Glóðafeykir - 01.09.1976, Page 75
GLOÐAFEYKIR
75
sumrum og mjög eftirsótt til heyskapar. Jón var mikill veiðinraður
og skytta ágæt, lá á grenjum vor hvert í áratugi og þótti flestum
slyngari að vinna tófugren, var og annáluð fuglaskytta. Jón lagði
mikla stund á að eiga og þjálfa góða kappreiðahesta. Oft færðu þeir
honum sigurlaun, og munu það hafa verið lronum miklar sælm
stundir, er fákar hans sköruðu fram úr.
Jón missti konu sína 4. febrúar 1954. Son áttu þau einan barna,
er Jóhann hét; lézt hann, kominn að fimmtugu, nokkrum vikum
fyrr en faðir hans.
Jón Gíslason var meðalmaður á vöxt, dökkur á yfirbragð, hægur
í framgöngu, skapfestumaður, fámáll löngum og þögull, en glaður
og léttbrýnn, er orðræðan hneig að þeim efnum, er honum voru
hugfólgin. Hann var greindur í betra lagi, lesinn og stálminnugur,
fróður um menn og ættir. Hann bar gott skyn á skáldskap, sem þeir
frændur fleiri, og kunni mikið af ljóðum og vísum. Hann var vin-
sæll maður og vel látinn.
Haraldur Andrésson, verkanr. á Sauðárkr., lézt þ. 13. maí 1971.
Hann var fæddur í Kleifargerði á Skaga 14. febrúar 1899, næst-
yngstur 8 barna þeirra hjóna Andrésar, síðast bónda að Öldubakka
á Skaga, Péturssonar, og konu hans Krist-
jönu Jónsdóttur. Var hann albróðir Hjör-
leifs, sjá Glóðaf. 14. h. 1973, bls. 73.
Haraldur ólst upp með foreldrum sínum
og systkinunr. Var þar eigi auður í garði,
enda ómegð mikil og hrakhólabúskapur
lengi vel. Fór Haraldur snemma að vinna
fyrir sér meðal vandalausra, þótt heimili
ætti löngum hjá foreldrum sínum. Er kom-
inn var yfir tvítugt flutti hann til Sauðár-
króks, átti þar heima til lokadags og stund-
aði daglaunavinnu meðan til entist, bæði
heima og heiman.
Árið 1924 kvæntist Haraldur Karólínu Júniusdóttur, síðast bónda
á Kirkjuhóli hjá Víðimýri, Þórarinssonar bónda að Hraukbæ í
Kræklingahlíð, Stefánssonar, og konu hans Ingibjargar Þorsteins-
dóttur nálasmiðs og bónda í Miklagarði hjá Glaumbæ, en móðir
Ingibjargar og kona Þorsteins var Karólína Jóhannesdóttir á Skörðu-
gili ytra, dótturdóttir Gísla Konráðssonar sagnaþular. Karólína Jó-
hannesdóttir lifir nrann sinn ásamt með einkadóttur þeirra hjóna
Haraldnr Andrésson