Glóðafeykir - 01.09.1976, Síða 80
80
GLÓÐAFEYKIR
og bjuggu þar 1931 — 1932, í Litladal í sömu sveit 1933—1935, þá á
Minni-Ökrum til 1938, í Borgargerði á Norðurárdal 1939—1943,
fóru þá byggðum að Bakka í Hólmi og bjuggu þar til 1945 er þau
keyptu ípishól, fluttu þangað og bjuggu þar
til 1951. Það ár, hinn 6. apríl, andaðist Sól-
rún. Þeim hjónurn varð eigi barna auðið.
Eftir lát konu sinnar lét Kristinn af bú-
skap, en átti þó nokkurn búfénað enn um
hríð, var til heimilis á ípishóli og síðan í
Sunnuhlíð hjá Varmahlíð. „Meðan honum
hélzt á skepnum sínum, sem hann hafði
mikið yndi af, var hann oftast með þær í
Stafni í Svartárdal. Sakir vanheilsu dvaldi
Kristinn mörg síðustu ár sín á sjúkrahús-
inu á Sauðárkróki, og varð þá sjúkrahúsið
heimili hans. . .“ (Sr. G. G.). Þar leið hon-
um vel, svo sem verða rnátti, enda kom hugarþel hans til þessa
,,heimilis“ gerla fram í því, að hann ánafnaði sjúkrahúsinu eignir
sínar.
Kristinn Helgason var gildur meðalmaður á velli, stillilegur,
hógvær og hélt sér eigi fram. Saga hans var hvorki margslungin né
stór í sniðum. Fram eftir ævi var hann annarra hjú, kunnur að
fullri hollustu og tryggð við húsbændur og heimili. Bóndi var hann
20 ár og varð furðulega oft að flytjast milli býla. \rerða svo tíðir bú-
ferlaflutningar naumast til þess fallnir að glæða bjartsýni og eyða
áhyggjum. Kristinn lét þó eigi á sjá. Hann komst vel af og tók hverju,
sem að höndum bar, með æðruleysi og rósömum huga. Hann var
grandvar maður, kom sér hvarvetna vel og mun aldrei hafa átt
óvildarmann.
17 hefti af Glóðafeyki hafa nú komið út. Stuttir æviþættir látinna
félagsmanna Kaupfélags Skagfirðinga frá og með árinu 1952 hófust
í 6. hefti, árið 1967, og hafa komið út í hverju hefti síðan. Eru nú
þættirnir orðnir 265. Þá eru óbirtir 92 æviþættir, svo að allir félags-
menn séu taldir, þeir sem látizt hafa frá og með árinu 1952 til þessa