Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2014, Qupperneq 48
Helgarblað 3.–6. október 201448 Menning
Kynferðislegir taktar og sálartregi
n Unnsteinn Manuel úr Retro Stefson hefur sent frá sér sína fyrstu sólóplötu
É
g hlusta mjög mikið á tón-
list, svo ef ég bý til eitthvað
sem kemur mér sjálfum á
óvart, þá finnst mér það kúl,“
segir Unnsteinn Manuel
Stefánsson, sem á dögunum gaf út
sína fyrstu sólóplötu, fjögurra laga
stuttskífu, EP1, undir listamanns-
nafninu Uni Stefson. Platan er
uppfull af kynferðislegum „R'n'B“-
töktum og ljúfsárum sálartrega.
Meira spes tónlist
Unnsteinn er einnig meðlimur
Retro Stefson, en það hefur verið
ein virkasta hljómsveitin í íslensku
tónlistarlífi frá því að hún kom fyrst
fram á sjónarsviðið árið 2006, en
þá voru meðlimir á fyrri hluta tán-
ingsáranna. Þessi samheldni hóp-
ur úr Austurbæjarskóla hefur gef-
ið út þrjár plötur, Montana (2008),
Kimambwe (2010) og Retro Stefson
(2012), og leikið á hundruðum tón-
leika víða um heim.
Að undanförnu hafa meðlimir
einbeitt sér að öðrum verkefnum,
mest áberandi eru bræðurnir Unn-
steinn Manuel og Logi Pedro. Logi
hefur vakið athygli með hljóm-
sveit sinni Young Karen og nú gef-
ur Unnsteinn út sína fyrstu sóló-
plötu.
Tónlistin er nokkuð ólík því sem
hann hefur gert með Retro Stef-
son, hún er lágstemmdari, raf-
rænni og tregafyllri. Þetta er ekki
ungæðislegt, dansvænt latínórokk-
stuð heldur „R'n'B“-sálartregi.
Hljóðheimurinn er fyrst og fremst
rafrænn, fíngerð tölvuhljóðin draga
fram einmanaleika sem drama-
tískir strengir og textarnir ýta und-
ir. Taktarnir eru kynferðislegir en
það sem er mest einkennandi eru
ljúfsárar melódíur Unnsteins upp-
fullar af sálartrega. Hann nefnir
Tracy Chapman, Drake, Motoboy
og BB King sem dæmi um tónlistar-
menn sem hafi haft áhrif á gerð
plötunnar.
Unnsteinn segir það nokkuð
ólíkt að vinna tónlistina án hljóm-
sveitar. „Þegar maður semur byrjar
maður alltaf með einhverja hug-
mynd, svo þangað til lokaafurðin er
komin er maður að reyna að finna
hvað er það góða í hugmyndinni og
sigta restina úr. Á endanum ertu oft
kannski búinn að sigta út alla upp-
runalegu hugmyndina og eitthvað
alveg nýtt er komið í staðinn. Þegar
ég er að vinna einn þarf ég að sigta
allt sjálfur og tónlistin verður meira
spes fyrir vikið. Ef það eru margir
að vinna í tónlist verður það alltaf
að einhverju svona meðaltali. Það
skemmtilega við Retro Stefson er
að þar höfum við bræðurnir náð að
þróa okkar pælingar um hvað okkur
finnst nett, en þú heyrir líka áhrif frá
hverjum einasta meðlimi.“
Undir áhrifum frá hip-hop
Hann segist reiða sig mikið á að-
stoð frá hljóðmanni. „Þú getur út-
sett lagið á svo margan mismun-
andi hátt. Að velja hljóðmann er
dálítið eins og að finna sér leikstjóra
þegar maður hefur skrifað handrit
að bíómynd. Á þessari plötu er
það Friðfinnur Oculus. Hans hljóð-
heimur, sem er svolítið svona „at-
mospheric“ og „paddaður,“ kemur
mjög skýrt fram á plötunni,“ útskýr-
ir Unnsteinn. „Ég er kannski ekki
alveg búinn að semja sönglínuna
þegar ég kem til hans. Ég leyfi hon-
um að móta lagið svolítið fyrst og
skapa hljóðheiminn og svo syng ég
ofan í.“
Þótt Unnsteinn hafi verið í tón-
listarnámi frá unga aldri er tónlistar-
ferlið meira undir áhrifum frá hip-
hop frekar en klassík. „Þetta að vera
tilbúinn með hljóðrásirnar og svo
að leyfa laginu að gerjast á meðan
maður klárar sönginn. Ég reyni að
hugsa sem minnst fræðilega þegar
ég sem en svo kemur það seinna
þegar þarf að útsetja.“
Hann segir lögin ekki birtast upp
úr þurru heldur þurfi hann að setja
alla sína orku í ferlið. „Ég fæ ekki
einhvern „creative spark“ upp úr
þurru. Ég þarf að setjast niður og
vinna. Fyrir þessa plötu var ég mik-
ið úti í Berlín og samdi mikið. Þetta
er eins og með málara, hann er
kannski að mála í 10 tíma en hann
er í rauninni að horfa á strigann í
sex tíma og svo stendur hann upp
og byrjar að mála. Ég segist kannski
hafa verið að semja í tíu tíma en ég
var í rauninni bara við tölvuna í tvo
tíma, svo var ég að fá mér lúr eða
að fara í göngutúra. Þetta er mikið
þannig, ég þarf að blokka allt ann-
að út. Ég get til dæmis ekki verið að
semja núna þegar ég er að vinna
uppi á RÚV,“ segir Unnsteinn en
hann er að undirbúa sjónvarpsþætti
fyrir ungt fólk, Hæpið, fyrsti þáttur-
inn verður frumsýndur 8. október.
Ekki með plötublæti
Eins og er er aðeins hægt að streyma
EP-plötunni í gegnum Soundcloud-
síðu Unnsteins, en hægt verður að
kaupa hana á geisladiski í nóvem-
ber. Hann segir það þó ekki skipta
sig miklu máli hvort platan komi
út annars staðar en í netheimum.
„Númer eitt, finnst mér allt of mik-
ið til af drasli í heiminum og númer
tvö, þegar þú metur eitthvert lag eft-
ir Elvis Presley eða Lord Pusswhip
að sömu verðleikum af því að þú
ert með bæði í gangi á Youtube á
meðan þú ert að skoða eitthvað
annað, þá er það miklu sanngjarnari
samanburður.“ Sjálfur segist Unn-
steinn ekki vera þjakaður af miklu
plötublæti. „Mér finnst það í raun-
inni náttúrulegra að hlusta á tón-
list svona, þar sem þú ert bara með
tónlistina sjálfa. Ég hef alveg gaman
af vínylplötum þegar ég er að DJ-a
en vínylplötusafnið mitt er bara úti
um allt. Ég er ekki með það á einum
stað. Það segir kannski sitt.“
Unnsteinn er þessa dagana að
vinna að annarri stuttskífu. Það er
óljóst hvenær hún kemur út, en
það gæti verið á næstu vikum. „Mér
finnst það ákveðið frelsi við að setja
dótið bara inn á Soundcloud, ég
þarf ekki að bíða of lengi.“
„Þessi fyrsta EP-plata er öll á ís-
lensku. Mér fannst það svolítið
skemmtilegt þema til að vinna
með, ég hef ekki þorað því á Retro-
plötunum. Það er miklu erfiðara, en
líka skemmtilegra.“ Í laginu Enginn
grætur notar hann hins vegar
dramatískt ljóð Jónasar Hallgríms-
sonar. „Það er náttúrlega dálítið
ósanngjörn krafa að hver einasti
maður sem kunni að spila á gítar
geti skrifað einhverja texta líka. Á
þessum tíma var ég að semja tónlist
alveg á fullu, gerði fullt af „instrú-
mentölum“. Ég hitti aldrei neitt fólk
og reyndi bara að halda mig dá-
lítið fyrir mig, setti engar myndir á
Instagram eða neitt. Svo þurfti ég að
fara að byrja að taka upp söng. Þetta
lag er svolítið skringilega uppbyggt:
ekki erindi, viðlag og þannig, en þá
söng ég oft þetta ljóð af því að ég
kann það svo vel úr Hamrahlíðar-
kórnum. Þetta er eitt af fáum ljóð-
um sem ég kann utan að. Söngur-
inn endaði eiginlega bara alveg eins
og hann hljómaði í fyrstu töku,“ seg-
ir Unnsteinn.
Auglýsingar og Jólagestir Bó
Þegar Retro Stefson kom fyrst fram
á sjónarsviðið var sveitin sett í hóp
með böndum á borð við Sprengju-
höllina og Hjaltalín – þetta voru
post-krútt sem voru tilbúnari en
krúttkynslóðin svokallaða að gerast
poppstjörnur og hafa gaman. Unn-
steinn segir að nauðsynlegt sé að
taka að sér vel launuð verkefni ef
maður vilji lifa af því að skapa tónlist
og tónlistarmenn verði æ meðvit-
aðri um þetta. Sjálfur vinnur hann
að því að semja auglýsingatónlist og
tekur þátt í ýmsum samstarfsverk-
efnum. „Fólk áttar sig á því að pen-
ingar eru af skornum skammti og
þú þarft að selja tónlist ef þú ætlar
að halda áfram að gera þetta. Þessi
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
„Ég fæ ekki
einhvern
„creative spark“
upp úr þurru. Ég
þarf að setjast
niður og vinna.