Fréttablaðið - 13.04.2016, Page 28
Svipmynd
baldur þórhallsson
Baldur Þórhallsson, prófessor
í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, vakti athygli fyrir vask-
lega framgöngu þegar hann greindi
stjórnmálaástandið í beinni útsend-
ingu fréttastofu Stöðvar 2 í síðustu
viku. Það var ein eftirminnilegasta
atburðarás í íslenskri stjórnmála-
sögu. Markaðurinn sló á þráðinn til
þess að forvitnast meira um þennan
mann.
„Ég sit hérna á flugvelli erlendis
og er að bíða. Ég er að fara að
kenna í Tallinn um smáríki,“
segir Baldur þegar Markaðurinn
nær tali af honum. „Þeir hafa
enn þá þá trú í Talinn að smá-
ríki geti áorkað einhverju í heim-
inum,“ segir hann léttur í bragði.
Baldur byrjaði að kenna sem
stundakennari í stjórnmálafræði
við Háskóla Íslands 1995. Hann var
svo ráðinn lektor árið 2000.
„Ég kláraði doktorsritgerð frá
háskólanum í Essex á Englandi
1999. Og ég var svo heppinn að
það var auglýst staða um svipað
leyti við deildina,“ segir hann.
Þótt Baldur hafi í síðustu viku haft
hugann allan við íslensk stjórn-
mál og stjórnskipan hefur hann þó
mesta áherslu lagt á Evrópusam-
bandið í sínum fræðastörfum. „Ég
skrifaði um möguleika smáríkja til
áhrifa innan Evrópusambandsins og
fjallaði þá um sjö smærri ríki sem þá
voru aðilar að sambandinu,“ segir
Baldur, aðspurður hvert efni dokt-
orsverkefnis hans hafi verið.
„Ástæðan fyrir því að ég valdi mér
þetta viðfangsefni var að mig lang-
aði til að átta mig á því hver staða
Íslands yrði innan sambandsins og
hverjir væru möguleikar Íslands til
áhrifa,“ segir Baldur. Hann bendir
á að það sé ekki hægt að gera rann-
sókn á þessu viðfangsefni út af fyrir
sig. „En ég skrifaði meistararitgerð
frá sama skóla um stöðu Írlands í
sambandinu. Svo ákvað ég að rann-
saka önnur smáríki í sambandinu í
doktorsritgerðinni til þess að reyna
að átta mig á því hvort Íslendingar
gætu komið sínum lykilmálum á
framfæri innan sambandsins og
haft áhrif.“
Baldur segir niðurstöðuna í
mjög stuttu máli hafa verið þá að
í þeim málaflokkum sem smá-
ríki einblína á geta þau mjög auð-
veldlega varið sína hagsmuni og
haft áhrif í þeim. „Hins vegar gerir
smæðin það að verkum að þau geta
ekki verið að skipta sér af öllum
málum innan sambandsins. Þau
verða að forgangsraða mjög stíft
og einblína svo á lykilhagsmuni.“
Baldur bjó um árabil í Bretlandi á
meðan hann stundaði nám og lætur
vel af þeirri reynslu.
„Ég bjó í Bretlandi frá 1992 til ’95
og fór síðan aftur í eitt ár frá 1997 til
’98 til að klára doktorsritgerðina.“
Hann bendir á að fyrstu þrjú árin
Var í Bretlandi á róstusömum tíma
Baldur Þórhallsson prófessor vakti athygli þegar hann greindi stjórnmálaástandið í beinni á Stöð 2. Hann skrifaði doktorsverkefni um
smáríki í ESB og vildi átta sig á því hver áhrif Íslands gætu orðið þar innanborðs. Bjó í Bretlandi í valdatíð Johns Major forsætisráðherra.
sem hann bjó úti hafi John Major
verið forsætisráðherra og mikið
gengið á. „Það leið varla mánuður
að einhver ráðherra segði ekki af
sér vegna einhverra skandala. Og
það var mikil ólga í bresku samfé-
lagi,“ segir Baldur, en engu að síður
hafi verið dásamlegt að búa þar. „Ég
var dálítið í London vegna þess að
ég var dálítið mikið á bókasafninu
í London School of Economics við
skriftir,“ segir hann og bætir því
við að það sé mjög gaman að búa
erlendis um tíma og geta sett sig inn
í þjóðfélagsmál annars staðar.
jonhakon@365.is
Ástæðan fyrir því að
ég valdi mér þetta
viðfangsefni var að mig
langaði til að átta mig á því
hver staða Íslands yrði.
Baldur Þórhallsson
1 3 . a p r í l 2 0 1 6 M I Ð V I K U D a G U r8 markaðurinn
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
0
B
-6
B
C
0
1
9
0
B
-6
A
8
4
1
9
0
B
-6
9
4
8
1
9
0
B
-6
8
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K