Glóðafeykir - 01.09.1976, Síða 71
GLOÐAFEYKIR
71
ævi. Hann lauk búfræðiprófi frá Hólaskóla vorið 1909, reisti sjálf-
stætt bú á Hóli 1923, en raunar bjó hann þar í sambýli við foreldra
sína allt frá 1914 og óslitið þaðan í frá til 1958 er hann seldi búið
í hendur sonum sínurn tveim. Jón var alla-
jafna í beztu bænda röð. Hann unni jörð
sinni og starfi, var mikill ráðdeildarmaður,
óvenjulega eljusamur og kappsfullur starfs-
maður og vinnuglaður að sama skapi, féll
aldrei verk úr hendi meðan heilsa entist.
Hann fyrirleit leti, hyskni og ómennsku.
Sjálfur vann hann langan vinnudag og
hlífði sér hvergi, vildi og láta aðra le°:gja
sig fram, þá sem nreð honum unnu; þótti
sumum hann ýtinn nokkuð svo og tjóaði
engurn að hangsa við verk, þeim sem hann
hafði yfir að segja.
Jón sat lengi í hreppsnefnd Staðarhrepps og skólanefnd, en var
annars heldur ófús að gegna opinberum störfum.
Jón á Hóli var tvíkvæntur. Árið 1914 gekk hann að eiga Margréti
Sigurðardóttur bónda á Geirmundarstöðum í Sæntundarhlíð, Sig-
urðssonar, og konu hans Ingibjargar Halldórsdóttur, sjá þátt um
Ingibjörgu í Glóðaf. 1971, 12. h. bls. 43. Sambúð þeirra varð eigi
löng, því að Margrét dó árið 1923. Börn þeirra eru tvö: Sigurður,
lyfsali á Sauðárkr. og Hallfríður Bára, húsfr. á Víðimel í Seyluhr.
Arið 1926 kvæntist Jón Petreu Óskarsdóttur síðast bónda í Kjart-
ansstaðakoti á Langholti, Þorsteinssonar, og konu hans Sigríðar Hall-
grímsdóttur ,sjá þátt um Óskar í Glóðaf. 1974, 15. h. bls. 54. Lifir
hún mann sinn. Börn þeirra eru 7: Sveinn, bóndi á Hjallalandi, ný-
býli frá Hóli, Grétar, bóndi á Hóli, Óskar, prentari í Hafnarfirði,
Sigríður, húsfr. á Hamri í Hegranesi, Bjarni, bóndi á Hóli, Magnús,
rafvirki á Akureyri og Margrét, húsfr. á Akureyri.
Jón á Hóli var lágur maður og grannvaxinn, liðlegur og snar í
hreyfingum, grannleitur, andlitsfríður. Hann var vel greindur, fjör-
maður einstakur, röskur og knár; kappgirni, fágætur áhugi og elja
lýsti sér í öllu hans fari. Síðasta árið, sem hann lifði, blindur maður
og vanheill á sjúkrahúsi ,var hann á stöðugxi rölti, hugurinn sífellt
bundinn við heimilið, við konu, börn og búsannir.
Jón Sveinsson var vel metinn og vinsæll heiðursmaður.