Glóðafeykir - 01.09.1976, Page 73
GLOÐAFEYKIR
73
ættmennum og ættarslóðum og voru þær henni oftast efst í huga
undir ævihvörfin.
Guðmundur Jónsson frá Teigi, f. hreppstj. í Hofsós, varð bráð-
kvaddur þ. 27. apríl 1971.
Fæddur var hann að Krossi í Óslandshlíð 4. júní 1905. Foreldr-
ar: Jón bóndi í Teigi Guðmundsson, síðast
bónda þar, jónssonar, og kona hans Elísa-
bet Jóhannsdóttir bónda á Krossi, Kristjáns-
sonar, Guðmundssonar, en kona Jóhanns
02, móðir Elísabetar var Halldóra Þorleifs-
dóttir bónda í Gröf á Höfðaströnd. Kona
Guðmundar eldra í Teigi, föður Jóns, var
Jóhanna Magnúsdóttir ljósmóðir frá Fyrir-
barði í Fljótum.
Tveggja ára gamall fluttist Guðmundur
með foreldrum sínum að Teigi, ólst þar
upp og átti þar heima allt til 1941, enda
löngum við þann bæ kenndur. Nokkru eftir
fermingu naut hann um skeið kennslu í unglingaskóla, og veturinn
1930—1931 stundaði hann nám við unglingadeild, er þá var rekin í
sambandi við búnaðarskólann á Hólum. Eftir það aflaði hann sér
þekkingar á bókhaldi og reikningsfærslu, vann skrifstofustörf hjá
Kaupfél. Skagf. meira og minna um 10 ára skeið, unz heilsa bilaði.
Hann skrifaði mjög skýra og fagra rithönd. Guðmundur var um ára-
bil endurskoðandi ársreikninga Kaupfél. Austur-Skagf., Hofsósi.
Hann var og skipaður fyrsti hreppstjóri Hofsóshrepps, er kauptún-
inu var skipt úr Hofshreppi, enda þá fluttur þangað fyrir nokkru.
En honum féll ekki starfið og sagði því af sér eftir að hafa gegnt því
í 4 ár.
Arið 1941 kvæntist Guðmundur Jóhönnu Sigmundsdóttur bónda
á Bjamastöðum í Unadal, Símonarsonar, og Helgu Bjarnadóttur frá
Mannskaðahóli. Það hið sama ár fluttu þau til Hofsóss, reisu sér
íbúðarhús skömmu síðar og kölluðu Veðramót. Einkabarn þeirra
hjóna er Kristrún, húsfr. að Helgafelli í Helgafellssveit.
„Guðmundur frá Teigi var gildvaxinn meðalmaður, gjörfulegur
að vallarsýn. Mikið prúðmenni í allri framkomu, glaðlegur, góð-
mannlegur, djarfur og hreinskilinn í svörum og kynningu, gerði sér
aldrei mannamun. Hann var skýrleiksmaður, víðsýnn, fylgdist vel
með í opinberum málum, myndaði sér um þau fastar og ákveðnar