Fréttablaðið - 13.04.2016, Side 28

Fréttablaðið - 13.04.2016, Side 28
Svipmynd baldur þórhallsson Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, vakti athygli fyrir vask- lega framgöngu þegar hann greindi stjórnmálaástandið í beinni útsend- ingu fréttastofu Stöðvar 2 í síðustu viku. Það var ein eftirminnilegasta atburðarás í íslenskri stjórnmála- sögu. Markaðurinn sló á þráðinn til þess að forvitnast meira um þennan mann. „Ég sit hérna á flugvelli erlendis og er að bíða. Ég er að fara að kenna í Tallinn um smáríki,“ segir Baldur þegar Markaðurinn nær tali af honum. „Þeir hafa enn þá þá trú í Talinn að smá- ríki geti áorkað einhverju í heim- inum,“ segir hann léttur í bragði. Baldur byrjaði að kenna sem stundakennari í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands 1995. Hann var svo ráðinn lektor árið 2000. „Ég kláraði doktorsritgerð frá háskólanum í Essex á Englandi 1999. Og ég var svo heppinn að það var auglýst staða um svipað leyti við deildina,“ segir hann. Þótt Baldur hafi í síðustu viku haft hugann allan við íslensk stjórn- mál og stjórnskipan hefur hann þó mesta áherslu lagt á Evrópusam- bandið í sínum fræðastörfum. „Ég skrifaði um möguleika smáríkja til áhrifa innan Evrópusambandsins og fjallaði þá um sjö smærri ríki sem þá voru aðilar að sambandinu,“ segir Baldur, aðspurður hvert efni dokt- orsverkefnis hans hafi verið. „Ástæðan fyrir því að ég valdi mér þetta viðfangsefni var að mig lang- aði til að átta mig á því hver staða Íslands yrði innan sambandsins og hverjir væru möguleikar Íslands til áhrifa,“ segir Baldur. Hann bendir á að það sé ekki hægt að gera rann- sókn á þessu viðfangsefni út af fyrir sig. „En ég skrifaði meistararitgerð frá sama skóla um stöðu Írlands í sambandinu. Svo ákvað ég að rann- saka önnur smáríki í sambandinu í doktorsritgerðinni til þess að reyna að átta mig á því hvort Íslendingar gætu komið sínum lykilmálum á framfæri innan sambandsins og haft áhrif.“ Baldur segir niðurstöðuna í mjög stuttu máli hafa verið þá að í þeim málaflokkum sem smá- ríki einblína á geta þau mjög auð- veldlega varið sína hagsmuni og haft áhrif í þeim. „Hins vegar gerir smæðin það að verkum að þau geta ekki verið að skipta sér af öllum málum innan sambandsins. Þau verða að forgangsraða mjög stíft og einblína svo á lykilhagsmuni.“ Baldur bjó um árabil í Bretlandi á meðan hann stundaði nám og lætur vel af þeirri reynslu. „Ég bjó í Bretlandi frá 1992 til ’95 og fór síðan aftur í eitt ár frá 1997 til ’98 til að klára doktorsritgerðina.“ Hann bendir á að fyrstu þrjú árin Var í Bretlandi á róstusömum tíma Baldur Þórhallsson prófessor vakti athygli þegar hann greindi stjórnmálaástandið í beinni á Stöð 2. Hann skrifaði doktorsverkefni um smáríki í ESB og vildi átta sig á því hver áhrif Íslands gætu orðið þar innanborðs. Bjó í Bretlandi í valdatíð Johns Major forsætisráðherra. sem hann bjó úti hafi John Major verið forsætisráðherra og mikið gengið á. „Það leið varla mánuður að einhver ráðherra segði ekki af sér vegna einhverra skandala. Og það var mikil ólga í bresku samfé- lagi,“ segir Baldur, en engu að síður hafi verið dásamlegt að búa þar. „Ég var dálítið í London vegna þess að ég var dálítið mikið á bókasafninu í London School of Economics við skriftir,“ segir hann og bætir því við að það sé mjög gaman að búa erlendis um tíma og geta sett sig inn í þjóðfélagsmál annars staðar. jonhakon@365.is Ástæðan fyrir því að ég valdi mér þetta viðfangsefni var að mig langaði til að átta mig á því hver staða Íslands yrði. Baldur Þórhallsson 1 3 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r8 markaðurinn 1 3 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :1 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 0 B -6 B C 0 1 9 0 B -6 A 8 4 1 9 0 B -6 9 4 8 1 9 0 B -6 8 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.