr. 1912. Þar nam hann skósmíði hjá Pétri Eiríksen skósmið og stundaði þá iðn bæði á Sauðárkr. og í Reykjavík til ársins 1922, er hann varð að hætta sakir heilsubrests. Var ávallt heilsuveill eftir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.