Málfregnir - 01.10.1988, Page 30

Málfregnir - 01.10.1988, Page 30
Ritfregnir eftir Baldur Jónsson Bækurnar, sem hér verður getið, eru nýkomnar út á vegum Iðunnar og tengj- ast allar fjarkennslu í íslensku sem nú er nýhafin. Hvað sem þeirri nýjung líður var þörf fyrir allar þessar bækur. Mál og samfélag. Um málnotkun og málstefnu. Eftir Indriða Gíslason, Baldur Jónsson, Guðmund B. Krist- mundsson og Höskuld Þráinsson. Iðunn. Reykjavík 1988. 94 bls. Þessi bók skiptist í tvo jafnstóra hluta. Fyrri hlutinn er eftir Indriða Gíslason, prófessor í Kennaraháskóla íslands. Síð- ari hlutinn er tekinn úr nefndaráliti sem fjórmenningarnir stóðu að. Indriði bjó efnið til prentunar og skrifar formálsorð. Nefndarálitið hefir verið gefið út sér- staklega (fjölritað), Álitsgerð um mál- vöndun og framburðarkennslu í grunn- skólum, og hefir áður verið sagt frá því í Málfregnum 1 (bls. 16). Þriðji hluti álits- gerðarinnar nefnist „Um málvöndun og framburðarkennslu í grunnskólum“, og er hann tekinn upp í þessa nýju Iðunnar- bók með nokkrum breytingum í aðhæf- ingar skyni. Parna eru sett fram megin- atriði íslenskrar málstefnu, fjallað um helstu hugtök sem varða málvöndun, stefnu í framburðarmálum og málvönd- unarstefnu í öðrum þáttum móðurmáls- ins. Fyrri hluti bókarinnar gerir m.a. grein fyrir málnotkun sem boðmiðlun og boð- skiptum, venslum hugsunar og máls, mismunandi beitingu máls eftir aðstæð- um, hugtökunum málsniði og stíl, og loks er kafli um málvenjur og mállýskur. Höfundur þessa bókarhluta segist hafa miðað hann við álitsgerðina sem fylgir á eftir. Aftast í bókinni er ritaskrá og atriðis- orðaskrá. Um þýðingar. Eftir Heimi Pálsson og Höskuld Þráinsson. Iðunn. Reykjavík 1988. 128 bls. Aftan á bókarkápu segir svo um þýðing- ar: Miklu varðar fyrir þróun íslenskrar tungu að vandað sé til þýðinga í hvívetna. Margir hafa saknað þess að hafa ekki aðgengilegt rit um þýðingar og vinnubrögð við þær. Þessi bók er frumsmíð á íslensku um þau efni en þýðingar eru fyrirferðarmeiri í nútímaþjóðfélagi en marga grunar og smáþjóðir eins og íslend- ingar eru ákaflega háðar þeim. Mikill hluti þess efnis sem birt er í blöðum og tímaritum er þýddur og sama er að segja um alls konar kennsluefni, bæklinga, leiðbeiningar, kvik- myndatexta og skáldrit. Undir þetta má taka, og var orðið tíma- bært að láta verkin tala. Höfundarnir eru kunnir vaskleikamenn. Heimir Pálsson cand. mag. er deildarstjóri hjá Iðunni og Höskuldur Práinsson prófessor í íslensku nútímamáli í Háskóla íslands. Þeir eru flestum hnútum kunnugir á þessum vett- vangi og hafa auk þess leitað liðsinnis margra svo sem rakið er í formála. Þeir segjast hafa þreifað sig áfram „frá hinum smæstu einingum málsins til hinna stærstu (heilla ritverka)“, og er efnis- skipan bókarinnar eftir því. Aðalefni hennar er skipt í 9 kafla. Að loknum inngangi um mikilvægi þýðinga og fleira eru kaflaheiti þessi: Orð fyrir orð, Orðasambönd og íslenskt orðalag. 30

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.