Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Síða 8
Helgarblað 3.–6. október 20148 Fréttir Hugo Boss söluaðilar: Reykjavík: Gilbert úrsmiður Laugavegi 62 s: 551-4100 Gullúrið–úra og skartgripaverslunv Mjódd s: 587-4100 Úra- og skartgripaverslun Heide Glæsibæ s: 581-3665 Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 Hafnarfjörður Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Úra- o skartgripaversl n Heide Glæsibæ - s: 581 36 5 Svikahrappi vikið úr Háskóla Íslands n Rekinn úr skólanum eftir sex ára doktorsnám n Löng slóð svika á netinu S íðastliðinn febrúar var Linjie Chou, kínverskum doktors­ nema við Háskóla Íslands, vísað formlega úr skólanum. Hann hafði stundað nám við viðskiptafræðideild skólans um árabil undir handleiðslu Snjólfs Ólafssonar. Óljóst er nákvæmlega hvers vegna Chou var vikið úr skólanum en þegar fyrst var fjallað um mál hans í fjöl­ miðlum fyrir tæpu ári þá var greint frá því að sterkur grunur léki á að um ritstuld væri að ræða hvað doktorsrit­ gerð hans varðaði. Þá hefur hann skil­ ið eftir sig langa svikaslóð á netinu. Málið þykir hið vandræðalegasta fyrir Háskóla Íslands en upp komst um lygavef hans um svipað leyti og Chou skilaði doktorsritgerð sinni í júní árið 2013. Samkvæmt heimild­ um DV vísaði Daði Már Kristófers­ son, forseti félagsvísindasviðs, Chou úr skólanum með formlegu bréfi. Í samtali við DV segist Daði ekki geta tjáð sig um einstaka nemendur en segir þó almennt séð að háskólinn sé að herða skimun nemanda. Óáreiðanlegar upplýsingar færst í vöxt Daði segir að eftir að hafa rætt við lög­ fræðinga háskólans hafi niðurstaðan orðið sú að hann geti ekki tjáð sig um einstaka nemendur. „Það væri algjör­ lega óeðlilegt, við verðum að virða þetta,“ segir Daði. Hann er þó tilbú­ inn að ræða almennt um falsaðar fer­ ilskrár nemenda. „Við getum almennt sagt að eins og allir háskólar stönd­ um við frammi fyrir því að nemend­ ur reyni eftir öllum tiltækum leiðum að komast í nám. Það hefur færst í vöxt að þær upplýsingar sem okkur gefnar eru ekki áreiðanlegar. Við höf­ um verið að herða eftirfylgnina ár frá ári, þetta er algjörlega almennt,“ seg­ ir Daði. Ekkert gert við ábendingu Upp komst um lygavef Chou líkt og fyrr segir stuttu áður en hann átti að verja doktorsritgerð sína. Hafði sam­ nemandi hans leitað að honum á netinu og fundið auglýsingar Chou. Samnemandinn hafði samband við yfirmenn úr stjórnsýslu háskólans og lét vita að ekki væri allt með felldu. Í október það sama ár fjallaði DV fyrst um málið og kom þá í ljós að erindi samnemandans hafði ekki verið sinnt og ekkert gert við ábendinguna. Samkvæmt heimildum DV innan viðskiptafræði­ deildar var málið litið alvarlegum augum í kjöl­ far fréttaflutnings. Leitað til sendiráðs Samkvæmt sömu heim­ ildum DV innan deildar­ innar fór forseti viðskipta­ fræðideildar, Runólfur Steinþórsson, með mál­ ið til æðstu stjórnsýslu háskólans. Til að kanna bakgrunn Chou var leit­ að til kínverska sendi­ ráðsins til komast til botns í hvaða maður þetta væri. Heimildir DV ná ekki lengra en á þann tímapunkt í rannsókn háskólayfirvalda á Chou, en niðurstaðan var skýr; hann var tekinn af lista doktorsnema á vef Há­ skóla Íslands og svo í febrúar gerður brottrækur út skólanum. Líkt og fram kom í orðum Daða þá geta starfs­ menn háskólans ekki tjáð sig opin­ berlega um mál einstaka nemenda. Gervidoktor fyrir gerviprins Á Linkedin­síðu sinni titlar Chou sig sem „sir“ og dr. auk ýmissa annarra heiðursnafnbóta svo sem OSH, OST, OSS. Þessar heiðursnafnbætur er þó eintómt plat, líkt og doktorsnafn­ bótin, því við nánari skoðun kemur í ljós að skammstafanirnar standa fyr­ ir hinar ýmsu gerviriddarareglur. Enn fremur segist Chou vera utanríkis­ ráðherra Stefáns Tchernetich, prins­ ins af Svartfjallalandi. Stefán prins af Svartfjallalandi er ítalskur loddari sem selur heiðursnafnbætur og orð­ ur á netinu. Á heimasíðu Stefáns má finna undirflokk um „hirð“ Stefáns og stendur þar að Chou sé sendiherra „prinsins“ í Kína. Reyndi að selja Picasso-málverk Samkvæmt sömu Linkedin­síðu er Chou margt til lista lagt og titlar hann sig þar sem málara. Um tíma aug­ lýsti hann til sölu einstök málverk eft­ ir Picasso og Miro á Linkedin. Sam­ kvæmt þeim auglýsingum hafði hann tekið það að sér að selja málverk­ in fyrir eiganda þeirra. Samkvæmt fyrstu auglýsingu voru málverkin í Austurríki, en voru komin stuttu síð­ ar til Svíþjóðar þar sem Chou býr. Gerviháskólar og HÍ Chou hefur auglýst fleira á Linkedin, svo sem doktors­ gráður frá „virtum háskólum“ til að viðkomandi geti „aukið virðingu sína“. Um er að ræða svokallaðar pappírsmyllur, eða „háskóla“ sem selja gráð­ ur gegn vægu gjald. Raunar er ferilskrá Chou einn langur lygavefur þar sem hann segist hafa haft viðkomu hjá hinum ýmsu „háskólum“ sem allir eru við nánari skoðun gerviháskólar, auk Há­ skóla Íslands. Á heimasíðu European New University í Hollandi – annarri slíkri pappírsmyllu – er hann sagð­ ur vera einn kennara skólans sem og doktor. Hann er sömuleiðis sagður vera aðjunkt við Monarch Business School í Sviss. Um tíma var hann sagður vera kennari við American University of London. Forstjóri og forseti Auk kennslu og sendiherrastarfa virðist Chou koma að stjórn hina ýmsu fyrirtækja. Fyrirtæki þessi virð­ ast í fljótu bragði vera mjög virðu­ leg og eru nöfn þeirra í samræmi við það. Hann er til að mynda forstjóri Euro Management Institute SMBA og forseti miðskrifstofu European Economic Chamber í menningar­ legri samvinnu – sem virðist vera fyr­ irtæki sem sé ekkert tengt Evrópu­ sambandinu. Hótaði aðjunkt DV hefur áður fjallað um mál Chou en fyrir tæpu ári var greint frá hótun sem Friðrik Eysteinsson sagðist hafa fengið frá honum. Friðrik er fyrrver­ andi aðjunkt við viðskiptafræðideild og hafði hann ítrekað beint athygli að misbresti í námi Chou. „Hann hringir í mig á miðvikudaginn og spyr hvort hann sé að tala við Friðrik. Hann seg­ ir til nafns og segir að ég sé að bera út á netinu að hann hafi skilað inn dokt­ orsritgerð sem hafi verið stolin. […] Hann segir að hann sé með alþjóð­ legt teymi lögfræðinga á sínum veg­ um og ætli að kæra mig fyrir að vera bera þetta út. Ég sagði honum að þá skyldi hann bara gera það, það væri bara best því ég hef talað um meintan stuld í þessu máli. Þá æstist hann all­ ur upp og sagði að hann þekkti fyrr­ verandi foringja í kínverska hernum og hvort ég vildi fá hann í heimsókn. Þú veist nú hvernig þeir haga sér, þú færð bara hnakkaskot. Hann sagði svo að hann gæti séð til þess að þessi fyrrverandi herforingi kæmi mér fyr­ ir kattarnef ef ég þegði ekki um þessa doktorsritgerð,“ sagði Friðrik í samtali við DV í október í fyrra. n Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Í sínu fínasta pússi Hér má sjá „sir“ Chou í búningi hirðar „prinsins“ af Svartfjallalandi. Leiðbeinandi Snjólfur Ólafsson, prófess- or í viðskiptafræði, var leiðbeinandi Chou. „Prinsinn“ og Chou Hér má sjá Chou og Stefán „prins“ af Svartfjallalandi í boði. Chou segist vera utanríkisráðherra Stefáns sem er í raun ítalskur loddari. Selur gráður og Picasso Chou hefur auglýst aðstoð sína við að útvega doktorsgráður og einnig hefur hann tekið að sér að selja verk Picasso.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.