Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Page 38
Helgarblað 3.–6. október 201438 Neytendur
n Ungt fólk notar brennsluefnið út í áfengi n Neysla koffíns og áfengis getur reynst lífshættuleg
Þ
ó að varhugavert og jafn-
vel hættulegt geti verið
að neyta áfengis og orku-
drykkja á sama tíma þá
njóta slíkar blöndur enn
mikilla vinsælda hér á landi. Ný
álíka hættuleg blanda hefur verið
að ryðja sér til rúms hjá ungu fólki
á Íslandi undanfarið en dæmi
eru um að fólk blandi áfengi út í
Hydroxycut-fitubrennsluefnið vin-
sæla. Efnið inniheldur mikið magn
af koffíni og er fáanlegt bæði í sér-
verslunum fyrir fæðubótarefni sem
og helstu matvöruverslunum. Um-
boðsaðili Hydroxycut á Íslandi seg-
ir að efnið sé alls ekki hugsað til að
blanda því út í áfengi.
Einn skammtur á
við þrjá kaffibolla
Neysla á orkudrykkjum sam-
hliða áfengisdrykkju er vinsæl
vegna þess að hún hefur örvandi
áhrif, eykur drykkjuþol og eftir-
sóknarvert úthald þegar fólk er
að skemmta sér langt fram eftir
nóttu. Koffínríkir orkudrykkir og
örvandi brennsluefni hvers konar
hefur því löngum verið notað í
þessum tilgangi. DV hefur heim-
ildir fyrir því að nýjasta æðið sé
að nota Hydroxycut-brennslu-
efnið út í áfengi. Hægt er að fá
Hydroxycut Hardcore, sem er mjög
öflug blanda, í tveimur ávaxta-
bragðtegundum, Fruit Punch og
Blue Rasberry, sem bragðsins
vegna þykir álitlegt sem íblöndun-
arefni fyrir áfengi. Er efnið fáanlegt
bæði í bréfum og hylkjum. Hver
skammtur inniheldur 270 mg af
koffíni sem er á við tæpa þrjá 200
millilítra bolla af kaffi sem inni-
halda um 100 mg af koffíni hver.
Innihald bréfanna blandast auð-
veldlega í vökva og er það kröftugt
að framleiðandinn mælir með því
að aðeins sé tekið hálft bréf í einu
þegar fólk byrjar að nota það við
líkamsrækt.
Til að setja koffínmagnið í sam-
hengi þá er talað um að dagleg
neysla barna og unglinga ætti ekki
að vera meiri en 2,5 mg á hvert kíló
líkamsþyngdar. Ráðlagður dag-
skammtur fyrir barn eða ungling
sem vegur 50 kíló er því 125 mg að
hámarki. Rannsóknir hafa sýnt að
hjá fullorðnum geti neysla umfram
400 mg á dag verið skaðleg heils-
unni samkvæmt upplýsingum frá
Matvælastofnun.
Umboðsaðili mælir
ekki með misnotkun
Fitness Sport er umboðsaðili
Hydroxycut á Íslandi og hafði eig-
andinn Svavar Jóhannsson ekki
heyrt af því að brennsluefnið væri
misnotað með áfengi þegar DV bar
málið undir hann. „Þetta er nýtt
fyrir mér. Þetta er alls ekki hugsað
sem efni til að blanda saman við
áfengi.“ Aðspurður hvort ástæða
sé til að vara fólk við því að nota
efnið með þessum hætti segir hann
að í rauninni sé þetta ekki öðruvísi
en þegar fólk er að blanda saman
voda í RedBull eða sam bærilega
drykki. „Það er í rauninni meira
koffín í því en þessu og það er ekk-
ert í Hydroxycut sem er eitthvað
örvandi annað en koffínið. Í sjálfu
sér er allt koffín í sambland við
áfengi hættulegt. En að sjálfsögðu
mælum við alls ekki með þessu
og þetta er ekki tilgangur efnis-
ins,“ segir Svavar. Hann bendir á
að 18 ára aldurstakmark sé á vör-
unni og sé það tilgreint sérstak-
lega á umbúðunum. Hydroxycut sé
hins vegar selt víða, meðal annars
í Bónus og Hagkaupum svo það sé
kannski erfitt að fylgjast með því.
Hætta á alvarlegum kvillum
Á vef Matvælastofnunar segir
um orkudrykki og áfengi að ýms-
ar matvælastofnanir í Evrópu hafi
gefið út tilmæli um að takmarka
neyslu orkudrykkja. Var hún gef-
in út í ljósi niðurstaðna sænskr-
ar rannsóknar þar sem sýnt var
fram á að ef áfengi er blandað með
orkudrykkjum, eða þeirra neytt
samhliða mikilli hreyfingu, getur
það valdið alvarlegum hjartsláttar-
truflunum sem í versta falli geta
leitt til skyndilegs dauðfalls. Er
lögð áhersla á að ekki sé ráðlegt að
blanda orkudrykkjum út í áfengi.
Og hætturnar eru fleiri.
Upplifir sig minna
ölvað en það er
„Varhugavert og jafnvel hættu-
legt er að neyta áfengis og orku-
drykkja á sama tíma,“ segir í svari
sem Bjarni Össurarson Rafnar, yfir-
læknir vímuefnadeildar Landspít-
alans, skrifaði á Vísindavef Háskóla
Íslands um málið. „Rannsóknir
hafa sýnt að örvandi efnin í orku-
drykkjum vinna að nokkru leyti á
móti slævandi áhrifum áfengis-
ins. Þannig getur fólki fundist það
vera minna drukkið en það í raun
er. Hins vegar sýna sömu rann-
sóknir að dómgreind og færni, til
dæmis til að stjórna ökutækjum, er
engu minna skert en þegar áfeng-
ið er drukkið í öðrum blöndum.
Af þessu má leiða að því líkur að
þegar áfengis er neytt í orkudrykkj-
um aukist hætta á áfengiseitrun og
áhættuhegðun,“ segir í svarinu.
Í svari sem DV fékk frá Hilm-
ari Kjartanssyni, yfirlækni bráða-
lækninga hjá Landspítalanum,
voru ekki dæmi um að fólk hefði
leitað á bráðadeild vegna neyslu á
Hydroxycut og áfengi. n
Ekki ætlað út í áfengi
Það nýtur sívaxandi vinsælda
hjá ungu fólki að blanda
Hydroxycut-fitubrennslu-
efninu út í áfengi. Það getur
reynst varhugavert og fólk
ætti að hugsa sig tvisvar um
áður en það blandar koffín-
ríkum orkudrykkjum saman
við áfengi. Mynd SHUttErStock
„Þetta er alls
ekki hugsað
sem efni til að blanda
saman við áfengi
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Ekki blanda saman
Hydroxycut og áfengi
Lítið að marka uppgefna rafhlöðuendingu Apple
Rafhlöðurnar orðnar betri í iPhone 6 en eru langt í frá þær bestu
A
pple steig fram á dögunum
með djarfar fullyrðingar
um að rafhlöðuending í
iPhone 6- og 6 Plus-símun-
um hefði verið bætt umtalsvert.
Rannsóknir hafa hins vegar sýnt
að þó rafhlöðurnar séu nú betri
en á eldri símum fyrirtækisins þá
er langur vegur frá að þær endist
jafn lengi og Apple fullyrðir. Hin
virta neytendasíða Consumer
Reports prófaði símana og þar
kom iPhone 6 Plus ágætlega út og
náðust 17 klukkustundir af taltíma
á einni hleðslu. Minni útgáfan,
iPhone 6, entist í 10 tíma. Þetta er
umtalsvert minna en Apple hafði
lofað en uppgefinn endingartími
fyrir iPhone 6 Plus var 24 tímar og
14 tímar fyrir iPhone 6 við bestu
aðstæður. En þrátt fyrir þessi von-
brigði þá koma iPhone 6- símarnir,
þá sérstaklega 6 Plus, talsvert bet-
ur út en forverinn, iPhone 5S, í
sama prófi sem náði aðeins átta
tímum. Apple á þó langt í land
með að ná ná keppinautunum LG
G3 og Samsung Galaxy S5 í raf-
hlöðuendingu sem skila 19 og 20
tímum af taltíma á einni hleðslu.
Consumer Reports bendir á að
stærsta byrðin á rafhlöðu snjall-
síma geti verið 3g- og 4g-samband
við dreifistöðvar símafyrirtækj-
anna. Snjallsímar þurfa að vera í
stanslausu sambandi við stöðv-
arnar og símarnir eyði meiri orku í
að ná sambandi þegar skilyrði eru
slæm. Fjarlægð, veður eða hindr-
anir geta þar haft áhrif. Til að bæta
þetta upp nota símarnir meira
afl til að ná sambandi. Prófanir
Consumer Reports sýndu að við
kjörskilyrði (fimm punkta sam-
band) hafi náðst 24 tíma nýting á
síma frá Samsung og LG en þegar
merkið var slæmt (0–1 punktur)
hafi nýtingin hrapað niður í tæpa
6 tíma. n
mikael@dv.is
Mikill munur Það
munaði sjö klukkutímum á
uppgefinni rafhlöðuendingu
Apple og niðurstöðunni úr
prófi Consumer Reports á
iPhone 6 Plus. Mismunurinn
var fjórir tímar á iPhone 6.
Mynd rEUtErS