Málfregnir - 01.10.1988, Page 32

Málfregnir - 01.10.1988, Page 32
Sitt af hverju Ritstjóri flugorðasafns Eins og skýrt var frá í Málfregnum 2 (bls. 31) skipaði samgönguráðherra nefnd í fyrrahaust til að vinna að endur- bótum á flugmáli og undirbúa útgáfu flugorðasafns. Jónína M. Guðnadóttir cand. mag. hefir verið ráðin ritstjóri að því verki og er hún starfsmaður orða- nefndarinnar. Hún tók til starfa 1. mars sl. og hefir aðsetur í íslenskri málstöð, Aragötu 9, Reykjavík. Norræna málnefndaþingið 1988 35. þing norrænu málnefndanna var haldið í Kristiansund í Noregi dagana 19.-21. ágúst sl. Umræðuefni þingsins voru tvö: „Hugmyndir um norræna mál- ræktarsamvinnu og verkefni fram undan“ og „Ensk-amerísk áhrif á norræn mál“. Prír íslendingar sóttu þingið: Baldur Jónsson, Jón Hilmar Jónsson og Kristján Árnason. Kristján flutti erindi um ensk- amerísk áhrif á íslenskt mál, og er það birt í fslenskri þýðingu í þessu tölublaði. Pingið var mjög vel sótt og vel að því staðið af hálfu Norðmanna. Orðanefnd um mat og matargerð íslensk málstöð beitti sér fyrir því í haust í samvinnu við „Matreiðsluskólann okkar“ í Hafnarfirði og fleiri að koma á laggirnar nefnd manna til að styrkja íslenskt orðafar sem lýtur að mat og matargerð. Stofnfundur var haldinn 10. október sl. og hafa fimm tekið sæti í nefndinni: Elín Káradóttir, Guðrún Kvaran, Hallgerður Gísladóttir, Reynir Axelsson og Sigríður Kristjánsdóttir. Nefndin hefir hug á að safna orðum um mat og matargerð frá fyrri tíð og jafn- framt að vinna að íslenskri orðmyndun og aðlögun þeirra orða sem nú eru mest í notkun um þetta efni. - Formaður nefndarinnar er Guðrún Kvaran, Orða- bók Háskólans. Málfregnir koma út tvisvar á ári Útgefandi: íslensk málnefnd Ritstjóri: Baldur Jónsson Ritstjórn og afgreiðsla: íslensk málstöð, Aragötu 9, ÍS-101 Reykjavík. Sími: (91) 28530, (91) 622699, (91) 694443 Áskriftarverð: 500 krónur á ári Prentsmiðja Árna Valdemarssonar hf. ISSN 1011-5889 ÍSLENSK MÁLNEFND

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.