Bændablaðið - 05.06.2014, Síða 18

Bændablaðið - 05.06.2014, Síða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Heimsmeistaramótið í rúningi haldið á Írlandi: Íslendingar kepptu í fyrsta sinn – reynslunni ríkari og lentu í 38. og 44. sæti Dagana 22.-25. maí var heimsmeistarakeppnin í rúningi haldin í Gorey á Írlandi. Þetta er sextánda sinn sem mótið er haldið en í fyrsta skipti sem Íslendingar taka þátt. Alls voru 27 þjóðir skráðar til leiks að þessu sinni og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt undanfarin mót. Íslensku keppendurnir stóðu sig með prýði en ljóst þykir að íslenskir rúningsmenn geta mikið lært af starfsbræðrum þeirra úti í heimi. Hraði og vandvirkni skipta máli Í heimsmeistarakeppninni í rúningi er keppt í vélrúningi, með handklippum og í ullarmeðhöndlun. Tveir einstaklingar frá hverju landi keppa í hverri grein og því getur hvert land sent að hámarki sex keppendur til þátttöku. Mikið regluverk fylgir hverri keppnisgrein þar sem stig eru gefin út frá hraða og vandvirkni. Stuðst hefur verið við heimsmeistaramótsreglurnar í vélrúningi á Íslandsmeistaramótum undanfarin ár og bjuggu íslensku rúningskapparnir að þeirri reynslu. Ísland í 38. og 44. sæti Borgar Páll Bragason, einn af liðsstjórunum, sagði að tilgangur keppni sem þessarar væri meðal annars sá að vekja athygli á mikilvægi faglegra vinnubragða við rúning og frágang á ull. „Eftir að hafa upplifað þau faglegu vinnubrögð sem þarna voru viðhöfð var hópurinn sammála um að Íslendingar ættu margt eftir ólært í þeim efnum,“ sagði Borgar Páll. Hann sagði að árangur íslensku keppendanna væri góður. „Í ljósi þess að þetta var í fyrsta skiptið sem Íslendingar taka þátt í rúningsmóti á erlendri grundu var árangurinn vel viðunandi. Af 49 keppendum lenti Hafliði Sævarsson í 38. sæti og Julio Cesar í 44. sæti. Ljóst er að allur íslenski keppnishópurinn er reynslunni ríkari eftir að hafa tekið þátt og fullur tilhlökkunar til að taka þátt eða stuðla að því að Íslendingar verði á meðal þátttakenda í næstu heimsmeistarakeppni sem verður haldin í Nýja-Sjálandi í janúar árið 2017,“ sagði Borgar Páll. Það voru þeir Julio Cesar Gutierrez frá Hávarsstöðum 2 í Leirársveit og Hafliði Sævarsson frá Fossárdal í Berufirði sem kepptu fyrir Íslands hönd en einnig kepptu Trausti Hjálmarsson frá Austurhlíð í Biskupstungum og Reynir Þór Jónsson frá Hurðarbaki í Flóa í tengdri keppni þar sem þeir öttu keppni við þá bestu í heiminum. Liðs- og fararstjórar voru Borgar Páll Bragason, Lilja Grétarsdóttir og Guðmundur Hallgrímsson, sem var aðalhvatamaður ferðarinnar. Sævarsson frá Fossárdal, Trausti Hjálmarsson frá Austurhlíð, Guðmundur Hallgrímsson frá Hvanneyri, Reynir Þór Jónsson frá Hurðarbaki, Julio Cesar Gutierrez frá Hávarsstöðum 2, Lilja Grétarsdóttir frá Hávarsstöðum 2 og Borgar Páll Bragason, Hvanneyri. Ljósmyndir: Borgar Páll Bragason og Guðmundur Hallgrímsson klippurnar séu smurðar og fínar. Rowland Smith frá Nýja-Sjálandi varð heimsmeistari í vélrúningi. Í úrslitum var hann tæpar 16 mínútur að rýja 20 kindur! örmum Reynis Þórs Jónssonar. Trausti Hjálmarsson fór mikinn. Samhliða heimsmeistarakeppninni var haldin landbúnaðarsýning. Þar var meðal annars boðið upp á fjárhunda- og hrútasýningu og fjölbreytt skemmtiatriði. Írska rigningin gerði sitt við að gera sýningarsvæðið að einu leðjubaði. hraðinn sem skiptir máli heldur líka vandvirkni.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.