Glóðafeykir - 01.09.1976, Page 70

Glóðafeykir - 01.09.1976, Page 70
70 GLÖÐAFEYKIR hún í vistum með móður sinni til fermingaraldurs, síðan í vinnu- mennsku þar á Skaga og vestur í Húnaþingi, ef til vill víðar. Þá var hún og um stund hjá hálfbróður sínum sammæðra, Bjarna Jónssyni, verkstjóra í vélsmiðjunni Hamri í Revkja- vík, og einnig á hinu mikla myndarheimili hálfsystur sinnar samfeðra, Hólmfríðar, og eiginmanns hennar Sigvalda Þorsteinsson- ar, kaupmanns á Akureyri. Þaðan hvarf hún vestur hinoað að \7eðramóti í Göngu- skörðum og síðan að Ingveldarstöðum syðri á Reykjaströnd, þar sem móðir hennar var til heimilis. Arið 1921, hinn 1. maí, gekk Sigfríður að eiga Jón Jónsson, bónda á Ingveldar- stöðum, sjá þátt urn hann í Glóðaf. 1971, 12. h. bls. 53. Það hið sarna ár reistu þau bú á Daðastöðum á Reykjasrtönd og bjuggu þar og síðan á Steini í sömu sveit meðan bæði lifðu, en Jón lézt árið 1962. Börn þeirra eru 5: Fjóla, húsfr. á Akureyri, Páll, rafvirki á Akureyri, Sigurfinn- ur, rafveitustarfsm. á Sauðárkr., Friðvin, vélstj. á Sauðárkr. og Hall- dór, bóndi á Steini. Sigfríður Jóhannsdóttir var í hærra lagi á vöxt og myndarkona á hverja gxein. Hún var mikil mannkostakona, skapmikil að visu og gat í fljótu bragði virtzt skaphörð, en þó var eigi svo í raun; hitt er annað, að hún var einörð og ákveðin, hreinlynd og hreinskiptin, en hjartahlý, fórnfús og svo bóngóð, að hún gat aldrei neitað neinurn um neitt. Hún var einstök atorkukona, mikilvirk og vandvirk, lagði sig alla fram og gekk að hverju verki með lífi og sál. Henni þótti vænt um allar skepnur, hafði yndi af að bregða sér á hestbak og fór jafnvel póstferðir fyrir bónda sinn, ef svo bar undir. Eftir lát manns síns förlaðist Sigfríði heilsa og þrek og síðustu árin þrjú var hún á ellideild Héraðssjúkrahúss Skagf., þrotin að kröftum, en hafði þó ferlivist lengstum. Jón Sveinsson, bóndi á Hóli í Sæmundarhlíð, lézt þ. 19. marz 1971. Hann var fæddur á Hóli 21. maí 1887, sonur Sveins bónda þar og oddvita Jónssonar og konu hans Hallfríðar Sigurðardóttur. Var Jón albróðir Guðmundar Sveinssonar, fulltr. hjá Kaupfél. Skagf., sjá þátt af honum í Glóðaf. 1974, 15. h. bls. 67. Jón óx upp með foreldrum sínum á Hóli og átti þar heima alla

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.