Fréttablaðið - 13.04.2016, Side 29
Það er jákvætt að útkoman eftir
pólitískan óstöðugleika í síðustu
viku hafi orðið sú að þing var ekki
rofið. Þetta er mat Ashoks Bhatia,
formanns sendinefndar Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins, sem kynnti yfir-
lýsingu sendinefndarinnar á Kjar-
valsstöðum í gær.
Það sé jákvætt fyrir efnahagslífið
að pólitískur óstöðugleiki síðast-
liðinnar viku hefði ekki sett allt í
stopp.
Bhatia sagði að mikil vinna væri
fram undan við afnám hafta, sem
hefði með löggjafarvaldið að gera.
Mikið ætti eftir að samþykkja af
þingmálum vegna afnámsáætlunar-
innar. Hann sagðist einnig trúa að
nýkjörin ríkisstjórn í haust myndi
halda áætluninni áfram þannig að
framfarir yrðu í málinu.
Að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins hefur ótvíræður árangur náðst í
íslenska efnahagslífinu. Hagvöxtur
hafi ekki mælst eins hár frá því fyrir
bankakreppu og byggi nú á mun
styrkari grunni.
„Við teljum að efnahagslegur
árangur Íslands sé ótvírætt sterkur.
Hagvöxtur hefur ekki verið betri
síðan fyrir hrun. Fyrir hrun byggði
hagvöxturinn á ósjálfbærri upp-
sveiflu, en byggir nú á styrkari
stoðum. Þróun ferðaþjónustunnar
er meðal stærri breytinga,“ sagði
Bhatia.
Útlit er fyrir áframhaldandi
góðan árangur í efnahagslífinu og
að hagvöxtur stefni í 2,5 prósent
til meðallangs tíma samkvæmt
yfirlýsingu sendinefndarinnar.
Öflug einkaneysla, fjárfesting og
ferðaþjónusta munu halda áfram
að knýja framleiðslu og atvinnu-
sköpun. Skuldir ríkisins munu lík-
lega koma til með að lækka verulega
á komandi árum.
Óhóflegar launahækkanir munu
þó líklega auka verðbólgu umfram
verðbólgumarkmið Seðlabankans
til skamms tíma litið. Gera má ráð
fyrir auknu aðhaldi í peningastefn-
unni. Launahækkanir munu draga
úr samkeppnishæfni. Þetta myndi
ásamt lakari viðskiptakjörum valda
minnkandi afgangi af viðskipta-
jöfnuði.
Þá telur Alþjóðagjaldeyrissjóður-
inn að kjöraðstæður hafi skapast
fyrir ný skref í afnámi fjármagns-
hafta. Bhatia sagði að tilefni væri
til að heimila aukna erlenda fjár-
festingu lífeyrissjóða. Hann sagði
þó brýnt að framkvæma frekari
losun hafta með varúð. Skynsamlegt
sé að gera atlögu að aflandskrónu-
vandanum áður en athyglin beinist
að innlendum aðilum.
Bhatia sagði mestu áhættuna
í efnahagslífinu vera aðra koll-
steypu eftir ofþenslu eins og áður
hefði þekkst. Hann sagði að krafan
um aukin ríkisútgjöld væri sífellt
Sendinefnd AGS segir átak til að leysa út aflandskrónueignir eðlilegt skref áður en stjórnvöld snúi sér að losun hafta á
almenning. FréttAblAðið/Pjetur
Þingrof hefði getað haft neikvæð áhrif
Sendinefnd AGS telur efnahag Íslands standa traustum fótum. Nú séu kjöraðstæður fyrir næstu skref við losun hafta. Skynsamlegt sé
að gera atlögu að aflandskrónuvandanum áður en athyglin beinist að innlendum aðilum. Nefndin varar við auknum ríkisútgjöldum.
hærri, og benti á að nú væri kosn-
inga að vænta fyrr en búist var við.
„Ef nýlega uppstokkuð ríkisstjórn
eða komandi ríkisstjórnir reyna að
afla sér vinsælda í gegnum aukin
ríkisútgjöld myndi það bætast við
ríflegar launahækkanir og kynda
undir innlendri eftirspurn sem
hætta er á að sé of kröftug fyrir,“
sagði hann.
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@frettabladid.is
2,5%
hagvexti spáir AGS til
meðallangs tíma.
mArkAðurinn 9M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . A p R í l 2 0 1 6
1
3
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
0
B
-7
A
9
0
1
9
0
B
-7
9
5
4
1
9
0
B
-7
8
1
8
1
9
0
B
-7
6
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K