Fréttablaðið - 13.04.2016, Page 29

Fréttablaðið - 13.04.2016, Page 29
Það er jákvætt að útkoman eftir pólitískan óstöðugleika í síðustu viku hafi orðið sú að þing var ekki rofið. Þetta er mat Ashoks Bhatia, formanns sendinefndar Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, sem kynnti yfir- lýsingu sendinefndarinnar á Kjar- valsstöðum í gær. Það sé jákvætt fyrir efnahagslífið að pólitískur óstöðugleiki síðast- liðinnar viku hefði ekki sett allt í stopp. Bhatia sagði að mikil vinna væri fram undan við afnám hafta, sem hefði með löggjafarvaldið að gera. Mikið ætti eftir að samþykkja af þingmálum vegna afnámsáætlunar- innar. Hann sagðist einnig trúa að nýkjörin ríkisstjórn í haust myndi halda áætluninni áfram þannig að framfarir yrðu í málinu. Að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins hefur ótvíræður árangur náðst í íslenska efnahagslífinu. Hagvöxtur hafi ekki mælst eins hár frá því fyrir bankakreppu og byggi nú á mun styrkari grunni. „Við teljum að efnahagslegur árangur Íslands sé ótvírætt sterkur. Hagvöxtur hefur ekki verið betri síðan fyrir hrun. Fyrir hrun byggði hagvöxturinn á ósjálfbærri upp- sveiflu, en byggir nú á styrkari stoðum. Þróun ferðaþjónustunnar er meðal stærri breytinga,“ sagði Bhatia. Útlit er fyrir áframhaldandi góðan árangur í efnahagslífinu og að hagvöxtur stefni í 2,5 prósent til meðallangs tíma samkvæmt yfirlýsingu sendinefndarinnar. Öflug einkaneysla, fjárfesting og ferðaþjónusta munu halda áfram að knýja framleiðslu og atvinnu- sköpun. Skuldir ríkisins munu lík- lega koma til með að lækka verulega á komandi árum. Óhóflegar launahækkanir munu þó líklega auka verðbólgu umfram verðbólgumarkmið Seðlabankans til skamms tíma litið. Gera má ráð fyrir auknu aðhaldi í peningastefn- unni. Launahækkanir munu draga úr samkeppnishæfni. Þetta myndi ásamt lakari viðskiptakjörum valda minnkandi afgangi af viðskipta- jöfnuði. Þá telur Alþjóðagjaldeyrissjóður- inn að kjöraðstæður hafi skapast fyrir ný skref í afnámi fjármagns- hafta. Bhatia sagði að tilefni væri til að heimila aukna erlenda fjár- festingu lífeyrissjóða. Hann sagði þó brýnt að framkvæma frekari losun hafta með varúð. Skynsamlegt sé að gera atlögu að aflandskrónu- vandanum áður en athyglin beinist að innlendum aðilum. Bhatia sagði mestu áhættuna í efnahagslífinu vera aðra koll- steypu eftir ofþenslu eins og áður hefði þekkst. Hann sagði að krafan um aukin ríkisútgjöld væri sífellt Sendinefnd AGS segir átak til að leysa út aflandskrónueignir eðlilegt skref áður en stjórnvöld snúi sér að losun hafta á almenning. FréttAblAðið/Pjetur Þingrof hefði getað haft neikvæð áhrif Sendinefnd AGS telur efnahag Íslands standa traustum fótum. Nú séu kjöraðstæður fyrir næstu skref við losun hafta. Skynsamlegt sé að gera atlögu að aflandskrónuvandanum áður en athyglin beinist að innlendum aðilum. Nefndin varar við auknum ríkisútgjöldum. hærri, og benti á að nú væri kosn- inga að vænta fyrr en búist var við. „Ef nýlega uppstokkuð ríkisstjórn eða komandi ríkisstjórnir reyna að afla sér vinsælda í gegnum aukin ríkisútgjöld myndi það bætast við ríflegar launahækkanir og kynda undir innlendri eftirspurn sem hætta er á að sé of kröftug fyrir,“ sagði hann. Sæunn Gísladóttir saeunn@frettabladid.is 2,5% hagvexti spáir AGS til meðallangs tíma. mArkAðurinn 9M I Ð V I K U D A G U R 1 3 . A p R í l 2 0 1 6 1 3 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :1 0 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 0 B -7 A 9 0 1 9 0 B -7 9 5 4 1 9 0 B -7 8 1 8 1 9 0 B -7 6 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 2 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.