Bændablaðið - 05.06.2014, Qupperneq 4

Bændablaðið - 05.06.2014, Qupperneq 4
4 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Fréttir Bann við minkabúskap í Hollandi, sem átti að taka gildi árið 2024, var fellt úr gildi með úrskurði í undirrétti í Hollandi í gær. Bannið var samþykkt sem lög í hollenska þinginu í desember 2012 en dómstóllinn vísaði til Mannréttindasáttmála Evrópu í úrskurði sínum og lýsti bannið brot á stjórnarskrá. Bannið við minkaeldi var reist með þeim rökum að minkaskinn væru „óþarfa lúxusvara“. Hollenskum minkabændum voru ekki boðnar neinar bætur þrátt fyrir að með banninu yrðu þeir sviptir lífsviðurværi sínu. Slíkt er brot á Mannréttindasáttmálanum. Hollenskum bændum létt Úrskurður dómstólsins hefur vakið mikla ánægju hjá minkabændum í Hollandi, en ekki síður vítt og breitt um Evrópu. „Evrópskur skinnaiðnaður er afar ánægður með að mannréttindi séu eftir allt saman hærra sett en pólitísk hentistefna varðandi málefni eins og siðferði, sem fylgja einstaklingsbundnum skoðunum. Framleiðsla og notkun minkaskinna ætti að snúast um frelsi einstaklingsins. Það hníga engin rök að því að iðnaður sem er vel rekinn, sem gerir miklar kröfur um dýravelferð og aflar mikilla útflutningstekna sé eyðilagður með þessum hætti“, segir Kenneth Ingman, formaður Fur Europe, regnhlífarsamtaka evrópsks skinnaiðnaðar. Úrskurðurinn mun líklega hafa alþjóðleg áhrif, en bann við minkaeldi hefur verið til umræðu víða. „Skilaboðin frá Hollandi eru augljóslega þau að þeir fáu stjórnmálamenn í Evrópu sem tala fyrir banni við minkaeldi ættu að hugsa sig tvisvar um“, segir Ingman. „Við höfum alltaf trúað að við hefðum sterkt mál í höndunum og það gleður okkur að dómstóllinn hafi með skjótum hætti og afdráttarlaust úrskurðað bannið ólöglegt. Þetta er mikill léttir fyrir hollenska minkabændur sem aftur eru orðnir öruggir um lífsviðurværi sitt og geta nú snúið sé að hversdagslegum viðfangsefnum með fjölskyldum sínum,“ segir Wim Verhagen, framkvæmdastjóri samtaka hollenskra minkabænda. Hefði þurft að greiða gríðarháar bætur Holland er þriðji stærsti framleiðandi minkaskinna í heiminum, með ársframleiðslu upp á fimm milljónir skinna. Samkvæmt útreikningum KPMG er áætlað að bætur, sem greiða þyrfti hollenskum minkabændum ef iðnaðurinn yrði bannaður, næmu um 1,2 milljörðum evra. /fr Bann við minkaeldi í Hollandi úrskurðað ólöglegt LH bannar tungubogamél – Alþjóðasamtökin FEIF styðja ekki bannið Landssamband hestamannafélaga (LH) hefur bannað notkun á tungubogamélum með vogarafli í íþrótta- og gæðingakeppnum á vegum sambandsins. Ástæðan er að notkun mélanna er talin afgerandi áhættuþáttur fyrir áverka á kjálkabeini hrossa og jafnvel stangast á við lög um dýravelferð. FEIF, Alþjóðasamtök eigenda íslenska hestins, styðja hins vegar ekki bannið. Ákvörðun LH er í samræmi við áskorun yfirdýralæknis um bann við notkun mélanna og er byggð á rannsóknum Sigríðar Björnsdóttur, dýralæknis hrossasjúkdóma, og Þorvaldar Kristjánssonar, kennara við Landbúnaðarháskóla Íslands. Rannsóknir þeirra hafa sýnt að notkun slíkra méla eru afgerandi áhættuþáttur fyrir áverka á kjálkabeini hjá keppnishestum. 75-faldar líkur Í rannsókninni var farið yfir heilbrigðisskoðun keppnishesta á Landsmóti hestamanna og Íslandsmóti í hestaíþróttum árið 2012. Samkvæmt niðurstöðunum er gríðarleg fylgni milli notkunar stangaméla með tunguboga og áverka á kjálkabeini hrossa, eða um 75-falt meiri líkur en við notkun annara méla. Í erindi sem Sigríður hélt á Landsýn, vísindaþingi landbúnaðarins, í mars síðastliðnum fór hún yfir rannsóknina. Meðal þess sem kom þar fram var að í sumum tilfellum væru meiðslin svo alvarleg að hross sem þau hlytu myndu aldrei jafna sig og ná fullum bata. Gögn úr nýlegri sænskri rannsókn staðfesta sams konar áverka við notkun tunguboga. Stjórn Landssambandsins leitaði aðstoðar lögfræðings sem komst að þeirri niðurstöðu að heimilt væri að banna mélin í keppnum á vegum LH og FEIF, Alþjóðasamtökum eigenda íslenska hestsins. Mél teljast vera með tunguboga þegar hæðarmunur frá neðri kanti endastykkis mélanna upp í neðri kant á efsta hluta er meiri en hálfur sentimetri. Öll mél með stöngum og/eða keðju teljast mél með vogarafli. Bannið hefur þegar tekið gildi og mun stjórn LH leggja niðurstöðu sína ásamt nýjum upplýsingum sem fram kunna að koma fyrir landsþing sem haldið verður í október. Tamningamenn og hrossabændur skora á FEIF Bæði Félag tamningamanna og Félag hrossabænda sendu í kjölfarið á ákvörðun LH áskorun til FEIF um að banna þegar notkun á einbrotnum mélum með tunguboga, vogarafli og keðju og einjárnungum með tunguboga, vogarafli og keðju. FEIF hefur hins vegar sent frá sér yfirlýsingu þar sem kemur fram að samtökin styðji ekki bannið. Í yfirlýsingu FEIF kemur fram að þrátt fyrir áhyggjur manna varðandi ákveðnar gerðir méla hafi FEIF „ekki borist ábendingar það sem af er þessu ári um vandamál vegna þeirra“. Samtökin hyggjast nota yfirstandandi keppnistímabil til að fylgjast betur með notkun mélanna og hugsanlegt tjón sem þau geta valdið. Þá er lögð áhersla á nýjar reglur sem tóku gildi 1. apríl um hert eftirlit og áherslubreytingar til að bæta reiðmennsku og samband manns og hests. Dómarar eru hins vegar minntir á mikilvægi þess að vísa öllum hrossum úr keppni, séu þau sár, óháð þeim búnaði sem notaður er. Mjólkursala eykst enn Sala á fituhluta mjólkur hefur aukist um 7,6 prósent síðustu 12 mánuði. Á tímabilinu frá maí 2013 til apríl 2014 var salan 124,5 milljónir lítra. Á sama tímabili var sala á próteinhluta mjólkur 118,8 milljónir lítra, en það er aukning um 2,4 prósent frá árinu áður. Þetta er framhald á gríðarlegri aukningu í sölu mjólkurafurða síðustu misseri. Greiðslumark mjólkur fyrir árið í ár var ákveðið 125 milljónir lítra. Ef fram heldur sem horfir má gera ráð fyrir að að sala á fituhluta mjólkur verði yfir ákveðnu greiðslumarki. Gefið hefur verið út að fullt afurðastöðvaverð verði greitt fyrir alla innlagða mjólk frá bændum, til að hvetja til aukinnar framleiðslu. /fr Texti verður endurritaður um leyfilegan þéttleika í alifuglaeldi: Endurtaka þarf umsagnarferilinn um drög að reglugerð um velferð alifugla – RML vinnur að úttekt fyrir eggjabændur um breytingar á húsakosti og kostnað Nýjar reglugerðir um velferð dýra eru nú í vinnslu í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu. Rebekka Hilmarsdóttir lög- fræðingur í atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu segir að með gildistöku nýrra laga um velferð dýra um síðustu áramót hafi verið ljóst að uppfæra þurfti reglugerðir um aðbúnað og velferð dýra. „Ráðuneytið skipaði því sjö starfshópa til að vinna tillögur til ráðuneytisins, en ásamt alifuglum er um að ræða tillögur að reglugerðum um velferð hrossa, svína, minka, sauðfjár, geitfjár, nautgripa og gæludýra,“ segir Rebekka. Starfshópurinn var skipaður fulltrúum Matvælastofnunar, Dýra verndar sambands Íslands og Félögum eggja- og kjúklingabænda. Kastljósinu hefur að mestu verið beint að drögunum að reglugerð um velferð alifugla á undanförnum vikum, enda hefur greinin á stundum legið undir ámælum fyrir að þar sé upp til hópa stundaður verksmiðjubúskapur. Athygli hefur vakið, að í drögum að nýrri reglugerð um velferð alifugla sem send var til umsagnar 6. maí síðastliðinn – og sett verður í ljósi nýrra laga um velferð dýra – er gert ráð fyrir heimild fyrir enn þéttbærari alifuglaeldi en tíðkast hefur hingað til. Var þeim drögum harðlega mótmælt meðal annars af hálfu Dýraverndarsambandi Íslands og Velbú – samtökum um velferð búfjár. Settu samtökin til að mynda af stað undirskriftasöfnun þar sem þessum ákvæðum var mótmælt. Ákvæði um þéttleika í alifuglaeldi verða endurrituð Samkvæmt upplýsingum frá Rebekku misfórst hluti þess texta sem birtist í drögunum sem sneri að þéttleika alifugla. Munu þau ákvæði verða endurrituð og að svo búnu verða drögin að reglugerðinni send aftur til umsagna. Drög reglu gerðar innar, sem nú hefur verið úrskurðuð úrelt, hafa verið til umsagnar hjá hagsmunaaðilum og lauk umsagnafresti 4. júní síðastliðinn. Umsagnaraðilar eru Bændasamtök Íslands, Matvæla- stofnun, Dýraverndarsamband Íslands, Dýralæknafélag Íslands, Félag kjúklingabænda, Félag eggjaframleiðenda, Eigenda- og ræktendafélag landnámshænsna, Neytendasamtökin og Velbú. En reglugerðin tekur einnig til varphæna. Fyrirhuguð er breyting á núverandi aðbúnaðarreglugerð fyrir varphænur. Með nýrri reglugerð mun framleiðslu í hefðbundnum búrum vera hætt innan ákveðins aðlögunartíma. Að sögn Unnsteins Snorra Snorrasonar, ráðgjafa Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins í bútækni og aðbúnaði, standa framleiðendur frammi fyrir tveimur valkostum; annars vegar framleiðslukerfi með innréttuðum búrum og hins vegar lausagöngu. „Í samanburði við hefðbundin búr eru innréttuð búr með meira rými á hvern grip og í hverju búri þurfa varphænur að hafa aðgang að hreiðri, setprikum, svæði með undirburði og búnaði sem tryggir eðlilegt slit á klóm. Í lausagöngu getur verið um að ræða framleiðslukerfi þar sem hænur eru á gólfi með aðgang að setprikum og hreiðrum og einnig framleiðslukerfi með innréttingum eða pöllum. Að beiðni Félags eggjabænda höfum við hjá RML unnið að skýrslu þar sem áhrif nýrrar reglugerðar á kostnað við eggjaframleiðslu og fjárfestingarþörf er metin. Við erum að leggja lokahönd á skýrsluna þar sem við metum áhrif reglugerðarinnar á greinina. Ljóst er að auknar kröfur um aðbúnað varphæna munu hafa veruleg áhrif á framleiðendur. Bæði vegna þess að þörf er á umtalsverðri fjárfestingu í nýrri framleiðsluaðstöðu og einnig vegna þess að framleiðslukostnaður mun hækka. Búið er að innleiða sambærilegar reglur í löndunum í kringum okkur og þar er talað um að framleiðslukostnaður hafi aukist um 15–25%. Sú skýring er einkum vegna aukins byggingarkostnaðar en ekki síður vegna lakari fóðurnýtingar, minni afurða og aukins vinnuframlags,“ segir Unnsteinn. / smh

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.