Fréttablaðið - 13.04.2016, Blaðsíða 21
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum
72% erlendra ferðamanna fara gullna hringinn
Landsbankinn býður fyrirtækjum alhliða lausnir
fyrir fjármál þeirra. Hjá okkur starfa tugir sérfræðinga
um land allt sem sérhæfa sig í þjónustu við fyrirtæki
í öllum helstu greinum atvinnulífsins.
Sérfræðiþekking
á fjölbreyttum
þörfum fyrirtækja
landsbankinn.is 410 5000Landsbankinn
Pantaðu viðtal hjá sérfræðingum okkar í síma 410 5000 eða
sendu okkur tölvupóst á netfangið fyrirtaeki@landsbankinn.is.
Í öllum fyrirtækjum er nauðsynlegt að geta gengið að fjölbreyttum
lausnum sem styðja við reksturinn. Við leggjum mikið upp úr
persónulegum tengslum og vandaðri þjónustu.
Hjá fyrirtækjaþjónustu
Landsbankans leggjum við
okkur fram við að koma til
móts við þarfir fyrirtækja. Við
horfum fram á veginn þegar
kemur að viðskiptasamböndum
og störfum með fyrirtækjum
á ólíkum vaxtarskeiðum.
Netbanki fyrirtækja er upp-
lýsingaveita sem eykur yfir-
sýn og auðveldar stjórnendum
ákvarðanatöku. Við bjóðum
upp á greinargóðar innheimtu-
skýrslur, beintengingu við
bókhaldskerfi og kortalausnir
sem einfalda innkaup.
Við bjóðum ýmsar gerðir
rekstrarlána, fjármögnum
tækjakost, veitum fjárfestinga-
lán og aðstoðum við fjár-
mögnun á verðbréfamarkaði.
Við ávöxtum fé og bjóðum
virka eignastýringu fyrir
eignir fyrirtækisins.
Fjármögnun
og eignastýring
Öflugar
netlausnir
Vönduð fyrir-
tækjaþjónusta
Stjórnendur Landsbankans óttuðust
árið 2010 að dómar vegna gengis-
tryggðra lána kynnu í versta falli
að leiða til þess að eiginfjárhlut-
fall færi undir lögbundið lágmark,
sem var þá átta prósent. Þetta var
ástæða þess að ráðist var í sölu
á eignarhaldsfélaginu Vestia til
Framtakssjóðs Íslands árið 2010.
Í bréfi Bankasýslu ríkisins til Lands-
bankans hinn 11. mars síðastliðinn,
sem ritað er vegna sölu bankans
á hlut sínum í Borgun, er vikið að
sölu Landsbankans á Vestia. Salan
á Vestia til FSI, sem var tilkynnt 20.
ágúst 2010, var harðlega gagnrýnd
á opinberum vettvangi, rétt eins og
salan á Borgun. Að beiðni fjármála-
ráðuneytisins aflaði Bankasýsla
ríkisins upplýsinga frá Landsbank-
anum um söluna með bréfi, dagsettu
20. janúar 2011.
Bankinn svaraði fyrirspurn
Bankasýslunnar 27. janúar. Þar kom
fram að á þessum tíma hefði verið
mikil óvissa um lögmæti erlendra
lána bankans sem hefði getað haft
veruleg áhrif á eiginfjárstöðu hans.
Taldi bankinn sér skylt að leita leiða
við að efla eiginfjárstöðu sína án
þess að leita til ríkissjóðs um fjár-
framlag og væri því óhjákvæmilegt
annað en að hraða sölu eigna. Beind-
ust sjónir fljótt að Vestia enda gæti
slík sala verulega eflt eiginfjárstöðu
bankans.
Markaðurinn óskaði í vikunni
eftir afriti af bréfinu sem Landsbank-
inn sendi Bankasýslunni í janúar
2011, þar sem salan er útskýrð,
en fékk synjun. Ástæðan er sú að
bréfið „varðar samskipti bankans og
stofnunarinnar sem bankinn telur
að trúnaðarskylda hvíli á. Lands-
bankinn telur sér því ekki heimilt að
afhenda fjölmiðlum afrit bréfsins.“
Hins vegar kemur fram í erindi
sem Landsbankinn sendi Bankasýsl-
unni hinn 11. febrúar síðastliðinn
að bankinn hafi upplýst Fjármála-
eftirlitið, Seðlabankann og hluthafa
um stöðuna með skriflegum hætti
sökum alvarleika málsins.
Upplýsingar um að stjórnendur
Landsbankans óttuðust að eigin-
fjárhlutfall bankans kynni að fara
undir lögbundið lágmark voru
fyrst birtar almenningi þegar þetta
bréf bankans, frá 11. febrúar, var
gert opinbert. Engu að síður kveða
lög Seðlabankans á um að ef pen-
ingastefnunefnd metur það svo að
alvarleg hættumerki séu til staðar
sem ógni fjármálakerfinu skuli hún
opinberlega gefa út viðvaranir þegar
tilefni er til.
Markaðurinn spurði Fjármála-
eftirlitið út í málið og fékk þau svör
að ekki yrðu veittar upplýsingar um
málefni einstakra eftirlitsskyldra
aðila. „Á hinn bóginn má geta þess
að Fjármálaeftirlitið fylgdist sér-
staklega náið með eiginfjárstöðu
lánastofnana vegna óvissu um bók-
fært virði gengislána á umræddum
tíma. Í athugun Fjármálaeftirlitsins
á áhrifum gengislánadóma Hæsta-
réttar frá 16. júní 2010 kom í ljós
að dekksta sviðsmyndin hefði haft
veruleg neikvæð áhrif á eiginfjár-
stöðu lánastofnana en eins og kunn-
ugt er varð sú sviðsmynd ekki að
veruleika,“ segir í svarinu.
Landsbankinn seldi eignarhaldsfélagið Vestia til þess að efla eiginfjárstöðu í kjölfar gengislánadóma. FréttabLaðið/andri
Óttuðust um rekstrarhæfi bankans
Stjórnendur Landsbankans óttuðust árið 2010 að eiginfjárhlutfall bankans færi undir lögbundin mörk, sem eru átta prósent.
Samkvæmt lögum á peningastefnunefnd Seðlabankans að vara við slíkum aðstæðum. Það gerði nefndin þó ekki.
Í athugun Fjármálaeftirlitsins á áhrifum gengislánadóma
Hæstaréttar frá 16. júní 2010 kom í ljós að dekksta sviðsmyndin
hefði haft veruleg neikvæð áhrif á eiginfjárstöðu lánastofnana.
Úr svari Fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn Markaðarins
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@365.is
markaðurinn 5M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . A p R í l 2 0 1 6
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
B
-6
B
C
0
1
9
0
B
-6
A
8
4
1
9
0
B
-6
9
4
8
1
9
0
B
-6
8
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K