Glóðafeykir - 01.09.1976, Qupperneq 69
GLOÐAFEYKIR
69
að hafa legið í spönsku veikinni 1918, en lagði þó margt á gjörva
hönd, bæði til sjós og lands. Stundaði lengi bifreiðaakstur, var verk-
stjóri hjá Sauðárkróksbæ, beykir á Siglufirði nokkur sumur. Hann
rak og um hríð litla matvöruverslun á Sauð-
árkróki, en var síðustu árin allmörg þrot-
inn að starfskröftum, þótt rólfær væri og
furðu léttvígur að sjá.
Arið 1924 kvæntist Stefán Helgu Júlí-
önnu Guðmundsdóttur verkam. á Sauðár-
króki ,f. bónda á Hryggjum í Gönguskörð-
um, Gíslasonar á Óspakseyri í Bitru, Gísia-
sonar, og konu hans Ólafur Jónsdóttur á
Steinavöllum í Flókadal, Kaprasíussonar,
og konu hans Guðrúnar Jóhannesdóttur.
Lifir hún mann sinn ásamt með dætrum
þeirra hjóna tveim, Kristínu, húsfr. í Hafn-
arfirði og Margréti, húsfr. á Sauðárkr. Dreng tóku þau til fósturs
ársgamlan og ólu upp til fullorðinsára: Steinar Skarphéðinsson, vél-
stjóra.
Stefán Jóhannesson var meðalmaður á vöxt og þó naumlega, vel
á fót kominn, hvatlegur í hreyfingum, vel farinn í andliti, snotur-
menn ium allt og bauð af sér hinn bezta þokka. Hann var greindur
vel, glaðlyndur og hreinlyndur, skapbráður nokkuð en skjótur til
einlægra sátta. Hann var glöggur og hagsýnn, átti góða skipulags-
gáfu, vandvirkur og stóð vel að verki. Hann var áhugasamur uin
almenn mál, fylgdist vel með öllum hæringum í þjóðlífinu. Stefán
var traustur máður og tryggur í lund, vandaður maður til orðs og
æðis.
Sigfriður Jóhannsdóttir, húsfr. á Steini á Reykjaströnd, lézt þ. 17.
marz 1971.
Hún var fædd að Sævarlandi á Laxárdal ytra 8. ágúst 1896, dóttir
Jóhanns bónda þar, síðar á Hóli á Skaga, Jónatanssonar bónda á
Reykjarhóli í Fljótum, Ögmundssonar, og bústýru hans Valgerðar
.Ýsmundsdóttur bónda á Þúfum í Óslandshlíð o. v., Asmundssonar,
ogkonu hans Ingibjargar Þorláksdóttur. Var Jóhann á Hóli albróðir
Sigtryggs á Framnesi, föður Bjöms bónda þar og þeirra kunnu
Framnessystkina.
Fimm ára gömul fluttist Sigfríður með foreldrum sínum að Hóli,
þá að Kelduvík 1907 og eftir ársdvöl þar að Selnesi. Eftir það var