Bændablaðið - 05.06.2014, Page 24

Bændablaðið - 05.06.2014, Page 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 5. júní 2014 Fréttaskýring „Mettuð eða hrein náttúruleg fita veldur ekki hjartasjúkdómum.“ Þetta er niðurstaða umfangs- mikillar rannsóknar sem kynnt var í mars í tímaritinu Annals of Internal Medicine sem gefið er út af American College of Physicians. Er þetta þvert á hástefndar fullyrðingar margvíslegra stofnana og sérfræðinga bæði hér á landi og í útlöndum á umliðnum áratugum sem ráðlagt hafa fólki að forðast mettaða fitu í smjöri og ostum og rautt kjöt. Samkvæmt þessu má því segja að opinber lýðheilsustefna um allan heim hafi verið rekin á fölskum forsendum í hálfa öld. Engar ótvíræðar sannanir fyrir viðteknum skoðunum um skaðsemi fitu Varnaðarorð um neyslu á mettaðri fitu hefur glumið í eyrum í áratugi og hefur fólk af þeim sökum verið hvatt til að snúa sér frekar að neyslu á kjúklingakjöti og jurtaolíum, en neyslu á nautakjöti eða öðru rauðu kjöti og smjöri. Fullyrt hefur verið að mettuð fita geti valdið stíflu í kransæðum. Í niðurstöðum rannsóknarinnar sem að framan greinir segir að viðteknar rannsóknir styðji ekki á ótvíræðan hátt þá stefnumótun sem byggt hafi verið á um að mikil neysla á ómettaðri og mettaðir fitu valdi hjarta- og æðasjúkdómum. Nina Teicholz ritaði grein um málið í The Wall Street Journal í byrjun maí síðastliðinn undir fyrirsögninni „The Questionable Link Between Saturated Fat and Heart Disease“. Segir hún að gallinn við fullyrðingar fjölmargra sérfræðinga um að fituneysla orsakaði hjartasjúkdóma hafi verið, að á bak við þær hafi aldrei legið skotheldar sannanir. Nina Teicholz hefur unnið að rannsóknum á fitu í fæðu og sjúkdómum í nærri áratug. Hún hefur ritað bók um málið sem ber titilinn „The Big Fat Surprise“ og und i r t i t i l i nn „Why Butter, Meat and Cheese Belong in a Healthy Diet“. Bókin kom út nú í maí og fæst m.a. á Amazon. „Við höfum bara trúað þessu þar sem þetta hefur verið grunnur þeirrar næringarstefnu sem rekin hefur verið í hálfa öld af hópi metnaðarfullra einstaklinga en á grunni lélegra vísinda, pólitíkur og hlutdrægni,“ segir Teicholz Hún segir að vantraust almennings á neyslu fitu megi rekja aftur til sjötta áratugarins og til persónulegs metnaðar vísindamannsins Ancel Benjamin Keys sem starfaði við Minnesota- háskóla. „Dr. Keys var ógurlega sannfærandi og með einstrengings- legum viljastyrk reis hann til æðstu metorða í heimi næringarfræði heimsins og komst jafnvel á forsíðu tímaritsins Time. Þangað komst hann í krafti vægðarlausrar baráttu fyrir þeirri fullyrðingu að fita hækkaði kólesteról, sem síðan orsakaði hjartaáfall. Þessi hugmyndafræði féll í frjóan jarðveg vegna þess að á þeim tíma horfðu Bandaríkjamenn fram á ört vaxandi faraldur hjartasjúkdóma sem höfðu verið fágætir þrem áratugum fyrr. Þessir sjúkdómar komust fljótt í fyrsta sæti yfir áhrifaríkustu dauðsvalda þjóðarinnar. Jafnvel Dwight D. Eisenhower forseti fékk hjartaáfall árið 1955 og örvæntingarfull krafa var gerð um skýringar.“ Áróðurinn um minni fituneyslu leiddi til ofneyslu kolvetna úr jurtaríkinu Teicholz bendir á að ein afleiðing þess að hvatt var til þess að fólk minnkaði neyslu á fitu er að í dag neytir almenningur að minnsta kosti 25% meiri kolvetnis en hann gerði á árunum upp úr 1970. Á sama tíma hefur neysla á hreinni fitu minnkað um 11%. Þetta þýðir að í stað neyslu á kjöti, eggjum og osti, erum við að borða meira af pasta, brauði og öðrum kornvörum, ávöxtum og grænmetissterkju eins og úr kartöflum. Þó að neytt sé meira af því sem talið er heilsusamlegri fæða með minna fituinnihaldi eins og jógúrt, er sú fæða styrkt í stað fitunnar með sykri og kolvetnaríkum trefjum. Það er eins og lýðheilsupostular hafi ekki áttað sig á að í meltingarveginum brotna þessi kolvetnissambönd niður og í glúkósa sem þvingar líkamann til að framleiða meira insúlín sem er einstaklega afkastamikið við að geyma fitu. Á sama tíma hefur frúktósan, eða ávaxtasykurinn í ávöxtunum þau áhrif að lifrin fer að framleiða meira þríglýseról og önnur fituefni sem dælt er út í blóðið. Segir Teicholz í grein sinni að óhófleg neysla kolvetna hafi ekki einungis leitt til offitu, heldur hafi það einnig með tímanum framkallað sykursýki tvö og mjög líklega hjartasjúkdóma. „Næringarfræðistefna nútímans er byggð á lygum og lélegum vísindum.“ Teicholz segir að Keys hafi verið í einstakri aðstöðu til að koma sínum hugmyndum að í svokallaðri Sjö ríkja rannsókn (Seven Countries Study) sem gerð var á 13.000 manns í Bandaríkjunum, Japan og í Evrópu árið 1958. Sú rannsókn virtist sýna að hjartasjúkdómar væru ekki óhjákvæmilegur fylgifiskur öldrunar, heldur væri hægt að tengja þá við slæma næringu. Í grein á vefsíðu Autority Nutrition um málið 19. janúar síðastliðinn er ekki skafið utan af hlutunum í fyrirsögn, en þar segir: „Næringarfræðistefna nútímans er byggð á lygum og lélegum vísindum.“ Greinina ritar maður að nafni Kris Gunnars sem segir að í afhjúpun á Sjö ríkja rannsókn Keys komi fram að Keys hafi sniðgengið miklar fituneysluþjóðir eins og Norðmenn og Hollendinga þar sem tiltölulega lítið var samt um hjartasjúkdóma. Þá hafi hann líka sniðgengið lönd á borð við Síle þar sem fituneysla er lítil en tíðni hjartasjúkdóma mikil. Segir Kris Gunnars að Keys hafi einungis notast við lönd sem studdu kenningar hans. Reglur brotnar í rannsókninni? Teicholz segir líka í sinni grein að gagnrýnendur hafi bent á að dr. Keys hafi broti margar vísindalegar reglur í rannsókn sinni. Fyrir það fyrsta valdi hann löndin ekki af handahófi, heldur þau lönd sem hann taldi að styddu best hans sannfæringu, þar á meðal Júgóslavíu, Finnland og Ítalíu. Hins vegar sniðgekk hann Frakka sem þjóð frægra en heilsuhraustra ommelettuátvagla, sem og aðrar þjóðir sem neyttu mikillar fitu eins og Svisslendinga, Svía og Vestur- Þjóðverja. Megin niðurstaðan, eins og við þekkjum hana í dag, sýndi Miðjarðarhafsmatseðilinn svokallaða, sem neytt var af bændum á Krít og öðrum eyjarskeggjum sem náðu háum aldri og neyttu lítils kjötmetis og osta. Bendir Teicholz á að dr. Keys hafi heimsótt íbúa Krítar sem barist höfðu við mikið harðræði eftir heimsstyrjöldina síðari. Rannsóknina þar hafi hann gert á páskaföstu þegar íbúar neyttu ekki kjöts og osta. Niðurstöður sínar hafi hann síðan byggt á upplýsingum sem fengust frá nokkrum tugum manna í stað þeirra 655 sem hann hafði lagt upp með. Ekki hafi verið upplýst um þenna galla á rannsókninni fyrr en árið 2002 af vísindamönnum sem þá rannsökuðu vinnu Keys á Krít. Á þeim tíma þegar þetta uppgötvaðist höfðu kenningar Keys verið notaðar sem trúarkenningar um allan heim í áratugi. Kenning dr. Keys var innsigluð 1961 Dr. Keys innsiglaði stöðu kenningarinnar um skaðsemi mettaðrar fitu árið 1961 fyrir næringarráði bandarísku hjartasamtakanna sem gerðu leiðbeiningar hans að hinni gullnu reglu það sama ár. Var þetta gert þrátt fyrir efasemdir í ráðinu. Árið 1977 gaf svokölluð Ameríkunefnd bandarísk þingsins út sín fyrstu „Næringarmarkmið fyrir Bandaríkin,“ en nefndin var undir stjórn George McGovern. Var þetta gert með það að markmiði að snúa við faraldri hjartasjúkdóma í landinu. Þessi opinbera leiðsögn fékk gríðarlega gagnrýni og m.a. frá American Medical Association og virtum vísindamönnum eins og John Yudkin sem hélt því fram að orsakavaldurinn væri sykur en ekki fita. Næringarmarkmiðin sem gefin voru út voru eftirfarandi: • Neytið minni fitu og kólesteróls. • Neytið minna af unnum vörum og sykri. • Neytið meira af flóknum kolvetnum úr grænmeti, ávöxtum og korni. Þessi markmið voru síðan tekin upp af Bandaríska l a n d b ú n a ð a r r á ð u n e y t i n u (United States Department of Agriculture – USDA árið 1980. Hafa gagnrýnendur bent á að það hafi verið sérlega hentugt fyrir ráðuneytið að taka upp þennan leiðarvísi í ljósi þess að vinna ráðuneytisins snerist ekki síst um að hvetja til sölu á korni. Teicholz segir að fjölmargar samanburðarkannanir hafi verið gerðar á áttunda áratugnum þar sem borin var saman neysla af jurtaolíuríkri fæðu og fæðu með mikilli mettaðri fitu. Yfirleitt hafi þá verið stuðst við olíu úr korni og soyabaunum, en ekki úr olífum. Á þessum samanburðar- rannsóknum hafi þó verið alvarlegur aðferðafræði legur galli, þar sem ekki hafi t.d. verið tekið tillit til reykinga og fleiri þátta sem gerðu niðurstöðurnar í besta falli óáreiðanlegar. Gallinn hafi bara verið sá að ekki varð aftur snúið. Það hafi verið búið að verja of miklum tíma, peningum og orku margvíslegra stofnana til að sanna ágiskanir Keys. Lýðheilsumálin komin á könnu Landlæknisembættisins Áróðurinn sem byggður er á fullyrðingum Keys og gefin viðurkenning á af bandarískum yfirvöldum um að neysla á hreinni fitu sé stórhættuleg og orsakavaldur hjartasjúkdóma, hefur líka verið notaður í opinberum lýðheilsuáróðri á Íslandi. Væntanlega hafa þessi „vísindi“ svo líka verið notuð til að uppfræða íslenska lækna og næringarfræðinga um áratuga skeið. Málaflokkurinn var undir hatti Lýðheilsustofnunar. Með lögum sem gengu í gildi 1. maí 2011 var starfsemi Lýðheilsustöðvar felld undir Embætti landlæknis sem ber þá ábyrgð á framkvæmd lýðheilsustefnunnar. Rannsóknir dr. Ancel Benjamin Keys um skaðsemi af neyslu dýrafitu hraktar í viðamikilli nýrri rannsókn: Lýðheilsustefna um allan heim rekin á fölskum forsendum í hálfa öld – Embætti landlæknis segir nýju rannsóknina ekki gallalausa en endurskoða eigi ráðleggingar embættisins um mataræði Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Dr. Ancel Benjamin Keys, höfundur -

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.