Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Blaðsíða 30
Helgarblað 3.–6. október 201430 Fólk Viðtal
„Er ekki hrókur
alls fagnaðar“
Þ
að er nú ekki beint stór-
stjörnuyfirbragð yfir honum,
manninum í gráu jogging-
buxunum sem situr af-
slappaður í sófa, niðursokk-
inn í símann, þegar ég geng inn í
líkamsræktarstöðina Mjölni. Ég á
stefnumót við einn dáðasta íþrótta-
mann landsins – bardagamanninn
Gunnar Nelson. Feðgarnir, Haraldur
og Gunnar Nelson, taka á móti mér.
Þeir virðast þreytulegir en ég kemst
að því síðar að tíminn heima á Ís-
landi hafi að mestu farið í viðtöl við
fjölmiðla svo það er ekki nema furða
að þeir séu orðnir lúnir.
Að myndatöku lokinni setjumst
við Gunnar niður í stóran, aðeins
of þægilegan, leðursófa í anddyri
Mjölnis. Haraldur færir mér kaffi í
hvítu plastmáli, Gunnar segist góð-
ur. Ég byrja á því að spyrja hann út
í komandi verkefni – bardagann við
Bandaríkjamanninn Rick Story sem
fram fer í Svíþjóð þann 4. október
næstkomandi.
Hugsar ekki um andstæðinginn
„Bardaginn leggst bara mjög vel í
mig. Ég er búinn að æfa á fullu í fimm
vikur með mínum æfingafélögum og
við erum mjög spenntir fyrir bar-
daganum,“ segir Gunnar og ég spyr
hann nánar um það hvernig hann
undirbúi sig fyrir bardaga. „Tvisvar í
viku tökum við harðar æfingar. Alla
hina dagana æfi ég tækni, geri þol-
æfingar og glímuæfingar. Það er
mjög einstaklingsbundið hvað menn
leggja mesta áherslu á. Sumir leggja
meiri áherslu á högg og spörk á með-
an aðrir leggja meiri áherslu á glímu.
Sumir lyfta samhliða æfingunum,
sem ég geri að vísu ekki. Fyrir mér
hefur þetta alltaf farið eftir því hverju
maður er að vinna í hverju sinni.
Þetta er svolítið breytilegt. Stundum
er maður að æfa meira í jörðinni og
stundum meira standandi.“ – Fer
það þá eftir því hvaða andstæðingi
þú mætir næst? „Nei, það hefur ekki
farið eftir andstæðingum hjá mér. Ég
hugsa bara um það sem mér finnst
vera næst á dagskrá að bæta í mín-
um eigin leik.“
Dvelur ekki í fortíðinni
Gunnar er enn ósigraður. Fyrsta bar-
daga hans lauk með jafntefli og þá
eru þrettán sigrar í höfn. Næsti bar-
dagi er sem fyrr segir við Banda-
ríkjamanninn Rick Story en þess
má geta að hann er einn af tveim-
ur sem sigrað hafa núverandi UFC-
meistara í þyngdarflokki Gunnars,
Johny Hendricks. Það má því segja
að Gunnar sé að tefla titlinum „ósigr-
aður“ í töluverða hættu með þessum
bardaga. „Þú setur hann í hættu í
hvert skipti sem þú stígur inn í búrið,“
segir Gunnar. „En ég spái voða lítið í
það. Ég er ekkert mikið að spá í for-
tíðina og dvel mjög lítið við það að ég
sé ósigraður. Ég einbeiti mér yfirleitt
að því sem er beint fyrir framan mig
frá degi til dags. Ef ég lít til baka þá er
það til þess að læra af reynslunni, til
dæmis ef mig langar til að verða betri
í einhverjum aðstæðum sem ég lenti
í í bardaga. Þá er kannski gott að rifja
aðeins upp hvað gerðist og reyna að
vinna úr því.“
Síðast tókst Gunnar á við Banda-
ríkjamanninn Zak Cummings í Dyfl-
inni í júlí síðastliðnum. Er eitthvað úr
þeim bardaga sem hann tók með sér
í undirbúningsferlið fyrir næsta bar-
daga? „Já. Það er alltaf eitthvað. Núna
síðast var það kannski helst að hann
var svona gæi sem mér fannst ætla að
reyna að draga mig í dómaraúrskurð.
Hann reyndi að vera ægilega „safe“
og það var eiginlega ekki fyrr en und-
ir lokin á annarri lotu sem ég byrjaði
að setja almennilega pressu á hann
og fór alveg af stað með bardagann.
Þá fyrst kom í ljós hversu megnugur
hann var, hvað hann gat í raun gert
undir pressu. Sumir eru nefnilega svo
lúmskir og klárir í að gera bara nógu
mikið og halda sér öruggum til þess
að vinna á dómaraúrskurði.“
Aðalstjarnan
Á laugardaginn mun Gunnar í fyrsta
sinn keppa í aðalbardaga kvöldsins.
Hann er aðalstjarnan. Hvað þýðir
það fyrir hann? „Það er náttúrlega
bara tækifæri, bæði tekjulega séð
og tækifæri innan UFC að fá betri
bardaga í framhaldinu. Það er alltaf
meira áhorf á þá bardaga sem eru of-
arlega og þessi bardagi er náttúrlega
efstur á lista.“
UFC er bandarísk deild í
blönduðum bardagaíþróttum.
Deildin er í einkaeigu en hún hef-
ur fest sig í sessi sem sterkasta deild
heims og innan hennar vébanda
keppa bestu bardagamenn heims
hverju sinni. Hins vegar er ekki um
að ræða útsláttarkeppni líkt og tíðk-
ast jafnan í öðrum íþróttum heldur
er nefnd innan UFC sem velur næsta
andstæðing bardagamanna. „Í raun-
inni er þetta þannig að þú keppir og
ef þér tekst að vinna kemstu hærra á
styrkleikalista. Ef þú tapar þá hrap-
ar þú aðeins niður á listanum. Þú
ert í rauninni alltaf að klifra upp
ákveðinn stiga og síðan færðu bar-
daga eftir því hvar þú ert staðsettur.
En auðvitað spila fleiri þættir inn í.
Sumir ná að tala sig í gegnum ótrú-
Gunnar Nelson bardagakappi er þekktur fyrir yfirvegun og prúðlega
framkomu. Sumum þykir þessir eiginleikar í andstæðu við íþrótt bardagamannsins,
blandaðar bardagalistir, en Gunnar segir þetta fyrst og fremst vera sjálfsvarnar-
íþrótt og tíðni meiðsla ekki hærri en í öðrum íþróttum. Blaðamaður settist niður
með Gunnari og fræddist um íþróttina sem Íslendingar hafa tekið ástfóstri við, um
háleit markmið kappans, áhugamálin, æskuárin og föðurhlutverkið.
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
„Ég er
ekki
beint að
eltast við
beltið sem
slíkt
Föðurhlutverkið
æðislegt „Ég var
alltaf að fara að eign-
ast börn og ég hugsa
að ég eigi eftir að
eignast allavega tvö,
ef ekki þrjú, í viðbót.“
MynD Sigtryggur Ari