Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Síða 6
Helgarblað 3.–6. október 20146 Fréttir
Lögreglan
leitar eiganda
reiðufjár
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
auglýsir eftir eiganda reiðufjár í
erlendri mynt. Lögreglan greinir
frá þessu á Facebook en þar kem-
ur fram að fundvíst fólk hafi kom-
ið með reiðufé í erlendri mynt á
lögreglustöðina í Hafnarfirði á
miðvikudag sem það hafði fundið
í Reykjavík fyrr um daginn.
Um er að ræða þónokkra
upphæð og auglýsir lögreglan
eftir eiganda peninganna. „Ef
þú hefur glatað þessum pening-
um eða veist hver hefur glatað
þeim þá endilega sendu okkur
einkaskilaboð gegnum Facebook
eða tölvupóst gegnum netfang-
ið abending@lrh.is. Að sjálfsögðu
verður þess krafist að eigandi
sanni eignarhald sitt,“ segir lög-
reglan á Facebook.
Á
sta Stefánsdóttir, sem fannst
látin í Bleiksárgljúfri þann 15.
júlí, lést af völd um drukknun-
ar eða ofkælingar. Ekkert
bendir til annars en að um slys hafi
verið að ræða í Bleiksárgljúfri þann
9. júní síðastliðinn þegar Ásta og
sambýliskona hennar Pino Becerra
Bolaños létust.
Leitin að Ástu og Pino var viða-
mikil í sumar. Á þriðjudag eft-
ir hvítasunnuhelgina hafði enginn
heyrt frá þeim frá laugardagskvöldi.
Hófst eftirgrennslan þegar þær skil-
uðu sér ekki í vinnu. Miðvikudags-
kvöldið 11. júní fannst Pino látin.
Nokkrum vikum síðar voru það þrír
félagar í Flugbjörgunarsveitinni á
Hellu sem gengu fram á lík Ástu í
Bleiksárgljúfri. Ásta fannst í fyrstu
ferð í áætlun sem unnið var eftir,
sem var að fara í gilið á tveggja til
þriggja vikna fresti, en formlegri leit
að henni var hætt, eftir að björg-
unarsveitir höfðu leitað nánast lát-
laust að henni í nokkrar vikur og
unnið mikið þrekvirki.
Meðal þeirra aðgerða sem björg-
unarsveitir gripu til við var að
stífla rennsli árinnar í gilið í þeim
tilgangi að gera leitarmönnum
kleift að leita betur í hyljum undir
fossinum. Vatn úr einum af hyljum
gljúfursins rennur í foss sem fellur
30 metra niður í gljúfrið. Fellur það
síðan niður berggang sem er um tíu
metra langur.
Niðurstaða krufningar liggur
fyrir, en lögregla rannsakar dauða
þeirra sem slys. Enn er nokkuð í að
hægt verði að ljúka rannsókninni
og er gagna beðið. n
Drukknun eða ofkæling
Rannsókn á andláti Ástu Stefánsdóttur ekki lokið
Slys Ekkert bendir til annars en að um slys
hafi verið að ræða í Bleiksárgljúfri þann
9. júní síðastliðinn þegar Ásta og sambýlis-
kona hennar Pino Becerra Bolaños létust.
Kólnandi veður
í kortunum
Það lítur út fyrir að veður fari
kólnandi víða um land með frosti
næstu daga og því má gera ráð
fyrir að hálka myndist á vegum.
Samgöngustofa vill hvetja öku-
menn til að gera viðeigandi ráð-
stafanir til að tryggja að hjólbarð-
ar séu í sem bestu ástandi og hæfi
væntanlegri vetrarfærð. „Það get-
ur borgað sig að koma við á hjól-
barðaverkstæði til að láta gera
úttekt á ástandi hjólbarðanna og
sjá til þess að þessi litli flötur á
hjólbarðanum sem snertir veg-
inn hafi gott og öruggt veggrip,“
segir Einar Magnús Magnússon
hjá Samgöngustofu. Mikilvægt er
að kunna að bera kennsl á hálku
og þekkja mismunandi tegund-
ir hennar svo komist sé hjá því að
hálka og skert veggrip komi öku-
manni á óvart.
Stofnaði farþegum
í augljóSan háSka
n Bílstjóri ákærður eftir umferðarslys n Einn farþega lamaður
S
tuttu eftir miðnætti aðfara-
nótt 4. mars árið 2012 varð
skelfilegt bílslys í Hafnar firði,
við Reykjanesbraut, með
þeim afleiðingum að bifreið
varð rústir einar og tveir af fimm far-
þegum voru fluttir alvarlega slas-
aðir á gjörgæsludeild. Nú í upphafi
septembermánaðar var öku maður
bílsins, karlmaður á fertugsaldri,
ákærður af ríkissaksóknara fyrir
hegningar- og umferðarlagabrot. Í
ákæru kemur fram að ökumaður hafi
bæði verið ölvaður og ók á um það
bil 178 kílómetra hraða þegar hann
missti stjórn á bílnum. Einn far-
þega sem sat í aftursæti er varanlega
lamaður eftir gáleysi öku mannsins.
Nokkrum dögum eftir slysið greindi
DV frá því að tónlistar maðurinn Val-
geir Guðjónsson hefði verið einn
þeirra sem kom að slysinu. „Maður
gengur inn í óraunverulegan heim.
Það er mjög óhugnanlegt að upplifa
þetta,“ sagði Valgeir þá.
Drukkinn á 180 kílómetra hraða
Í ákæru gegn bílstjóranum kem-
ur fram að etanólstyrkur í blóði
hans hafi verið um það bil 1,4 ‰
þegar hann missti stjórn á bílnum.
Hann var að keyra í norðaustur-
átt eftir Reykjanesbraut á, líkt og
fyrr segir, á tæplega 180 kílómetra
hraða þegar hann missti stjórn þar
sem Reykjanesbraut beygir til norð-
urs til móts við frárein að Sörla-
torgi í Hafnarfirði. Hámarkshraði
þar er áttatíu kílómetrar á klukku-
stund. „Með þessu raskaði ákærði
umferðar öryggi á alfaraleiðum og
stofnaði á ófyrirleitinn hátt lífi og
heilsu annarra vegfarenda og far-
þega bifreiðarinnar í augljósan
háska, og ók bifreiðinni þótt hún
væri ekki í ökuhæfu ástandi vegna
ástands hjólbarða sem voru ásamt
felgum af mismunandi gerðum,
og lélegu ástandi hemla þar sem
hemladiskar voru slitnir og of þunn-
ir,“ segir í ákæru gegn bílstjóranum.
Kastaðist úr bílnum
Í ákæru kemur fram að farþegarnir
tveir voru alvarlega slasaðir. Einn
þeirra þriggja sem sat í aftursæti
bílsins slasaðist mest. Hann kastað-
ist út úr bílnum og hlaut samfalls-
brot á tólfta brjósthryggjarlið sem
varð þess valdandi að hann hlaut
alvarlegan mænuskaða og varan-
lega lömun. Enn fremur fékk hann
umfangsmikinn ákverk á milta,
opin sár á enni og bol, brot á fjór-
um rifbeinum og öllum vinstri
þvertindum í lendarhrygg. Hann
hlaut innri blæðingu í mjaðmar- og
lundarvöðvum.
Margbrotinn í farþegasætinu
Maðurinn sem sat í farþegasætinu
fékk líka alvarlega áverka. Hann
hlaut opið sár í hársverði, brot á
kinnbeinum, á augntóftargólfi, á
miðnesi, á brjósthryggjarlið, á háls-
hryggjarlið og á kjálkabeini. Aðrir
farþegar auk bílstjóranum sluppu
merkilega vel miðað við aðstæður.
Þeir hlutu aðeins mar, tognanir og
aðra minni áverka. Enginn bílfar-
þega var reiðubúinn til að ræða
málið við DV. Einn þeirra nefndi að
ástæðan fyrir því væri dómsmálið
sem nú er höfðað gegn bílstjóran-
um. Hann neitaði sök þegar hann
kom fyrir þingfestingu og fór verj-
andi hans fram á að rannsókn yrði
gerð á blóðsýni sem tekið var úr
manninum. Verjandinn gaf í skyn
að sýnið væri ekki úr bílstjóranum.
Farþegarnir tveir sem slösuðust
mest fara fram á að bílstjórinn verði
dæmdur til að greiða þeim miska-
bætur. Sá sem lamaðist fer fram á
fjórar milljónir króna meðan sá sem
sat í farþegasætinu fer fram á tvær
milljónir. n
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is „Það er
mjög
óhugnanlegt að
upplifa þetta
Rúst Bílinn valt og var rústir
einar eftir að ökumaðurinn
missti stjórn á bílnum.