Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Side 46
Helgarblað 3.–6. október 201446 Sport
Gætu farið frítt næsta sumar
n 21 leikmaður sem gæti yfirgefið félagslið sitt á frjálsri sölu næsta sumar n Margreyndir
Umræður um möguleg félagaskipti
leikmanna eru jafnan vin
sælar á kaffistofum fót
boltaáhugamanna.
Ljóst er að mikið fjör
verður á leikmanna
markaðnum næsta
sumar og eru menn
þegar farnir að velta
fyrir sér möguleg
um áfangastöðum
margra góðra
leik
manna. Vefritið Bleacher Report hefur
tekið saman lista yfir nokkra frábæra
leikmenn sem verða samningslausir
hjá félagsliðum sínum næsta sumar.
Einhverjir þeirra munu eflaust fram
lengja samning sinn hjá núverandi
félagi á meðan aðrir munu ef til vill
reyna fyrir sér annars staðar. List
inn er byggður á upplýsingum
sem aðgengilegar eru
á vefnum Transfer
markt.
Sami Khedira
Félag: Real Madrid
Aldur: 27 ára
Staða: Miðjumaður
n Sami Khedira hefur fyrir löngu sannað
ágæti sitt sem knattspyrnumaður í hæsta
gæðaflokki. Hann varð heimsmeistari með
Þjóðverjum í sumar og hefur staðið sig vel
fyrir Real Madrid, félagið sem hann hefur
leikið með frá árinu 2010. Þess vegna kemur
nokkuð á óvart að félagið hafi ekki endur-
nýjað samning hans. Khedira var orðaður
við brottför frá Real Madrid í sumar en
talið er að launakröfur hans hafi fælt önnur
félög frá því að gera tilboð. Ef ekkert gerist
í samningamálum Khedira verður honum
frjálst að ræða við önnur félög í janúar.
Anderson
Félag: Manchester United
Aldur: 26 ára
Staða: Miðjumaður
n Það má með sanni segja að tími Bras-
ilíumannsins Anderson hjá Manchester
United hafi ekki verið neinn dans á rósum.
Miklar vonir voru bundnar við Brassann
þegar United splæsti stórfé í hann frá
Porto árið 2007. Tími hans hjá félaginu
hefur einkennst af meiðslum og misjafnri
frammistöðu á vellinum; stundum hefur
hann sýnt sparihliðarnar en oftar en ekki
verið hálftýndur inni á vellinum. Hvort mörg
stór félög hafi áhuga á Anderson skal ósagt
látið. Eitt er þó víst: Nái hann að sýna það
sem í honum býr gæti hann reynst frábær
viðbót fyrir hvaða lið sem er.
Younes Kaboul
Félag: Tottenham
Aldur: 28 ára
Staða: Varnarmaður
n Younes Kaboul hefur mátt þola sinn
skerf af gagnrýni frá óhressum stuðnings-
mönnum Tottenham. Hvað sem því líður er
Kaboul öflugur varnarmaður sem á fimm
landsleiki að baki með franska landsliðinu,
það er erfitt að komast í franska landsliðið
nema búa yfir gæðum. Kaboul, sem átti
frábæran leik gegn Arsenal um síðustu
helgi, var gerður að fyrirliða Tottenham fyrir
skemmstu og ef eitthvað er að marka það
virðast forsvarsmenn liðsins viljugir til að
halda honum. Ef svo fer að hann skrifi ekki
undir nýjan samning gæti reynsla Kaboul
komið mörgum liðum að góðum notum.
Fabian Schar
Félag: Basel
Aldur: 22 ára
Staða: Varnarmaður
n Fabian Schar er efnilegur varnarmaður
sem er einnig stórhættulegur uppi við
mark andstæðinganna. Hann hefur skorað
þrjú mörk fyrir svissneska landsliðið í átta
leikjum og níu mörk í 48 deildarleikjum fyrir
Basel – þrátt fyrir að spila í miðri vörninni.
Arsenal hefur verið orðað við kappann en
einnig stórlið á borð við Borussia Dortmund,
Tottenham og Inter. Talið er að hart verði
barist um þennan 22 ára varnarmann næsta
sumar. Nær öruggt er að hann muni yfirgefa
herbúðir Basel næsta sumar.
Nigel de Jong
Félag: AC Milan
Aldur: 29 ára
Staða: Miðjumaður
n Nigel de Jong átti góða leiki með Hollendingum á HM og þar sýndi
hann að hann á nóg eftir í boltanum. De Jong hefur leikið fyrir AC
Milan frá árinu 2012 en líkur eru á að hann yfirgefi félagið á frjálsri
sölu næsta sumar. Talið er að Manchester United hafi sýnt honum
áhuga í sumar og þykir ekki ólíklegt að United geri tilraun til að fá
hann á frjálsri sölu næsta sumar – eða ódýrt í janúarglugganum. Þar
myndi hann endurnýja kynnin við Louis van Gaal, fyrrverandi stjóra
sinn hjá hollenska landsliðinu.
Glen Johnson
Félag: Liverpool
Aldur: 30 ára
Staða: Hægri bakvörður
n Ekki þykir ólíklegt að Glen Johnson yfirgefi herbúðir Liverpool
næsta sumar. Þessi þrítugi bakvörður á ágætan feril að baki en
frammistaða hans með Liverpool hefur ollið talsverðum von-
brigðum – sérstaklega undanfarin misseri. Fullyrt hefur verið að
Liverpool hafi einungis verið tilbúið að framlengja samning hans um
tólf mánuði en Johnson vilji fá lengri samning. Ljóst er að mörg lið
gætu nýtt krafta Johnsons. Þannig hefur ítalska stórliðið Juventus
verið orðað við kappann.
Klaas-Jan
Huntelaar
Félag: Schalke 04
Aldur: 31 árs
Staða: Framherji
n Klaas-Jan
Huntelaar sýndi það í
Meistaradeildinni gegn
Chelsea á dögunum að hann er ekki dauður
úr öllum æðum – langt því frá. Þessi mikli
markahrókur hefur leikið með Schalke frá árinu
2010 þar sem hann hefur skorað 93 mörk í 144 leikjum.
Ljóst er að fjölmörg lið fylgjast spennt með gangi mála
hjá leikmanninum og gæti vel farið svo að eitthvert stór-
liðið í Evrópu hreppi hann á frjálsri sölu næsta sumar.
Andrea Ranocchia
Félag: Inter Milan
Aldur: 26 ára
Staða: Varnarmaður
n Ranocchia er, líkt og landi hans, Ignazio
Abate, á besta aldri og á auk þess sæti í
ítalska landsliðinu. Ranocchia hefur spilað
með Inter frá árinu 2011 en þaðan kom
hann frá Genoa. Þessi stóri og stæðilegi
varnarmaður er býsna öflugur og var hann
til að mynda orðaður við Chelsea, Arsenal
og Manchester United ekki alls fyrir löngu.
Talið er nær öruggt að öll þessi lið muni
fylgjast grannt með gangi mála næstu
mánuðina og jafnvel láta til skarar skríða ef
forsvarsmönnum Inter mistekst að ganga
frá nýjum samningi við hann.
James Milner
Félag: Manchester City
Aldur: 28 ára
Staða: Miðjumaður
n James Milner hefur ekki alltaf fengið það
hrós sem hann á skilið. Þessi vinnuhestur
hefur verið á mála hjá Manchester City frá
árinu 2010 og skilað sínu fyrir félagið. Hann
hefur oft þurft að sætta sig við að verma
tréverkið en þegar hann hefur fengið tæki-
færið hefur hann oftar en ekki skilað sínu,
eins og gegn Chelsea á dögunum þar sem
hann var besti maður vallarins. Samningur
Milners rennur út í sumar. Ef hann fær ekki
nýjan samning þarf hann ekki að hafa
áhyggjur af því að finna ekki gott félag til að
spila fyrir.
einar@dv.is